Evrópumálin það sem helst stendur í vegi fyrir stjórnarmyndun

Bjarni Benediktsson fékk stjórnarmyndunarumboð hjá Guðna Th. Jóhannessyni í síðustu viku. Hann mun skila því dragist ekki saman með Sjálfstæðisflokki og Viðreisn og Bjartri framtíð í dag.
Bjarni Bene­dikts­son fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð hjá Guðna Th. Jóhann­essyni í síð­ustu viku. Hann mun skila því drag­ist ekki saman með Sjálf­stæð­is­flokki og Viðreisn og Bjartri fram­tíð í dag. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Evr­ópu­málin eru helsti ásteyt­ing­ar­steinn­inn í við­ræðum Sjálf­stæð­is­flokks ann­ars vegar og Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar hins vegar um myndun nýrrar rík­is­stjórnar. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans hefur mynd­ast umræðu­grund­völlur fyrir breyt­ingar í sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­málum sem allir aðilar geta sætt sig við að byggja form­legar umræður á en í Evr­ópu­málum virð­ist eng­inn til­bú­inn að gefa neitt eftir.

Það er yfir­lýst stefna Sjálf­stæð­is­flokks­ins að ganga ekki inn í Evr­ópu­sam­bandið og flokk­ur­inn stóð að því að draga umsókn Íslands að því til baka ásamt Fram­sókn­ar­flokki á síð­asta kjör­tíma­bili. Fjórir af þeim sex þing­mönnum Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem leiddu kjör­dæmi flokks­ins fyrir síð­ustu kosn­ingar, þar á meðal for­mað­ur­inn Bjarni Bene­dikts­son, höfðu hins vegar lof­að því að áfram­hald við­ræðna um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu yrði sett í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu á kjör­tíma­bil­inu. Allir fjórir urðu síðar ráð­herrar í þeirri rík­is­stjórn sem tók við völdum vorið 2013. Engir fyr­ir­varar um meiri­hluta á Alþingi, meiri­hluta innan rík­is­stjórnar eða sýni­legan þjóð­ar­vilja í skoð­ana­könn­unum voru settir fram. Bjarni Bene­dikts­son sagði það reyndar oftar en nokkur annar Sjálf­stæð­is­maður að þjóð­ar­at­kvæðið myndi fara fram og að flokkur hans myndi standa við það. Þegar kom að því að draga umsókn­ina til baka, og gera þá án þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu, bar Bjarni fyrir sig „póli­tískan ómögu­leika“ þess að halda slíka í ljósi þess að báðir þáver­andi stjórn­ar­flokkar voru and­vígir aðild. Við þá línu hefur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn haldið sig alla tíð síðan og eng­inn vilji virð­ist til að gefa neitt eftir varð­andi hana.

Viðreisn varð til út úr þeim óró­leika og mót­mælum sem fylgdu því að draga aðild­ar­um­sókn­ina til baka. Hópur alþjóða­sinn­aðra Sjálf­stæð­is­manna hóf að und­ir­búa myndun nýs stjórn­mála­afls strax í apríl 2014. Eitt helsta stefnu­mál Við­reisnar hefur alla tíð verið að þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla verði haldin um hvort við­ræðum við Evr­ópu­sam­bandið verði haldið áfram. Á því máli getur flokk­ur­inn ekki gefið afslátt. Björt fram­tíð er sömu­leiðis með Evr­ópu­að­ild á sinni stefnu­skrá.

For­svars­menn flokk­anna tveggja fund­uðu með Bjarna Bene­dikts­syni í gær á fundi sem hófst klukkan 13. Hann skil­aði engri nið­ur­stöðu. Rætt verður aftur saman í dag og í kjöl­farið á að taka afstöðu til þess hvort látið verði reyna á form­legar við­ræður um myndun 32 manna meiri­hluta­stjórnar flokk­anna þriggja eða ekki. Flestir við­mæl­endur Kjarnans voru afar svart­sýnir á að nást myndi saman og töldu því lík­leg­ast að Bjarni myndi skila stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð­inu í dag eða um helg­ina. Það færi þá til Katrínar Jak­obs­dóttur, for­manns Vinstri grænna, sem myndi reyna að mynda breiða rík­is­stjórn frá miðju til vinstri. Að slíkri rík­is­stjórn gætu komið allir flokkar sem sæta eiga á Alþingi utan Sjálf­stæð­is­flokks­ins, annað hvort sem hluti af rík­is­stjórn­inni eða sem stuðn­ings­að­ili hennar gegn því að fá lyk­il­mál sín í gegn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár