Ástralir segja já við hjónaböndum samkynhneigðra - Skýr skilaboð

Afger­andi nið­ur­staða í atkvæða­greiðslu í Ástralíu um það hvort lög­leiða eigi hjóna­band sam­kyn­hneigðra liggur nú fyrir. 61,6% kusu JÁ. Kjarninn náði tali af ástr­alska uppi­stand­ar­anum Jonathan Duffy og ræddi þessa sögu­legu útkomu.

Fögnuður á götum Melbourne - Hjónaband samkynhneigðra samþykkt í atkvæðagreiðslu
Fögnuður á götum Melbourne - Hjóna­band sam­kyn­hneigðra sam­þykkt í atkvæða­greiðslu Mynd: EPA

Fólk af sama kyni mun fá að ganga í hjóna­band í Ástralíu nú þegar nið­ur­stöður atkvæða­greiðslu liggja fyrir. 61,6 pró­sent kjós­enda voru fylgj­andi laga­breyt­ingu sem leyfir hjóna­band sam­kyn­hneigðra og hefur for­sæt­is­ráð­herra Ástralíu, Malcolm Turnbull, lofað því að frum­varpið verði orðið að lögum fyrir næstu jól.

Kjörsókn var 79,5 pró­sent og voru nið­ur­stöður kunn­gerðar mið­viku­dag­inn 15. nóv­em­ber. 7.817.247 manns kusu með breyt­ingu á lögum og 4.873.987 á móti. 

Ljóst þykir að þessar ótví­ræðu nið­ur­stöður séu sögu­legar í land­inu og var kosn­inga­bar­áttan heldur hrotta­fengin á köflum. For­sæt­is­ráð­herr­ann sagði á blaða­manna­fundi að fólkið hefði gefið ótví­ræð skila­boð og að þingið verði nú að verða við óskum þess og fylgja lög­unum eftir.

“Þeir sögðu já við sann­girni, já við skuld­bind­ingu, já við ást. Og nú er komið að okkur á þing­inu að halda áfram með starfið sem ástr­alska fólkið bað okkur um að sinna og ljúka þessu,“ sagði Turnbull og árétt­aði að lögin verði komin í gildi fyrir jólin. Þetta segir í frétt The Guardian.

JÁ í öllum fylkjum

Jonathan Duffy, ástr­alskur grínisti og uppi­stand­ari sem venju­lega er kall­aður Jono, hefur verið búsettur á Íslandi í rúm tvö ár. Hann segir í sam­tali við Kjarnann að þessar nið­ur­stöður komi honum á óvart en samt ekki. „Það er ekki gott að segja, við erum öll í okkar Facebook-kreðsum. Þegar ég er á net­inu þá sé ég að allir styðja breyt­ing­una en það er einmitt það sem gerð­ist þegar fólk nennti ekki að kjósa í for­seta­kosn­ing­unum í Banda­ríkj­unum,“ segir hann.

Hann bendir á að auð­velt sé að halda að kosn­inga­úr­slit verði þér í hag vegna þess að allir í kringum þig hugsi á svip­aðan hátt og þú og algrímið hjá Facebook haldi því þannig. Hann segir að hann hafi ekki verið sér­stak­lega bjart­sýnn vegna þess­ara ástæðna en jafn­framt sé 62 pró­sent mik­ill sigur. Ekkert fylki kaus nei, ekki einu sinni Queensland, fylkið sem hann fædd­ist í, þar sem að hans sögn er mikið um for­dóma gagn­vart sam­kyn­hneigðum.

Fordómar munu líklegast minnka

Nið­ur­stöð­urnar skipta gríð­ar­lega miklu máli fyrir sam­fé­lag sam­kyn­hneigðra í Ástralíu og segir Jono að þær séu skýr skila­boð um óskir fólks varð­andi hjóna­bönd sam­kyn­hneigðra. Stjórn­mála­menn hafi hér áður fyrr notað vilja almenn­ings sem afsökun fyrir því að gera engar breyt­ingar þrátt fyrir að skoð­ana­kann­anir hafi sagt aðra sögu. Hann bendir á að þó ástr­alska þjóðin sé ekki trú­hneigð þá hafi trú verið dregin inn í umræð­una.

„Það sem er mik­il­vægt fyrir sam­kyn­hneigða í Ástralíu nú um mundir er að for­dómar munu lík­leg­ast minnka til muna. Þegar ríki mis­munar hópi fólks þá er ekki við öðru að búast en að borg­arar þess geri það líka,“ segir hann og bætir við að í nán­ast öllum þeim löndum sem hjóna­bönd sam­kyn­hneigðra hafi verið lög­leidd hafi for­dómar minnkað.

Áhyggjur hans lýsa sér í því að nið­ur­stöð­urnar eru ekki bind­andi og þess vegna sé þetta ekki komið algjör­lega í gegn. Stjórn­völd gætu farið þá leið að hunsa atkvæða­greiðsl­una en þau hafi þó gefið út yfir­lýs­ingu þess efnis að þau muni fram­fylgja henni fyrir jólin.

Bjóst aldrei við að upplifa þennan dag

Jono hefur ferð­ast mikið í gegnum tíð­ina og síð­ustu tvö ár búið á Íslandi. Hann segir að það sem hafi komið honum mest á óvart á ferða­lögum sínum sé mun­ur­inn á því ann­ars vegar hvernig fólk heldur að sam­fé­lagið í Ástralíu sé og hins vegar hvernig það er í raun­veru­leik­anum.

„Fólk hér á Íslandi er iðu­lega slegið yfir því að hjóna­bönd sam­kyn­hneigðra séu ekki leyfð og að miklir for­dómar grass­eri í Ástralíu. Ef ég á að vera alveg hrein­skil­inn þá hélt ég þegar ég var að alast upp að ég myndi aldrei sjá hjóna­band sam­kyn­hneigðra verða að veru­leika á minni lífs­tíð. Sam­kyn­hneigð var ennþá ólög­leg þá en það eiga sam­kyn­hneigðir menn á Íslandi erfitt með að ímynda sér,“ segir hann.

Ógnað í æsku fyrir að vera hommi

„Að alast upp sam­kyn­hneigður var ógn­vekj­andi fyrir mig. Ég var lam­inn og mér ógnað alla mína æsku og einnig á full­orð­ins­aldri ein­ungis fyrir það að vera sam­kyn­hneigður,“ segir hann. Slíkir atburðir ger­ist ennþá í heima­landi hans og segir Jono að lítið sé rætt um þetta ofbeldi. Vegna þessa sé til­hneig­ing hjá sam­kyn­hneigðum að hópa sig saman og búa jafn­vel í afmörk­uðum hverfum. Skjól sé að finna í fjöld­anum.

„Raun­veru­leik­inn er sá að landið er mun íhaldsam­ara en fólk gerir sér grein fyrir. Þetta er ein­kenni­legt í sam­fé­lagi þar sem reynslan af fjöl­menn­ingu er ein sú besta í heim­inum,“ bætir hann við. Til að styðja þessa full­yrð­ingu bendir hann á að ekk­ert opin­bert tungu­mál sé í Ástralíu þrátt fyrir að auð­vitað tali allir ensku en að almennt sé við­ur­kennt að flestir komi ein­hvers staðar að.

Jono telur að við­horf til sam­kyn­hneigðra muni breyt­ast til muna eftir nið­ur­stöður atkvæða­greiðsl­unnar. „Vegna jafn­réttis til hjóna­bands munu heilu kyn­slóð­irnar vaxa úr grasi vit­andi það að sam­kyn­hneigðir séu venju­legt fólk. Eftir smá tíma verður þetta ekki einu sinni eitt­hvað sem fólk pælir í, heldur bara hluti af líf­inu,“ segir hann.

Árásir og skemmdarverk áberandi undanfarna mánuði

Hann telur mik­il­vægt að hampa stjórn­völdum ekki um of. Árið 2010 hafi sama rík­is­stjórn gert breyt­ingar á lögum um hjóna­band í Ástralíu á tíu dögum án þess að ráð­færa sig við almenn­ing. Í þeim lögum var áfram­hald­andi órétt­læti gagn­vart sam­kyn­hneigðum haldið á lofti. Stjórn­völd hafi þá eytt gríð­ar­legum fjár­munum í að gera könnun á við­horfi almenn­ings þrátt fyrir að vita fyr­ir­fram nið­ur­stöð­una. Á þessum tíma hafi „nei-her­ferðin“ verið und­ir­lögð af hatri og níði gagn­vart sam­kyn­hneigðum þar sem ásak­anir voru á lofti um að það fólk væri barn­a­níð­ingar og fleira í þeim dúr.

„Árásir og skemmd­ar­verk hafa verið áber­andi í land­inu síð­ustu mán­uði og mér hefur reynst þung­bært að fylgj­ast með því,“ segir Jono. Hann telur að hjá þessu hefði verið hægt að kom­ast með því að gera þessar breyt­ingar á lög­unum án atkvæða­greiðslu þar sem breyt­ing­arnar varða ekki einu sinni meiri­hluta kjós­enda. Hjóna­bönd ein­stak­linga eru jú þeirra eigið mál.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár