Fyrstu tölur úr Reykjavík norður: Ásmundur Einar og Tommi á Búllunni inni

Fyrstu tölur úr Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður skil­uðu sér rétt fyrir mið­nætti. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er stærstur, þá Vinstri græn og síðan Sam­fylk­ingin.

Helstu tíð­indin eru þau að Ásmundur Einar Daðason ráð­herra og odd­viti Fram­sókn­ar­flokks er öruggur inni, en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er með 12,7 pró­sent atkvæða og er á pari við Sam­fylk­ing­una og Pírata í kjör­dæm­inu, sam­kvæmt fyrstu tölum.

Einnig er Tómas Tómasson odd­viti Flokks fólks­ins að mæl­ast inni sem kjör­dæma­kjör­inn þing­maður, en 44 pró­sent líkur voru á því að hann næði þing­sæti sam­kvæmt þing­sæta­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar.

Andrés Ingi þing­maður Pírata og Brynjar Níelsson þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks eru í jöfn­un­ar­þing­sæt­unum tveimur miðað við þessar fyrstu tölur.


Talin atkvæði: 19.452

Sjálf­stæð­is­flokkur: 20,6 pró­sent - 3 þing­menn (-) jöfn­un­ar­maður

Vinstri græn: 16,4 pró­sent - 2 þing­menn (-1)

Sam­fylk­ingin: 12,6 pró­sent - 1 þing­maður (-1)

Fram­sókn­ar­flokkur: 12,5 pró­sent - 1 þing­maður (+1)

Píratar: 12,4 pró­sent - 2 þing­menn (-) jöfn­un­ar­maður

Viðreisn: 7,6 pró­sent - 1 þing­maður (-)

Flokkur fólks­ins: 7,6 pró­sent - 1 þing­maður (+1)

Sós­í­alista­flokk­ur­inn: 5,1 pró­sent - 0 þing­menn

Mið­flokk­ur­inn: 3,3 pró­sent - 0 þing­menn

Frjáls­lyndi lýð­ræð­is­flokk­ur­inn: 0,3 pró­sent

Ábyrg fram­tíð: 0,4 pró­sent

[adspot]

Þingmenn kjörnir 2017:

Sjálf­stæð­is­flokkur 3

Vinstri græn 3

Píratar 2

Viðreisn 1

Flokkur fólks­ins 1

Sam­fylk­ingin 1

Hér að neðan má sjá loka­þing­sæta­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar fyrir Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár