Ríkisstjórnin ekki fyrsti kostur og vill flugvöllinn í Vatnsmýrinni

Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar.
Rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Njáll Trausti Frið­berts­son, nýkjör­inn þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, segir að sú rík­is­stjórn sem flokkur hans mynd­aði með Viðreisn og Bjartri fram­tíð hafi ekki verið hans fyrsti kostur. Hann seg­ist þó sætta sig við nið­ur­stöð­una en tekur undir þau sjón­ar­mið að rík­is­stjórnin hafi um of yfir sér svip höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Njáll segir enn fremur að íslensk stjórn­sýsla hafi brugð­ist almanna- og örygg­is­hags­munum í mál­efnum Reykja­vík­ur­flug­vallar, til dæmis með lokun hinnar svoköll­uðu neyð­ar­brautar. Flug­völl­ur­inn eigi að vera í Vatns­mýr­inni. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu í dag.

Nokkur ágrein­ings­mál hafa þegar komið upp í tengslum við myndun nýrrar rík­is­stjórnar Bjarna Bene­dikts­sonar, sem tók við völdum um miðja síð­ustu viku. Páll Magn­ús­son, odd­viti Sjálf­stæð­is­manna í Suð­ur­kjör­dæmi, greiddi ekki atkvæði með stjórn­ar­sátt­mála hennar þegar fyrir lá að hann yrði ekki ráð­herra. Um helg­ina sagð­ist Páll líta svo á að for­maður flokks­ins hafi gert mis­tök í ráð­herra­vali sínu. Hann hljóti sem skyn­samur maður að leið­rétta þau.

Jón Gunn­ars­son, sem er m.a. ráð­herra sam­göngu­mála, sagði við Vísi í síð­ustu viku að eng­inn önnur lausn sé í stöð­unni en að Reykja­vík­ur­flug­völlur verði áfram í Vatns­mýr­inni. Hann end­ur­tók þá skoðun í Morg­un­út­varpi Rásar 2 á fimmtu­dag og úti­lok­aði þar ekki inn­grip í skipu­lags­vald Reykja­vík­ur­borgar í mál­inu. „„Það eru mörg for­dæmi fyrir því að stjórn­völd hafa gripið inn í skipu­lags­vald sveit­ar­fé­laga þegar almanna­hags­munir liggja við. Þær skyldur sem við berum gagn­vart þessu mik­il­væga sam­göngu­mann­virki geta alveg rétt­lætt það ef við náum ekki sam­komu­lagi. Í þessu felst engin hótun af minni hálfu. Það hefur blasað við okkur öllum að þetta hefur gengið erf­ið­lega, að ná ásætt­an­legri nið­ur­stöð­u,“ sagði Jón.

Ráð­herrar Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar eru á önd­verðri skoðun og telja að skipu­lags­vald yfir Vatns­mýr­inni, og þar með Reykja­vík­ur­flug­velli, eigi að liggja hjá Reykja­vík­ur­borg, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans. Eng­inn vilji er hjá þeim að víkja frá fyr­ir­liggj­andi stefnu til að tryggja veru Reykja­vík­ur­flug­vallar í Vatns­mýr­inni til fram­búð­ar, en hann á sam­kvæmt aðal­skipu­lagi að víkja í skrefum eftir árið 2022. Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík, sagði við Kjarnann í síð­ustu viku að miðað við fyrstu yfir­lýs­ingar nýs ráð­herra sam­göngu­mála um Reykja­vík­ur­flug­völl megi velta því fyrir sér hvort eitt­hvað sé að marka stjórn­ar­sátt­mála nýrrar rík­is­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíð­ar.

Njáll, sem er þing­maður Norð­aust­ur­kjör­dæmis, segir við Morg­un­blaðið að ráð­herrar nýrrar rík­is­stjórnar hafi verk að vinna að sýna að þeir starfi fyrir landið allt. Hann telur veru Reykja­vík­ur­flug­vallar í Vatns­mýr­inni ekki vera ágrein­ings­mál. „Meiri­hluti þjóð­ar­innar vill að flug­völlur sé áfram í Vatns­mýri. Það verður að segj­ast að mér hefur fund­ist íslensk stjórn­sýsla hafa brugð­ist almanna- og örygg­is­hags­munum í þessu máli, svo sem með lokun neyð­ar­braut­ar­innar sem svo er kölluð. Ég held að það sé kom­inn tími til að skoða hvernig tekið er á svona málum meðal nágranna­þjóða okkar, eins og t.d. í Svíþjóð þar sem flugið er líkt og hér mik­il­vægur sam­göngu­máti.“ Í Svíþjóð skil­greinir sænska sam­göngu­stofan, Trafikverket, hvaða flug­vellir lands­ins heyri undir þjóð­ar­hags­muni og hún hefur ákvörð­un­ar­vald yfir þeim. Skipu­lags­vald yfir flug­völlum sem varða þjóð­ar­hags­muni liggur því hvorki hjá sænska þing­inu né sveit­ar­fé­lögum, heldur rík­is­stofnun, sam­kvæmt frétt RÚV frá því í júní 2015.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár