Yfirsjón ráðuneytis heimilaði afnám kaupskyldu Búmanna

Það var yfir­sjón hjá félags­mála­ráðu­neyt­inu þegar það stað­festi breyt­ingar á sam­þykktum hús­næð­is­sam­vinnu­fé­lags­ins Búmenn árið 2006 og ráðu­neytið hefur enga heim­ild í lögum til að veita slíkum sam­þykktum aukið gildi. Ráð­herr­ann sem sat í ráðu­neyt­inu man ekk­ert eftir því að hafa stað­fest breyt­ing­arnar þrátt fyrir að bréf hafi verið sent til Búmanna fyrir hans hönd þar sem ráðu­neytið stað­festir þær. Á grunni þess­arrar stað­fest­ingar hafa Búmenn neitað að við­ur­kenna kaup­skyldu sína gagn­vart búsettu­rétt­ar­höfum í félag­inu. Þ.e. félagið hefur ekki viljað við­ur­kenna að því beri að kaupa þann hlut sem búsettu­rétt­ar­haf­arnir, sem flestir eru á efri árum, greiddu inn í félagið, til baka þegar þeir vilja kom­ast út úr því aftur.

Og margir vilja nú kom­ast út, enda hafa vondar fjár­fest­ingar á árunum fyrir hrun gert það að verkum að Búmenn eru tækni­lega gjald­þrota og í greiðslu­stöðvun.

Afdrifarík "stemning"


Hug­myndin að baki Búmönnum, sem voru stofn­aðir árið 1998, var sú að búa til hús­næð­is­sam­vinnu­fé­lag sem byggði íbúðir fyrir 50 ára og eldri. Íbúarnir áttu sjálfir að greiða 10-30 pró­sent af bygg­ing­ar­kostn­að­inum en Búmenn að taka lán hjá Íbúða­lána­sjóði til 50 ára fyrir því sem vant­aði upp á til greiða greiða verk­tak­anum sem byggir hús­næðið. Félagið sendir síðan íbúum mán­að­ar­legan greiðslu­seðil vegna þeirra gjalda sem falla mán­að­ar­lega á híbýli þeirra. Á meðal þess sem er inni­falið í þeirri greiðslu eru afborg­anir lána, fast­eigna­gjöld, trygg­ingar, við­halds­sjóður, hús­sjóður og þjón­ustu­gjald. Rekst­ur­inn er ekki ágóða­starf­semi. Það er því eng­inn að taka arð út úr félag­inu.

Árið 2003 voru sett ný lög um hús­næð­is­sam­vinnu­fé­lög. Í þeim var opnað fyrir þann mögu­leika að búsetu­rétt­hafar gætu sagt upp búsetu­rétti sínum með sex mán­aða fyr­ir­vara. Ef ekki tæk­ist að selja búsetu­rétt­inn átti rétt­haf­inn rétt á því að fá hann greiddan frá hús­næði­sam­vinnu­fé­lag­inu tólf mán­uðum eftir að þeir sex mán­uðir voru liðnir. Virði rétt­ar­ins upp­færð­ist á þessum tíma í takt við vísi­tölu neyslu­verðs.

Í sam­tali við Kjarnann í sept­em­ber 2013 sagði Daníel Haf­steins­son, fram­kvæmda­stjóri Búmanna, að „stemn­ing“ hefði mynd­ast á meðal félaga innan Búmanna um að breyta þessu fyr­ir­komu­lagi. Fólki hafi fund­ist vísi­tala neyslu­verðs ekki hafa mælt nægi­lega vel hækkun á hús­næð­is­verði.

Magnús Stefánsson man ekkert eftir staðfestingu


Á aðal­fundi Búmanna árið 2006 var því sam­þykkt að breyta sam­þykktum félags­ins á þann veg að kaup­skylda þess yrði afnumin og að heim­ilt yrði að selja búsetu­rétt á mark­aðs­verði. Þetta þýddi í raun að Búmönnum bar ekki lengur nokkur skylda til að kaupa búsetu­rétt af þeim félags­mönnum sem vildu losna úr íbúðum sínum. Þess í stað þurftu félags­menn­irnir sjálfir að selja búsetu­rétt­inn á frjálsum mark­aði, og á mark­aðs­verði, eða gera aðrar ráð­staf­anir gengi það ekki eftir.

Til að ganga úr skugga um að Búmönnum væri stætt á þess­ari breyt­ingu var sent inn erindi til félags­mála­ráðu­neyt­is­ins.

Þann 29. ágúst 2006 svar­aði það með bréfi stílað á Daníel Haf­steins­son, fram­kvæmda­stjóra Búmanna. Í bréf­inu, sem Kjarninn hefur undir höndum, er honum til­kynnt að ráðu­neytið stað­festi sam­þykktar breyt­ingar á sam­þykktum Búmanna sem feli í sér að „afnema kaup­skyldu félags­ins og að heim­ilt sé að selja búsettu­rétt á svo­nefndu mark­aðs­verði“.

[caption id="attachment_38351" align="alignnone" width="768"] Bréfið sem sent var til Búmanna vegna stað­fest­ingar ráðu­neyt­is­ins. Líkt og sést á mynd­inni var það sent fyrir hönd ráð­herra. Magnús Stef­áns­son, þáver­andi félags­mála­ráð­herra, man hins vegar ekk­ert eftir mál­inu.[/caption]

Bréfið sem sent var til Búmanna vegna staðfestingar ráðuneytisins. Líkt og sést á myndinni var það sent fyrir hönd ráðherra. Magnús Stefánsson, þáverandi félagsmálaráðherra, man hins vegar ekkert eftir málinu.
Bréfið sem sent var til Búmanna vegna stað­fest­ingar ráðu­neyt­is­ins. Líkt og sést á mynd­inni var það sent fyrir hönd ráð­herra. Magnús Stef­áns­son, þáver­andi félags­mála­ráð­herra, man hins vegar ekk­ert eftir mál­inu.

Undir bréfið skrifar þáver­andi skrif­stofu­stjóri í félags­mála­ráðu­neyt­inu „fyrir hönd ráð­herra“. Kjarninn hafði sam­band við Magnús Stef­áns­son, þáver­andi félags­mála­ráð­herra ,vegna máls­ins og spurði hann hvort að Magnús hefði sam­þykkt að stað­festa umræddar breyt­ingar. Magnús sagð­ist ekk­ert muna eftir mál­inu. Hann gat því ekki sagt af eða á um hvort stað­fest­ing ráðu­neyt­is­ins hefði verið gefin með hans sam­þykki eða ekki.

Vondar fjárfestingar skila félaginu í greiðslustöðvun


Eftir hrun hafa Búmenn glímt við mikla greiðslu­erf­ið­leika heim­ild félags­ins til greiðslu­stöðv­unar var sam­þykkt af hér­aðs­dómi Reykja­víkur í maí síð­ast­liðnum. Í lok árs 2014 var eigið fé félags­ins enda orðið nei­kvætt um 540 millj­ónir króna. Vandræði Búmanna eru fyrst og síð­ast til komin vegna fram­kvæmda sem félagið ákvað að ráð­ast í á Suð­ur­nesjum og í Hvera­gerði fyrir hrun. Þær íbúðir, en alls eru 38 pró­sent eigna Búmanna á þessum tveimur svæðum, hafa selst illa og tekjur því alls ekki verið í sam­ræmi við það sem þarf til svo hægt sé að þjón­usta lánin sem tekin voru til að byggja þær. Enda hefur hús­næð­is­mark­að­ur­inn á þessum svæðum, sér­stak­lega á Suð­ur­nesjum, verið afleitur eftir hrun.

Í glæru­kynn­ingu sem sýnd var á kröfu­hafa­fundi í lok maí sagði meðal ann­ars: „Fjár­hags­vandi Búmanna er umtals­verður og fyr­ir­sjá­an­legt að félagið mun ekki geta staðið við skuld­bind­ingar sínar að óbreyttu[...] Ljóst er að félagið mun ekki geta staðið af sér fjár­hags­vand­ann nema til komi breytt upp­gjörs­fyr­ir­komu­lag gagn­vart búsetu­rétt­ar­höfum ann­ars vegar og afskrift hluta af veð­skuldum frá ÍLS hins vegar“.

[quote font="0" align="right"]Á manna­máli þýðir þetta að kaup­skyldu Búmanna á hlut þeirra sem búa í húsum félags­ins en vilja það ekki lengur, verði afnumin.[/quote]

Til að leysa þennan vanda þarf, að mati for­svars­manna Búmanna, tvennt að ger­ast. Annars vegar að flytja eignir með lak­ari nyt­ingu, sem minnst var á hér að ofan, yfir í leigu­fé­lag gegn því að Íbúða­lána­sjóður létti á greiðslu­byrði vegna þeirra. Hins vegar er það sem kallað er „breytt upp­gjörs­fyr­ir­komu­lag búsetu­réttar með inn­lausn­ar­skyldu“. Á manna­máli þýðir þetta að kaup­skyldu Búmanna á hlut þeirra sem búa í húsum félags­ins en vilja það ekki lengur, verði afnumin.

Búseturétthafar telja sig blekkta


Þetta hefur lagst ákaf­lega illa í búsetu­rétt­hafa, þ.e. að afnema eigi kaup­skyld­una. Gunnar Krist­ins­son, for­maður vinnu­hóps á vegum búsetu­rétt­hafa, sagði í fréttum RÚV í maí að verið væri að blekkja búsetu­rétt­hafa. „Vegna þess að það eru margar sögur um það að fólki finn­ist stjórn Búmanna og starfs­menn hafa blekkt búsetu­hafa. Bæði þá sem hafa verið að kaupa sig inn í íbúðir á síð­asta ári þar sem þeir hafa fengið upp­lýs­ingar um að það sé allt í góðu lagi með ástandið á Búmönnum. Og síðan þetta fólk sem hefur gert þessa samn­inga við Búmenn um þessa kaup­skyldu sem orðið hefur til þess að fólkið kom inn í þetta kerfi.“

Þessi bar­áttu milli búsetu­hafa og for­svars­manna Búmanna um hvort félagið sé skylt til að end­ur­greiða búsetu­rétt­ar­gjald þegar íbúi vill flytja út úr hús­næði á vegum þess. Kjarninn greindi frá því í sept­em­ber 2013 að Guðlaug Gunn­ars­dóttir hefði sagt upp samn­ingi sínum við Búmenn í byrjun þess árs og vildi fá end­ur­greitt. Búmenn höfn­uðu upp­sögn hennar og í bréfi frá fram­kvæmda­stjóra félags­ins kom fram að litið væri á samn­ing Guð­laugar væri óupp­segj­an­legur. Kaup­skylda væri ein­fald­lega ekki fyrir hendi og vísað var í sam­þykkt­irnar sem stjórn félags­ins hafði sam­þykkt 2006, og félags­mála­ráðu­neytið stað­festi.

Annað hljóð í ráðuneytið


Búsetu­rétt­ar­haf­arnir hafa ekki viljað una þess­ari afstöðu og hafa leitað skýr­inga hjá félags- og hús­næð­is­ráðu­neyt­inu. Í sumar barst síðan Gunnari Krist­ins­syni, for­manni vinnu­hóps búsetu­rétt­ar­hafa, bréf frá lög­fræð­ingi ráðu­neyt­is­ins þar sem segir meðal ann­ars að það sé ekki mælt fyrir um það í hús­næð­is­sam­vinnu­fé­lög að ráðu­neytið skuli stað­festa breyt­ingar á sam­þykktum hús­næð­is­sam­vinnu­fé­laga sem til­kynntar eru ráðu­neyt­inu. „Það er því mat ráðu­neyt­is­ins að það hafi ekki heim­ild að lögum til að fjalla um breyt­ingar á sam­þykktum hús­næð­is­sam­vinnu­fé­laga. Verður þannig að líta svo á að um yfir­sjón hafi verið að ræða af hálfu ráðu­neyt­is­ins að stað­festa breyt­ingar á sam­þykktum Búmanna hsf.“.

IMG_1513
IMG_1513
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár