Ráðherra braut ekki reglur en myndatakan „óvenjuleg“

Björt Ólafs­dóttir, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, var mynduð í fatn­aði frá bresku tísku­vöru­merki í sal Alþingis. Myndin var birt á Instagram síðu þess í aug­lýs­inga­skyni.

Myndin birtist á Instagram síðu Galvan London fyrir þremur dögum síðan. Í myndatexta segir að Björt sé ráðherra og að myndin sé tekin í sal Alþingis.
Myndin birt­ist á Instagram síðu Galvan London fyrir þremur dögum síðan. Í mynda­texta segir að Björt sé ráð­herra og að myndin sé tekin í sal Alþingis. Mynd: Skjáskot/Instagram

Björt Ólafs­dóttir, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, tók strangt til tekið ekki þátt í að brjóta reglur Alþingis þegar hún var mynduð í aug­lýs­inga­skyni í sal Alþingis fyrir breska tísku­vöru­merkið Galvan London. Þetta segir Helgi Bern­ód­us­son, skrif­stofu­stjóri Alþingis. Myndin var birt á Instagram-sóðu Galvan London.

„Þetta kemur mér mjög á óvart, strangt til tekið er þetta ekki brot á regl­unum en þetta er auð­vitað dálítið óvenju­legt,“ segir Helgi. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

Þar segir að Sóla Kára­dóttir, list­rænn stjórn­andi Galvan London, og Björt séu vin­konur til margra ára. Und­an­farið hafi birst margar myndir teknar víðs vegar á Íslandi á Instagram-síðu tísku­vöru­merk­is­ins af íslenskum vin­konum Sólu í fatn­aði frá Galvan London. Björt er þeirra á meðal.

Frétta­blaðið hafði eftir Helga að sam­kvæmt reglum Alþingis væri mynda­tökur í einka­þágu óheim­ilar í þingsalnum hvort sem sé á þing­fundi eða utan. Það væri óheim­ilt að taka ljós­myndir inn í sal­inn, úr hlið­ar­sölum eða gangi, þar sem ljós­mynd­arar standa fyrir utan sal­inn sjálfan. Mynda­tökur í tengslum við blaða- eða sjón­varps­við­töl, til að taka aug­lýs­inga­myndir og yfir­leitt ann­ars inni í sjálfum þingsalnum, væru sem sagt óheim­ilar. Mynda­tökur væru að öðru leyti heim­ilar í þing­hús­inu og Skála Alþingis, svo og á skrif­stofum þing­manna.

Blaðið hefur upp­fært frétt sína, en nú segir að það sé heim­ilt að taka ljós­myndir inn í sal­inn.

Björt sagði í sam­tali við Frétta­blaðið að hún hefði ekki brotið neinar reglur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár