Benedikt segir það hafa verið viðrað að bjóða fram „svonefndan CC-lista“ Viðreisnar

Fyrr­ver­andi for­maður Við­reisnar bendir á að for­dæmi séu fyrir því að bjóða fram annan lista flokks, þar sem sam­eig­in­leg atkvæði myndu nýt­ast við úthlutun jöfn­un­ar­þing­sæta. Það hefur tví­vegis gerst áður, árin 1967 og 1983.

Benedikt Jóhannesson hefur ekki útilokað framboð með öllu þótt hann ætli sér ekki að stofna nýjan flokk.
Benedikt Jóhann­es­son hefur ekki úti­lokað fram­boð með öllu þótt hann ætli sér ekki að stofna nýjan flokk. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Benedikt Jóhann­es­son, fyrr­ver­andi for­maður Við­reisnar, segir ólík­legt að sá hópur innan Við­reisnar sem sé óánægður með að hann sé ekki í fram­varð­ar­sveit flokks­ins í kom­andi kosn­ingum stofni nýjan flokk.

Flestir í hópnum, sem hann segir að telji lík­lega nokkur hund­ruð manns, hafi áhuga á því að starfa áfram innan Við­reisnar. Það hefur verið viðr­aður sá mögu­leika hvort það sé hægt að bjóða fram svo­nefndan CC-lista, það er að segja lista sem væri Við­reisn­ar­listi, þá myndu atkvæðin nýt­ast Viðreisn þegar það yrði úthlutað jöfn­un­ar­þing­sætum.“

Þetta kom fram í við­tali við Benedikt í útvarps­þætt­inum Harma­geddon á X-inu í morgun. Þar sagði hann for­dæmi fyrir þessu í kosn­inga­sög­unni, að sami flokkur byði í raun fram tvo lista, þar sem sam­eig­in­leg atkvæði þeirra yrðu svo talin saman þegar jöfn­un­ar­sætum yrði úthlutað.

Hann sagði að það væri ekki komin nið­ur­staða í hvort þetta yrði gert, en kosn­ingar fara fram 25. sept­em­ber næst­kom­andi og Viðreisn hefur þegar raðað fólki á sína fram­boðs­lista.

[adspot]Fordæmin sem Benedikt vís­aði til eru tvö. Annars vegar þegar Jón Baldvini Hanni­bals­syni var hafnað af Alþýðu­banda­lag­inu í Reykja­vík árið 1967 bauð faðir hans, Hannibal Valdi­mars­son, fram sér­stakan lista í Reykja­vík þar sem hann skip­aði efsta sæti. Í minn­ing­ar­grein um Hannibal sem Styrmir Gunn­ars­sonar, þáver­andi rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, skrifar árið 1991 kom fram að Hannibal hafi viljað að list­inn myndi fá lista­bók­staf­ina GG, að litið yrði á hann sem sem lista Alþýðu­banda­lags og atkvæði hans talin með atkvæðum Alþýðu­banda­lags­ins við úthlutun upp­bót­ar­sæta. „Yfir­kjör­stjórn í Reykja­vík taldi ekki rök til þess og úthlut­aði honum lista­bók­stafnum I. Lands­kjör­stjórn var ósam­mála yfir­kjör­stjórn í Reykja­vík og taldi atkvæði list­ans með atkvæðum Alþýðu­banda­lags­ins við úthlutun upp­bót­ar­sæta. Hannibal vann glæsi­legan sigur í Reykja­vík og náði kjöri til Alþingis.“

Hitt for­dæmið er Ingólfur Guðnason, sem verið hafði þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins en lent í þriðja sæti í skoð­ana­könnun sem fram­kvæmd var við val á lista fyrir kosn­ing­arnar 1983. Ingólfur þáði ekki þriðja sætið heldur fór í sér­fram­boð undir merkjum BB, sér­fram­boð Fram­sókn­ar­flokks­ins. Hann náði ekki kjöri.

Sagði sig úr framkvæmdastjórn

Kjarninn fjall­aði ítar­lega um þær hörðu deilur sem spruttu upp innan Við­reisnar í frétta­skýr­ingu sem birt­ist í lok síð­asta mán­aðar, í kjöl­far þess að Benedikt hafði verið hafnað sem fram­bjóð­anda af upp­still­inga­nefnd flokks­ins. Í kjöl­far þeirrar höfn­unar fór í gang fór atburða­rás til að reyna að sætta ólík sjón­ar­mið og plástra per­sónu­leg sár­indi, sem bar ekki árangur.

Benedikt verður ekki á lista Við­reisnar í kom­andi kosn­ingum og hefur nú auk þess sagt sig úr fram­kvæmda­stjórn flokks­ins, þar sem hann hefur setið frá upp­hafi. Sú stjórn ann­ast dag­legan rekstur Við­reisnar og fjár­reiður með fram­kvæmda­stjóra. Þar sitja nú for­maður Við­reisnar, vara­for­maður og Þórður Magn­ús­son, for­maður fjár­öfl­un­ar­nefndar, sem er áheyrn­ar­full­trúi, og Þor­steinn Víglunds­son, fyrr­ver­andi vara­for­maður Við­reisnar sem tók sæti Bene­dikts.

Þorsteinn sagði það leiðinlegt að vera á þingi

Benedikt fór yfir þessa atburða­rás í við­tal­inu við Harma­geddon. Hann hafði gefið það út fyrir nokkuð löngu síðan að hann stefndi á odd­vita­sæti á lista Við­reisnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en átt­aði sig á að það væri ekki að ganga eftir þegar Þor­steinn Pálsson, for­maður upp­still­ing­ar­nefndar Við­reisnar, kall­aði hann á sinn fund. Ef odd­vita­sætið hefði verið nið­ur­staðan þá hefði ekki þurft fund til að segja Benedikt frá nið­ur­stöð­unni. Hann átti því von á að vera boðið annað sætið á ein­hverjum fram­boðs­lista, og senni­leg­ast í Rekyja­vík­ur­kjör­dæmi norður. „Áður en ég fór og hitti hann þá hringdi ég í Þorstein Víglunds­son [fyrr­ver­andi vara­for­mann Við­reisnar] og spurði hann: ætti ég að taka þessu sæti eða ekki.[...]Hann svar­aði ekki þess­ari spurn­ingu heldur sagði mér bara hvað það væri leið­in­legt að vera á þingi, sem ég var ekki að spyrja um,“ sagði Benedikt í Harma­geddon í morgun.

Þor­steinn bauð hins vegar Benedikt heið­urs­sæti á lista, ekki bar­áttu­sæti, og sagði það hafa verið ein­róma nið­ur­stöðu upp­still­ing­ar­nefnd­ar­innar sem hefði einnig verið borin undir Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur, for­mann Við­reisnar. Því hafn­aði Benedikt.

Var tilbúinn að flytja, myndrænt séð, upp í Grafarvog

Í kjöl­farið var reynt að sætta málið og Benedikt boðið annað sæti á lista Viðreisn í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður.

[links]Í við­tal­inu sagð­ist Benedikt hafa verið til­bú­inn að taka sætið, jafn­vel þótt hann teldi það ekki lík­legt til að skila sér inn á þing. Hann var búinn að ákveða að berj­ast af mik­illi orku fyrir því að ná árangri ef hann hefði þegið sætið. „Ég myndi nán­ast flytja upp í Graf­ar­vog, svona að minnsta kosti mynd­rænt“.

Hann hafði þó viljað að þeir sem höfðu sagt við sig hlutir sem honum hafi þótt leið­in­legir myndu biðja hann afsök­unar á þeim, svo hægt yrði að byrja upp á nýtt. Komið hefur fram að þar eigi Benedikt við Þorgerði Katrínu og Þorstein Pálsson. „Það er bara það sem vinir gera,“ sagði Benedikt í Harma­geddon og tók fram að afsök­un­ar­beiðnin hefði ekki átt að vera opin­ber með neinum hætti. Þeirri beiðni var hafnað.

Aðspurður hvort málið hefði skilið eftir óbragð í munni hans sagði Benedikt að mætti segja að hann væri svo­lítið sorg­mæddur. „Að félagar sem maður er búinn að vera að vinna með[...]vildi veg þeirra sem allra mestan, skuli hafa brugð­ist við með þessum hætti. Þá er ég ekki að segja það að ég hef fengið miklu meiri við­brögð á hinn veg­inn. Sumir urðu óskap­lega hissa, aðrir urðu reiðir. Auðvitað rann mér í skap líka, ég er ekki skap­laus.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár