Tók völdin á sögu sinni eftir ofbeldissamband

Eftir að hafa unnið úr ofbeld­is­sam­bandi skil­aði Sunna Axels­dóttir skömminni með því að segja sögu sína. Hún seg­ist hafa verið hrædd við nei­kvæð við­brögð, en fengið gíf­ur­lega mik­inn stuðn­ing úr öllum áttum og tek­ist að loka erf­iðum kafla í lífi sínu með þessum hætti.

„Mig langar til að skila skömminni. Ég hef skamm­ast mín í tæp­lega 8 ár en það eru 6 ár í haust síðan við hættum saman. Ég hef aldrei þorað að tala um reynsl­una mína því ég var svo hrædd um að hann myndi nota það sem afsökun til þess að ráð­ast á mig aftur.“

Svona hefst átak­an­legur pist­ill sem hin 24 ára Sunna Axels­dóttir deildi á Facebook-síðu sinni 16. ágúst sl., en í honum lýsir hún and­legu, lík­am­legu og kyn­ferð­is­legu ofbeldi úr mennta­skóla­sam­bandi.

Í sam­tali við Stundina segir hún að vegur hennar til bata hafi verið langur og að hún hafi á sínum tíma átt erfitt með að ræða málið við vina­hóp­inn þar sem margir tóku hlið fyrr­ver­andi frekar en hennar. Hún segir að við­horf til þolenda ofbeldis hafi gjör­breyst á þessum sex árum og að það hafi komið henni á óvart hvað hún fékk gríð­ar­lega mik­inn stuðn­ing …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár