Jón vill byrja að byggja flugstöð í Vatnsmýri á næsta ári

Samgöngu- og sveita­stjórn­ar­ráð­herra segir að mið­stöð inn­an­lands­flugs sé í Vatns­mýr­inni. Hann ætlar að skipa nýjan starfs­hóp sem á að kanna það sama og Rögnu­nefndin, en hafa full­trúa lands­byggðar inn­an­borðs.

Jón Gunnarsson er samgönguráðherra.
Jón Gunn­ars­son er sam­göngu­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Jón Gunn­ars­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, segir að í hans huga sé mið­stöð inn­an­lands­flugs í Vatns­mýri. Hann hyggst skipa starfs­hóp sem falið verður að meta flug­vall­ar­kosti fyrir inn­an­lands­flug og ætlar að hafa full­trúa lands­byggð­ar­innar í þeim hópi. Ráð­herr­ann von­ast til þess að hægt verði að hefja fram­kvæmdir við nýja flug­stöð í Vatns­mýri á næsta ári. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu í dag.

[links]

Hópur var skip­aður fyrir nokkrum árum síðan til að fara yfir fram­tíð inn­an­lands­flugs og hann skil­aði skýrslu 2015. Hann var undir stjórn Rögnu Árna­dóttur og nefndin hefur ætið verið kölluð Rögnu­nefndin. Nið­ur­staðan þeirrar nefndar var að Hvassa­hraun væri álit­leg­asti kost­ur­inn fyrir inn­an­lands­flug fram­tíðar. Und­an­farið hefur Morg­un­blaðið sagt fréttir af því að for­maður Svæð­is­skipu­lags Suð­ur­nesja telji Hvassa­hraun ekki henta undir flug­völl þar sem þar sé helsta vatns­vernd­ar­svæði Suð­ur­nesja. Icelandair Group hefur staðið fyrir próf­unum í Hvassa­hrauni til að kanna hversu vel svæðið hentar fyrir nýjan flug­völl. Þeim próf­unum er ekki lokið. Björgólfur Jóhanns­son, for­stjóri Icelandair, segir við Morg­un­blaðið að félagið viti af þessum sjón­ar­miðum en telji samt sem áður mögu­legt að byggja flug­völl í Hvassa­hrauni. Hann tekur það þó sér­stak­lega fram að Icelandair muni ekki byggja flug­völl­inn og ð það sé póli­tísk ákvörðun um hvort hann verði byggður þarna eða ekki.

Reykjavík vill flugvöllinn burt eftir 2022

Ekki hefur verið ein­hugur um hvort að mið­stöð inn­an­lands­flugs verði áfram í Vatns­mýr­inni í Reykja­vík eða verði færð ann­að. Reykja­vík­ur­borg hefur lengi viljað að flug­völl­ur­inn verði færður svo hægt sé að byggja í Vatns­mýr­inni og þétta þar með höf­uð­borg­ina. Um sér að ræða verð­mætasta bygg­ing­ar­landið innan marka hennar sem sé auk þess afar mik­il­vægt fyrir þróun henn­ar.

[adspot]

Sam­kvæmt sam­göngu­á­ætlun er gert ráð fyrir að flug­völl­ur­inn verði þar sem hann er til 2022 en aðal­skipu­lag Reykja­vík­ur­borgar gerir ráð fyrir að hann víki í áföngum eftir það ár. Í fyrra­sumar komst Hæsti­réttur Íslands að þeirri nið­ur­stöðu að íslenska ríkið þurfi að standa við sam­komu­lag sitt við Reykja­vík­ur­borg um loka norð­aust­­ur/suð­vest­­ur­-flug­braut­inni, sem stundum er kölluð neyð­­ar­braut­in, á Reykja­vík­ur­flug­velli.

Fá ekki hljómgrunn hjá samstarfsflokkum

Nýjar yfir­lýs­ingar Jóns munu lík­ast til ekki hljóta mik­inn hljóm­grunn hjá sam­starfs­flokkum Sjálf­stæð­is­flokks í rík­is­stjórn, Bjartri fram­tíð og Viðreisn. Ráð­herrar Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar eru á þeirri skoðun að skipu­lags­vald yfir Vatns­mýr­inni, og þar með Reykja­vík­ur­flug­velli, eigi að liggja hjá Reykja­vík­ur­borg. Auk þess er Björt fram­tíð hluti af meiri­hluta­sam­starfi í Reykja­vík­ur­borg sem hefur mjög skýra stefnu um að flug­völl­ur­inn eigi ekki að vera í Vatns­mýri til fram­tíðar.

Í stefnu­yf­ir­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­innar kom fram að rík­is­stjórnin muni „beita sér fyrir lausn á ára­tuga­deilu um fram­tíð Reykja­vík­ur­flug­vallar með því að stofna til form­legra við­ræðna sam­göngu­yf­ir­valda, heil­brigð­is­yf­ir­valda, Reykja­vík­ur­borg­ar, ann­arra sveit­ar­fé­laga og hags­muna­að­ila. Tekin verði ákvörðun um fyr­ir­liggj­andi kosti að und­an­gengnu mati og inn­viðir inn­an­lands- og sjúkra­flugs þannig tryggðir til fram­tíð­ar.“

Þegar hafa komið upp deilur milli stjórn­ar­liða vegna fram­tíðar Reykja­vík­ur­flug­vallar á þessu kjör­tíma­bili. Það gerð­ist raunar sama dag og rík­is­stjórnin tók við. Þá sagði Jón Gunn­ars­son við Vísi að eng­inn önnur lausn væri í stöð­unni en að Reykja­vík­ur­flug­völlur yrði áfram í Vatns­mýr­inni. Daginn eftir end­ur­tók hann þessa skoðun og úti­lok­aði ekki inn­grip í skipu­lags­vald Reykja­vík­ur­borgar í mál­inu. Nokkrum dögum síðar steig Njáll Trausti Frið­berts­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, fram að sagði að flug­völl­ur­inn ætti að vera áfram í Vatns­mýr­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár