Mikill meirihluti Íslendinga mótfallinn einkarekstri í heilbrigðiskerfinu

Rúmlega 80 pró­sent lands­manna vilja að hið opin­bera reki sjúkra­húsin og tveir af hverjum þremur vilja að ríki eða sveit­ar­fé­lög reki heilsu­gæslu­stöðvar lands­ins. Þetta er nið­ur­staða nýrrar könn­unar sem kostuð var af BSRB.

Alls vilja 81,34 pró­sent lands­manna að hið opin­bera, ríki og sveit­ar­fé­lög, reki sjúkra­hús lands­ins. Einungis 1,6 pró­sent vilja að einka­að­ilar reki sjúkra­húsin fyrst og fremst. Þá vilja 67,6 pró­sent þjóð­ar­innar, rúm­lega tveir af hverjum þremur lands­mönnum, að hið opin­bera reki heilsu­gæslu­stöðvar lands­ins. Einungis 3,3 pró­sent vilja að einka­að­ilar sjái einir um þann rekstur. Rúmur meiri­hluti Íslend­inga, 58,4 pró­sent, er þeirrar skoð­unar að hið opin­bera eigi eitt að reka hjúkr­un­ar­heim­ili lands­ins, en ein­ungis 3,3 pró­sent aðspurðra telur að einka­að­ilar eigi alfarið að sjá um rekstur þeirra.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í skoð­ana­könnun sem Félags­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands gerði fyrir Rúnar Vil­hjálms­son, pró­fessor í félags­fræði við Háskóla Íslands. Kostn­aður við gerð könn­un­ar­innar var greiddur af BSRB.

Könnunin var gerð í mars 2021. Alls svör­uðu 842 með­limir í net­panel Félags­vís­inda­stofn­unar könn­un­inni, um 43 pró­sent þeirra sem fengu könn­un­ina. Net­pan­ell­inn bygg­ist á til­vilj­un­ar­úr­taki úr þjóð­skrá og er tryggt að dreif­ing ald­urs, kyns, búsetu, mennt­unar og tekna sé sem lík­ust því sem ger­ist meðal lands­manna.

[adspot]Nið­ur­staða könn­un­ar­innar var kynnt á opnum fundi BSRB sem hófst klukkan 11 í dag og ber yfir­skrift­ina „Rekstur og fjár­mögnun íslenska heil­brigð­is­kerf­is­ins – Hvað vill þjóðin?“

Ekki mikill áhugi á blönduðum rekstri

Ekki virð­ist vera mik­ill salur fyrir blönd­uðum rekstri helstu heil­brigð­is­stofn­ana sam­kvæmt nið­ur­stöðu könn­un­ar­innar. Einungis 17,1 pró­sent aðspurðra taldi að einka­að­ilar og hið opin­bera ættu til jafns að reka sjúkra­hús og 29,2 pró­sent töldu að þessi tvö ólíku rekstr­ar­form ættu að við­gang­ast í rekstri heilsu­gæslu­stöðva.

Þegar spurt var um rekstur hjúkr­un­ar­heim­ila var meiri áhugi á blönd­unum rekstri en á hinum tveimur teg­undum heil­brigð­is­stofn­ana, en 37,9 pró­sent lands­manna töldu að einka­að­ilar og opin­berir aðilar ættu að reka hjúkr­un­ar­heim­ili lands­ins.

Á Íslandi í dag fyr­ir­finnst bland­aður rekstur á flestum sviðum heil­brigð­is­þjón­ustu. Reknar eru lækna­mið­stöðvar í einka­eigu þar sem meðal ann­ars eru fram­kvæmdar aðgerðir, hluti hjúkr­un­ar­heim­ila eru í eigu ann­arra en hins opin­bera og sömu sögu er að segja af heilsu­gæslu­stöðvum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár