Krakk og kaupstaðalykt í Toronto

Rob Ford, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri Toronto-borgar, lést í dag, 46 ára að aldri. Þegar hneyksl­is­mál Ford voru í hámæli fyrir tæpum þremur árum skrif­aði Guð­mundur Kristján Jónsson í Kanada þessa stór­skemmti­legu frétta­skýr­ingu um Ford, sem Kjarninn end­ur­birtir hér að neðan.

Það gustar um Rob Ford borg­ar­stjóra Toronto um þessar mundir. Lög­reglan í þess­ari fjórðu stærstu borg Norður Ameríku hefur eftir viða­mikla rann­sókn og aðgerðir undir höndum mynd­band þar sem Ford sést reykja krakk í vafasömum félags­skap nafn­greindra glæpa­manna. Annað mynd­band, þar sem hann hótar óþekktum ein­stak­lingi hrotta­legu líf­láti fer eins og eldur um sinu í netheimum. Þrátt fyrir að krakk-reyk­inga-mynd­bandið hafi ekki enn borist fyrir sjónir almenn­ings hefur Ford við­ur­kennt verkn­að­inn og segir hann hafa átt sér stað í ölæði. Raunar hefur Ford ítrekað borið fyrir sig ölæði þegar ýmis umdeild mál honum tengdum hafa komið upp en fer­ill hans sem stjórn­mála­maður hefur óneit­an­lega verið skraut­legur í gegnum tíð­ina.

Rob Ford hefur verið borg­ar­full­trúi úthverf­is­ins Etobicoke síðan árið 2000 og gegnt emb­ætti borg­ar­stjóra síðan í októ­ber 2010 eftir að hafa hlotið rúm­lega 47 pró­sent atkvæða. Sem borg­ar­full­trúi lagði hann einkum áherslur á að reisa versl­un­ar­mið­stöðvar og stórar mat­vöru­versl­ana­keðjur vítt og breitt um kjör­dæmi sitt, sem og að draga úr hlunn­indum opin­bera starfs­manna og auka lög­gæslu. Sem borg­ar­stjóri hefur hann lagt megin áherslu á að starfa í þágu skatt­greið­enda, einkum og sér í lagi bíl­eig­enda. Meðal hans fyrstu verka var að afnema ýmis gjöld og reglu­gerðir sem for­veri hans í starfi, David Miller, hafði komið á til að sporna við síauk­inni bíla­um­ferð í borg­inni. Ford hefur einnig sagt upp fjölda opin­bera starfs­manna með ýmiss­konar einka­væð­ing­ar­að­gerðum, einkum í tengslum við þrif og sorp­hirðu.

Allt frá árinu 2006, þegar Ford var vísað út af íshokkíleik vegna dólg­sláta hafa hneyksl­is­mál af ýmsum toga fylgt Ford líkt og skugg­inn. Í maí 2008 kærði eig­in­kona hans hann fyrir lík­ams­meið­ingar og hót­anir og árið 2010 kom á dag­inn að hann hafði verið hand­tek­inn fyrir ölv­un­arakstur og varð­veislu fíkni­efna í Flórída árið 1999. Í öllum til­vikum neit­aði Ford sök, en neydd­ist síðan til að játa upp á sig sök­ina þegar sönn­un­ar­gögn í formi lög­reglu­skýrslna, ljós­mynda og mynd­skeiða litu dags­ins ljós. Hann hefur reyndar alla tíð neitað ásök­unum eig­in­konu sinnar um meint heim­il­is­of­beldi en málið var að end­ingu látið niður falla og þau eru enn gift.

Árið 2012 var Ford dæmdur til að segja af sér sem borg­ar­stjóri eftir að hafa brotið siða­reglur Toronto­borgar, sem hann við­ur­kenndi fyrir dómi að hafa aldrei kynnt sér. Málið tengd­ist ýmsum íviln­unum sem mennta­skóla-ruðn­ings­liðið Don Bosco Eagles sem Ford þjálf­aði naut. Liðið hafði fengið ýmsa styrki frá borg­inni auk þess sem Ford nýtti sér starfs­menn borg­ar­innar, stræt­is­vagna og bréfs­efni í þágu liðs­ins. Eftir margra mán­aða áfrýj­un­ar­rétt­ar­höld úrskurð­aði áfrý­un­ar­dóm­stóll að Ford þyrfti ekki að segja af sér þrátt fyrir ítrekuð brot á siða­reglum borg­ar­innar. Ford lét hins­vegar loks af störfum sem þjálf­ari ruðn­ings­liðs­ins í maí síð­ast­liðnum eftir að hafa ítrekað sleppt borg­ar­ráðs­fundum og van­virt skyldur sínar sem borg­ar­stjóri til að sinna þjálfun liðs­ins og mæta á kapp­leiki. Ofan á allt saman kom loks í ljós í febr­úar á þessu ári að Ford þver­braut ýmsar fjár­mála­reglur í aðdrag­anda síð­ustu kosn­inga og eyddi bæði upp­hæðum umfram leyfi­legt hámark í aug­lýs­ingar auk þess sem að of stór hluti þeirra fjár­muna sem hann afl­aði í kosn­inga­bar­átt­unni kom frá stór­fyr­ir­tæki fjöl­skyld­unnar, Deco Labels and Tags sem sér­hæfir sig í prent­lausnum og veltir millj­örðum á ári.

Hér er ein­ungis stiklað á stóru, en storma­samur fer­ill Ford er nú í hámæli vegna játn­inga hans á neyslu eit­ur­lyfja eftir margra mán­aða afneitun. Borg­ar­stjór­inn, sem ítrekað hefur lýst yfir stríði gegnum glæpum og eit­ur­lyfjum, hefur verið undir stöð­ugu eft­ir­liti lög­reglu á láði og úr lofti vegna meintra eit­ur­lyfja­mis­ferla sinna og hefur lög­reglan undir höndum mikið magn myndefnis þar sem hann sést í félags­skap eit­ur­lyfja­sala og dæmdra glæpa­manna. Enn er óljóst hvað lög­reglan hyggst fyrir, en það er talið mögu­legt að Ford verði birtar ákærur fyrir eit­ur­lyfja­mis­ferli í náinni fram­tíð. Ford stendur hins­vegar keikur og neitar að segja af sér, enda mælist hann ennþá með um 40 pró­sent fylgi og er tal­inn lík­legur til að ná end­ur­kjöri í kom­andi kosn­ingum árið 2014.

En hvernig má það vera að jafn breiskur maður og Ford haldi velli sem borg­ar­stjóri stærstu borgar fyr­ir­mynd­ar­lands­ins Kanada þegar hneyksl­is­málin honum tengdum gætu fyllt heila bók? Skýr­ing­una má finna í póli­tísku lands­lagi Toronto eftir að nágranna­sveit­ar­fé­lög voru sam­einuð í eitt kjör­dæmi árið1998. Úthverfin sem þá runnu saman í eitt við hinn eig­in­lega Toronto-kjarna mynd­uðu skyndi­lega tvo þriðju atkvæða borg­ar­innar, og þar sækir Ford nær allt sitt fylgi.

And­stæð­ingar Fords búa flestir mið­svæðis og eru vel mennt­aðir og efn­aðir. Þeir nýta sér almenn­ings­sam­göngur og hjól­reiðar og búa í dýrum hús­næðum. Stuðn­ings­menn Ford, eða Ford-þjóðin eins og þeir eru jafnan kall­aðir eru hins­vegar að stórum hluta fyrstu kyn­slóður inn­flytj­endur og verka­fólk af erlendum upp­runa. Flestir eiga þeir það sam­eig­in­legt að vera bíl­eig­endur og búa í úthverfum. Hluti þeirra er efn­aður en flestir hafa tak­mark­aða menntun. Álögur á hús­næði á bíla skiptir Ford-þjóð­ina öllu máli og í þeim efnum hefur borg­ar­stjór­inn engan svikið, enda hafa bif­reiða- og hús­næð­is­gjöld lækkað umtals­vert í borg­ar­stjóra­tíð Ford.

Póli­tíska lands­lagið í Toronto er ugg­væn­legt og ein­kenn­ist af mik­illi stétt­ar­skipt­ingu á meðal kjós­enda. Virð­ing­ar­leysið og tog­streitan á milli íbúa mis­mun­andi borg­ar­hluta er nær algjört, og á meðan glæpa­tíðni eykst í úthverf­unum fjölgar líf­rænum kaffi­húsum í mið­bænum þar sem fyr­ir­mynd­ar­borg­arnir koma saman og ræða um hinn alræmda borg­ar­stjóra. Ford-þjóðin sakar mennta­fólkið í mið­bænum um elítu­isma og hroka og skyldi engan undra. Á meðan hús­næð­is­verð í mið­bænum hækkar jafnt og þétt, hrökkl­ast hinir efna­minni út í úthverfin þar sem fátækt og glæpa­tíðni eykst með ári hverju. Toronto hefur verið skipt í tvo menn­ing­ar­heima; úthverfin og mið­borg­ina - sem aug­lýst er í glans­tíma­ritum og dregur að ferða­menn. Í fljótu bragði mætti draga þá ályktun að Ford-þjóðin sé svo gegn­um­sýrð af neyslu­hyggju og ver­ald­legum gæðum að hún skilji á milli per­són­unar og stjórn­mála­manns­ins. Á meðan að stjórn­mála­mað­ur­inn haldi sköttum í lág­marki þá skiptir engu hvort að hann reyki krakk og berji kon­una sína. Svo er hins­vegar ekki, því fylgj­endur Fords eru að stórum hluta minni­hluta­hópar með tak­mark­aða inn­komu. Þeir kjósa Ford vegna þess að þeir telja sig ekki eiga sam­leið með þeim þriðj­ungi íbúa Toronto sem býr mið­svæðis og vill setja umhverfis- og sam­göngu­mál á odd­inn í skipu­lagi borg­ar­innar. Ford-þjóð­inni er alveg sama um orð­spor Toronto því hún upp­lifir Toronto vera alveg sama um sig.

Vanda­málið í Toronto er mun stærra og alvar­legra en einn krakk­reykj­andi borg­ar­stjóri og einnig mun flókn­ara en svo að sam­ein­ing eða sundr­ung sveit­ar­fé­laga fái það leyst. Vandi Toronto felst í stétta­skipt­ingu og sam­skipta­leysi sem skipt hefur millj­óna sam­fé­lagi í tvær and­stæðar fylk­ingar, lit­aðar af kyn­þátta­for­dómum og virð­ing­ar­leysi í garð hvors ann­ars. Á meðan bein­ist hins­vegar kast­ljós fjöl­miðla nær ein­göngu að sorg­legri hegðun borg­ar­stjór­ans sem hefur enga stjórn á sjálfum sér og hvað þá Toronto borg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár