Sérstakur saksóknari hyggst ljúka rannsókn hrunmála á þessu ári

Stefnt er á að ljúka rann­sókn allra hrun­mála fyrir lok þessa árs og gert er ráð fyrir því að máls­með­ferð þess­ara mála fyrir hér­aðs­dómi verði komin langt á veg í árs­lok. Þetta segir Ólafur Þór Hauksson, sér­stakur sak­sókn­ari.

„Mál í rann­sókn í árs­lok (2014) voru 24 tals­ins. Það er tölu­vert mikið af þessum málum sem eru á þeim stað að það vantar mjög lítið upp á til að klára þau,“ segir Ólafur. Stefnt var að því að klára rann­sókn allra mála um síð­ustu ára­mót en það mark­mið tókst ekki. Það sem eftir stendur segir Ólafur að eigi að klár­ast á þessu ári. „Það er yfir­lýst mark­mið hér að ná að gera það. Svo eru alltaf ein­hverjir óvissu­þættir,“ segir hann og til­tekur til dæmis ef þarf að fara með rétt­ar­beiðnir til útlanda þá getur það tekið langan tíma.

Héraðssaksóknari tekur við öllu


Jafnvel þótt ein­hver mál standi eftir hjá emb­ætt­inu í árs­lok 2015 munu þau verk­efni fær­ast yfir til hér­aðs­sak­sókn­ara­emb­ætt­is­ins sem til stendur að stofna, segir Ólafur Þór. Það emb­ætti á að taka yfir rann­sókn, ákæru­með­ferð og sak­sókn í efna­hags­brota­málum, sem og fleiri verk­efni, sam­kvæmt frum­varpi inn­an­rík­is­ráð­herra um breyt­ingu á lögum um með­ferð saka­mála og lög­reglu­lögum, sem er nú í með­förum þings­ins.

Hér­aðs­sak­sókn­ara­emb­ættið mun fá verk­efni frá rík­is­sak­sókn­ara, sér­stökum sak­sókn­ara, rík­is­lög­reglu­stjóra og öðrum lög­reglu­emb­ættum. Gert er ráð fyrir því að hvort sem mál verði enn í rann­sókn, í ákæru­með­ferð eða fyrir dómi, þá verði þau færð til hér­aðs­sak­sókn­ara ef og þegar lögin taka gildi.

Fjórtán hrunmál bíða ákvörðunar um saksókn


Í svari emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara við fyr­ir­spurn Kjarnans í jan­úar síð­ast­liðnum eru til við­bótar við þessi 24 mál sem minnst var á hér að framan fjórtán mál fullrann­sökuð og bíða þess að ákvörðun verði tekin um hvort sak­sótt verður í þeim eða ekki.

200 af þeim málum sem hafa komið inn á borð emb­ætt­is­ins frá stofnun þess eru svokölluð hrun­mál. 139 þess­ara mála hefur verið vísað frá, hætt hefur verið við rann­sókn eða þau sam­einuð öðrum málum.

Heild­ar­fjöldi mála sem emb­ættið hefur fengið á sitt borð er mun meiri, eða 667 mál. Ólafur segir það oft fá litla athygli að á und­an­förnum árum hafi fjölgun verið mikil í öðrum efna­hags­brotum, en en efna­hags­brota­deild rík­is­lög­reglu­stjóra var sam­einuð emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara árið 2011.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár