Hefur sagt sig úr framkvæmdastjórn og segir framgöngu formanns mestu vonbrigðin

Fyrr­ver­andi for­maður Við­reisnar telur að atburða­rás hafi verið hönnuð til að koma ákveðnum ein­stak­lingum í efstu sætin á lista flokks­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og halda öðrum, meðal ann­ars honum, frá þeim sætum.

Benedikt Jóhannesson hefur veifað bless við framkvæmdastjórn flokksins sem hann var aðalhvatamaðurinn að því að stofna.
Benedikt Jóhann­es­son hefur veifað bless við fram­kvæmda­stjórn flokks­ins sem hann var aðal­hvata­mað­ur­inn að því að stofna. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Bene­dikt Jó­hann­es­son, fyrr­ver­andi for­maður Viðreisn­ar og helsti hvata­mað­ur­inn að stofnun flokks­ins, hef­ur sagt sig úr fram­kvæmda­stjórn hans. Ástæðan fyrir því er það ferli sem Viðreisn réðst í til að velja á lista fyrir kom­andi kosn­ingar sem Benedikt telur hafa verið hann­aða atburða­rás til að koma ákveðnum ein­stak­lingum að, og öðrum frá. Þetta kemur fram í við­tali við Benedikt á mbl.is í dag.

Kjarninn fjall­aði ítar­lega um þær hörðu deilur sem spruttu upp innan Við­reisnar í frétta­skýr­ingu sem birt­ist í lok síð­asta mán­aðar, í kjöl­far þess að Benedikt hafði verið hafnað sem fram­bjóð­anda af upp­still­inga­nefnd flokks­ins. Í kjöl­far þeirrar höfn­unar fór í gang fór atburða­rás til að reyna að sætta ólík sjón­ar­mið og plástra per­sónu­leg sár­indi, sem bar ekki árangur.

Benedikt verður ekki á lista Við­reisnar í kom­andi kosn­ingum og hefur nú auk þess sagt sig úr fram­kvæmda­stjórn flokks­ins, þar sem hann hefur setið frá upp­hafi. Sú stjórn ann­ast dag­legan rekstur Við­reisnar og fjár­reiður með fram­kvæmda­stjóra. Þar sitja nú for­maður Við­reisnar, vara­for­maður og Þórður Magn­ús­son, for­maður fjár­öfl­un­ar­nefndar, sem er áheyrn­ar­full­trúi, og Þor­steinn Víglunds­son, fyrr­ver­andi vara­for­maður Við­reisnar sem tók sæti Bene­dikts.

Framganga Þorgerðar Katrínar mestu vonbrigðin

Í við­tal­inu við mbl.is í dag segir Benedikt að fram­ganga Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur, for­manns Við­reisnar, í ferl­inu hafi valdið sér mestu von­brigðum. Hann full­yrðir að Þor­gerður Katrín hafi lagt mikla áherslu á að byrjað yrði á því að kynna list­a flokks­ins í lands­byggðar­kjör­dæmun­um, þar sem fyr­ir­séð var að yrðu karl­ar í efstu sæt­un­um. „Það var síðan notað sem rök í Reykja­vík og í Krag­an­um að það yrðu að vera kon­ur til þess að kynja­jafn­rétti væri náð.“

[adspot]Þarna hafi verið um hann­aða atburða­rás að ræða og við­bót­ar­snún­ingur hafi svo komið á málið þegar Jón Steindór Valdi­mars­son, þing­maður flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, hafi verið færður úr fyrra sæti sínu sem sé lík­legt þing­sæti, yfir í ólík­legt sæti í Reykja­vík norður. „Reynt að slá fleiri en eina flugu í sama höggi.“ Jón Steindór var færður í annað sæti á lista flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður en í gamla sætið hans, annað sætið í Kraganum, er sestur fjöl­miðla­mað­ur­inn Sigmar Guð­munds­son.

Benedikt segir við mbl.is að það hafi valdið sér veru­leg­um von­brigðum að flokk­ur með slag­orðið „al­manna­hags­mun­ir fram­ar sér­hags­mun­um“ sem ávallt hafi stefnt að því frá stofn­un að skilja „klækja­stjórn­mál­in“ eft­ir, nái ekki að starfa eft­ir þeirri línu. „Auðvitað renn­ur mér það til rifja að flokk­ur­inn sem ég vann öt­ul­lega að stofn­un sé ekki á þess­um nót­um leng­ur.“

Hann segir enn fremur að margir hafi haft sam­band við sig sem telji sig nú land­lausa í póli­tík og að hann hugsi að um sé að ræða sama fólk sem upp­lif­iði sig þannig fyrir sjö árum þegar vinna við stofnun Við­reisnar hófst.

Atburðarás sem hófst í byrjun árs

Benedikt rekur upp­haf atburða­rás­ar­innar til fundar sem hald­inn var í Reykja­vík­ur­fé­lagi Við­reisnar í byrjun febr­úar þar sem stjórn þess bar upp til­lögu um að farin yrði upp­still­ing­ar­leið fyrir kom­andi kosn­ingar.

Á þessum fundi lagði Benedikt fram til­lögu um að fram myndi fara próf­kjör, en henni var hafnað af meiri­hluta fund­ar­manna. Helstu rökin voru þau að ekki væri nægj­an­legur tími til þess að halda þau. Vert er að taka fram að Viðreisn hefur alltaf stillt upp á lista frá því að flokk­ur­inn var stofn­aður. Það hefði því verið nýlunda að halda próf­kjör.

Í frétta­skýr­ingu Kjarnans frá því fyrir tæpum mán­uði síðan kom fram að hvernig staðið var að boðun þessa fundar og hvernig valið var í áður­greint Reykja­vík­ur­ráð sem síðar skip­aði svo fimm manna upp­still­ing­ar­nefnd hagi verið gagn­rýnt harð­lega af ýmsum flokks­mönnum Við­reisnar, meðal ann­ars í lok­uðum spjall­hópi þeirra á Facebook. Gagn­rýnendum þótti yfir­skrift tölvu­pósts sem sendu var út til að boða fund­inn hafa verið of almenn í ljósi þess að þarna átti að taka stórar ákvarð­anir um leiðir til að velja á lista og hverjir myndu gera það. Mik­il­vægi fund­ar­ins hefði ein­fald­lega farið fram hjá mörgum sem héldu að þetta væri hefð­bund­inn fundur í Reykja­vík­ur­ráð­inu.

Boðið neðsta sætið eftir að hafa sóst eftir oddvitasæti

Upp­still­ing­ar­nefndin var skipuð í byrjun febr­úar og Þor­steinn Pálsson, fyrr­ver­andi for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og áhrifa­maður í VIðreisn frá stofnun, var gerður að for­manni hennar. Kjarninn hefur heim­ildir fyrir því að for­maður Reykja­vík­ur­ráðs Við­reisnar hafi leitað víða eftir fólki til að sitja í nefnd­inni, meðan ann­ars til aðila sem er ekki skráður í Viðreisn og hefur aldrei tekið þátt í starfi flokks­ins. Sá hafn­aði boð­inu.

[adspot]Þriðju­dag­inn 18. maí dró svo til tíð­inda. Þor­steinn Pálsson bað Benedikt Jóhann­es­son að koma og hitta sig. Á fundi þeirra greindi Þor­steinn honum frá því að að það væri ein­róma nið­ur­staða upp­still­ing­ar­nefnd­ar­innar að bjóða Benedikt neðsta sæti list­ans í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi. Það afþakk­aði Benedikt, enda lá ljóst fyrir af opin­berum yfir­lýs­ingum hans að hann ætl­aði sér virka stjórn­mála­þátt­töku, ekki að þiggja heið­urs­sæti á lista.

Benedikt greindi opin­ber­lega frá þessu í stöðu­upp­færslu á Facebook 21. maí. Þar skrif­aði hann meðal ann­ars: „Þar með er útséð um að ég verði í fram­boði fyrir Viðreisn að þessu sinni, en ég held áfram í póli­tík og styð nú sem fyrr grunn­stefnu Við­reisnar, enda hygg ég að ég hafi skrifað megnið af henni. Sjaldan hefur verið brýnni þörf fyrir ein­beitta, frjáls­lynda rödd í sam­fé­lag­inu og ég mun ekki láta mitt eftir liggja.“

Reynt að lægja öldur án árangurs

Benedikt var því aug­ljós­lega afar ósáttur með nið­ur­stöð­una og það átti líka við um fjöl­marga stuðn­ings­menn hans. Fleiri afþökk­uðu sæti á lista Við­reisnar og ein­hverjir, meðal ann­ars stofn­fé­lagar, sögðu sig úr flokknum með yfir­lýs­ingum sem settar voru inn í „Viðreisn umræða“.

[links]Í gang fór atburða­rás til að reyna að lægja öld­urnar. Hún fólst helst í því að reyna að bjóða Benedikt annað sæti og fá hann til að sam­þykkja það áður en listar Við­reisnar í kjör­dæm­unum þremur á höf­uð­borg­ar­svæð­inu yrðu kynntir skömmu síðar.

Um tíma leit út fyrir að þetta myndi bera árangur. Benedikt að eigin sögn féllst á beiðni Þor­gerðar Katrínar, for­manns Við­reisnar, um að taka 2. sæti á lista flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður. Ekki liggur ljóst fyrir hvað hefði þá átt að gera við Jón Steindór, sitj­andi þing­mann sem mun skipa það sæti í haust.

Benedikt vildi hins vegar fá afsök­un­ar­beiðni frá þeim sam­starfs­mönnum sínum til magra ára, til að mynda Þor­steini Pálssyni og Þorgerði Katrínu sjálfri á því hvernig hefði verið staðið að málum gagn­vart honum. Það sner­ist ekki um að honum hefði verið boðið síð­asta sæti á list­anum, heldur þeim sam­tölum og sam­skiptum sem urðu í kjöl­farið.

Síðar orð­aði hann það þannig í stöðu­upp­færslu á Facebook, sem birt­ist 27. maí, að hann vildi að þeir sem hefðu komið fram við hann með „óvið­ur­kvæmi­legum hætti“ bæðu hann afsök­unar. Í sömu stöðu­upp­færslu sagði Benedikt að hann hefði tekið fram að þetta „væri ein­ungis til þess að ljúka þessum málum af minni hálfu og leggja grunn að góðu sam­starfi. Ég myndi ekki gera þær afsak­anir opin­berar. Þor­gerður svar­aði eftir umhugsun að slík per­sónu­leg afsök­un­ar­beiðni væri ekki í boði. Því fór sem fór.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár