Reyna að finna lausn á flóttamannavandanum

Á þriðju­dag­inn hitt­ast utan­rík­is­ráð­herrar Evr­ópu­sam­bands­ríkj­anna á fundi í Brussel. Þar á að reyna að ná sam­komu­lagi og móta stefnu varð­andi flótta­manna­straum­inn til Evrópu. ESB ríkin hafa ekki áður staðið frammi fyrir jafn flóknu úrlausn­ar­efni segir Martin Lidegaard utan­rík­is­ráð­herra Dan­merkur. Hann telur að mjög erfitt muni reyn­ast að ná sam­komu­lagi um svo­nefnda kvóta­hug­mynd um jafn­ari skipt­ingu hæl­is­leit­enda innan ESB ríkj­anna.

Utan­rík­is­ráð­herra Frakk­lands sagði eftir mikil funda­höld í Brussel í síð­ustu viku að það væri mála sann­ast að ríki Evrópu stæðu nán­ast ráð­þrota frammi fyrir flótta­manna­vand­anum. „Allir skilja vand­ann og vilja finna ein­hverja lausn, en það veit bara eng­inn hver sú lausn á að vera,“ sagði þessi ráð­herra.

Þessi lýs­ing ráð­herr­ans er ekki orðum aukin því að á síð­asta ári komu að minnsta kosti 700 þús­und flótta­menn til Evrópu. Í þessum tölum er ekki gerður grein­ar­munur á flótta­manni og hæl­is­leit­anda heldur er orðið flótta­maður notað um fólk sem flúið hefur heima­land sitt. Ýmislegt bendir til að talan 700 þús­und sé of lág og nærri ein milljón muni vera nærri lagi. Stærsti hóp­ur­inn kom frá Sýrlandi og næst­flestir frá Írak. Afganistan og Eritrea komu svo þar á eftir.

[caption id="attachment_28886" align="alignnone" width="798"] Martin Lidegaard utan­rík­is­ráð­herra Dan­merkur. Mynd: EPA[/caption]

Talið að ein milljón flýi frá Líbíu á þessu ári


Það sem af er þessu ári er það flótta­fólk frá Líbíu sem er fjöl­menn­ast og Frontex (Landamæra­stofnun Evrópu) telur að allt að ein milljón manna muni reyna að flýja landið á þessu ári. Inni í þess­ari tölu er fjöldi fólks frá öðrum löndum en Líbíu, fólk sem hefur Líbíu sem við­komu­stað, ef svo má að orði kom­ast.

Martin Lidegaard utanríkisráðherra Danmerkur. Mynd: EPA
Martin Lidegaard utan­rík­is­ráð­herra Dan­merkur. Mynd: EPA

Í við­tali við danskt dag­blað nýlega sagði Martin Lidegaard utan­rík­is­ráð­herra að í Líbíu ríki algjört stjórn­leysi. Það væri að hluta til vegna þess að erlenda her­liðið hefði allt of fljótt yfir­gefið landið eftir fall Gaddafis. Það hefðu verið alvar­leg mis­tök.

Sér­fræð­ingar Frontex telja að þótt flótta­manna­straum­ur­inn til Evrópu hafi í fyrra verið meiri en nokkru sinni fyrr muni fjöld­inn í ár verða mun meiri. Þetta er sá vandi sem ESB löndin standa nú frammi fyrir og verða að takast á við.

Vilja reyna að draga úr straumnum yfir Miðjarðarhaf


Innan Evr­ópu­sam­bands­ins hafa komið fram margar hug­myndir í því skyni að draga úr fólks­straumnum yfir Mið­jarð­ar­hafið. Meðal ann­ars auknu eft­ir­liti (svo­nefnd Tríton áætlun) og nýjasta hug­myndin er að eyði­leggja skip og báta þeirra sem stunda fólks­flutn­ing­ana. Líka hefur verið rætt um að fara sömu leið og Ástralar, hleypa ein­fald­lega engum í land. Bent hefur verið á að slíkt stríði gegn alþjóða­sam­þykktum sem ESB löndin hafi sam­þykkt.

Í við­tali við danskan sér­fræð­ing í mál­efnum Afr­íku­ríkja kom fram að á næstu 15 árum muni íbúum Afríku fjölga um 500 millj­ónir. Ef í álf­unni ríki sama upp­lausn­ar­á­stand og gert hefur um ára­bil og tak­ist ekki að finna leiðir til að stemma stigu við flótta­manna­straumnum verði hann algjör­lega óvið­ráð­an­legur.

[caption id="attachment_28887" align="alignnone" width="759"] Flótta­menn frá Libíu á gúmmí­bát á Mið­jarð­ar­hafi. Mynd: EPA[/caption]

Hugmyndin um kvótakerfið


Öllum er ljóst að straumur flótta­fólks verður ekki stöðv­aður, þótt það tak­ist ef til vill að tak­marka hann. Þá vaknar spurn­ingin hvað verði um það fólk sem kemur til Evrópu og sækir um hæli. Hver á að taka við því? Þetta hefur lengi verið deilu­mál innan ESB.

Flóttamenn frá Libíu á gúmmíbát á Miðjarðarhafi. Mynd: EPA
Flótta­menn frá Libíu á gúmmí­bát á Mið­jarð­ar­hafi. Mynd: EPA

Í fyrra sóttu 626 þús­und um hæli í löndum Evr­ópu­sam­bands­ins, það var 44 pró­senta aukn­ing frá árinu 2013. Þegar töl­urnar eru skoð­aðar kemur í ljós að sex lönd; Þýska­land, Svíþjóð, Ítalía, Frakk­land, Ung­verja­land og Bretland fengu rúm­lega 80 pró­sent allra umsókna. Nafn Ung­verja­lands á þessum lista kemur kannski á óvart en það skýrist af miklum fjölda umsókna frá Kosovo, en þeim umsóknum var nær öllum hafnað.

Í fyrra fengu 104 þús­und hæli í ESB lönd­unum og 60 þús­und til við­bótar svo­kallað tíma­bundið dval­ar­leyfi. Þýska­land veitti sam­tals um 48 þús­und manns leyfi til land­vistar, í Svíþjóð fengu 33 þús­und slíkt leyfi, Frakkar og Ítalir hvorir um sig 20 þús­und, aðrar þjóðir veittu færri leyfi.

Með hinu svo­nefnda kvóta­kerfi er hug­myndin sú að mót­taka hæl­is­leit­enda dreif­ist jafnar innan ESB en nú er raunin. Þá myndu öll ríki axla sinn hlut með jafn­ari hætti en nú er. Þetta er það sem á að ræða, og helst taka ákvörðun um í Brussel á þriðju­dag­inn.

Danmörk með fyrirvara


Nokkur lönd innan ESB eru með svo­kall­aða fyr­ir­vara í aðild­ar­samn­ingi sínum. Danmörk er til dæmis með slíkan fyr­ir­vara um mót­töku flótta­manna og hæl­is­leit­enda. Slíkir fyr­ir­varar (eða und­an­þágur) eru reyndar nokkuð umdeildir og í Danmörku stendur til að kjósa um þá á næsta ári. Ástæða þess­ara fyr­ir­vara er sú að Danir felldu Maastricht sam­komu­lagið 1992, en sam­þykktu síðar, eftir að fyr­ir­var­arnir voru settir.

Margir stjórn­mála­skýrendur telja alls óvíst að sam­komu­lag náist um kvóta­hug­mynd­ina. Flest ríki telja að þá beri þeim að taka við fleira fólki og fæstir kæra sig um það. Líka hefur verið nefnt að með þessu fyr­ir­komu­lagi geti það til dæmis orðið þannig að manni sem fær um sitt mál fjallað í Svíþjóð fái hæli í Ung­verja­landi, sem hann kæri sig alls ekki um.

Eitt eru þó allir sam­mála um; lausn verður að finn­ast.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár