Viðreisn útilokar ekki samstarf með stjórnarandstöðuflokkunum

Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, segir að hann úti­loki ekki sam­starf með þeim fjórum flokkum sem sátu í stjórn­ar­and­stöðu á síð­asta kjör­tíma­bili, þótt hann hafi bent á að slíkt sam­starf gæti orðið erfitt og flókið. Þetta kom fram í kosn­inga­þætti á RÚV í kvöld. Benedikt hefur áður marg­sinnis úti­lokað að Viðreisn myndi rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki og Fram­sókn­ar­flokki saman.

Að mati Bene­dikts kemur líka alveg til greina að mynda minni­hluta­stjórn en líka að mynda breiða stjórn yfir miðj­una með aðkomu flokka á hægri og vinstri væng stjórn­mál­anna. Þeir flokkar sem eru á sitt hvorum vængnum á þeim skala eru Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Vinstri græn.

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, hefur tekið afar dræmt í það að mynda rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokknum og gerði það aftur í þætt­inum í kvöld. Hún end­ur­tók að lengst væri á milli þeirra flokka í mál­efnum.

Óttarr Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar, sagði nið­ur­stöðu kosn­ing­anna vera ákall um breytt vinnu­brögð og að ólíkt fólk með mis­mun­andi skoð­anir gæti unnið áfram. Hann seg­ist sam­mála Benedikt Jóhann­essyni um að hann vilji rík­is­stjórn með meiri breidd. Í kosn­inga­bar­átt­unni hafi legið tals­vert langt á milli Bjartrar fram­tíðar og núver­andi stjórn­ar­flokka. Það þyrfti því tals­vert að breyt­ast til að þar væru sam­starfs­fletir.

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, end­ur­tók þá skoðun sína að hann ætti að fá stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð í ljósi þess að flokkur hans væri stærstur í öllum kjör­dæmum. Hann sagði nauð­syn­legt að mynda sterka stjórn en sagð­ist þreyttur á því að svara spurn­ingum um hvaða mögu­leikar væru í stöð­unni. Það myndi ein­fald­lega að koma í ljós á næstu dögum.

Birgitta Jóns­dóttir, þing­kona Pírata, sagði að flokkur hennar úti­lok­aði enn sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokki og Fram­sókn­ar­flokki. Eitt meg­in­mark­mið Pírata væri að takast á við spill­ingu og það væri alveg skýrt að flokk­ur­inn gæti ekki unnið í rík­is­stjórn með flokkum þar sem fimm ráð­herrar tók­ust á við spill­ing­ar­mál á síð­asta kjör­tíma­bili. Þar vís­aði hún nær örugg­lega í leka­mál Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur, Orku Energy-mál Illuga Gunn­ars­sonar, Wintris-mál Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og veru Bjarna Bene­dikts­sonar og Ólafar Nordal í Panama­skjöl­unum.

Sigurður Ingi Jóhanns­son, starf­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, var spurður af því hvort flokkur hans myndi taka sæti í rík­is­stjórn stæði það til boða, í ljósi þess að ekki hafi verið yfir lýst yfir miklum áhuga hjá hinum stjórn­mála­flokk­unum að vinna með flokknum. Hann sagð­ist til reiðu búinn og benti á að sam­starf við aðra flokka hefði gengið vel á síð­ustu sex mán­uðum, eftir að hann tók við sem for­sæt­is­ráð­herra.

Oddný Harð­ar­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir að hún myndi aldrei standa í vegi fyrir því að umbóta­stjórn yrði mynduð. Ef Sam­fylk­ingin gæti lagt henni lið þá myndi hún gera það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár