Hanna Birna verður formaður utanríkismálanefndar Alþingis

Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, verður for­maður utan­rík­is­mála­nefndar Alþingis á kom­andi vetri. Það var sam­þykkt á þing­flokks­fundi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í dag sam­hljóða. RÚV greinir frá þessu.

Birgir Ármanns­son, frá­far­andi for­maður utan­rík­is­mála­nefndar, verður fyrsti vara­for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis. Þessi breyt­ing tekur form­lega gildi við þing­setn­ingu á morgun.

Hanna Birna sagði af sér sem inn­an­rík­is­ráð­herra í nóv­em­ber í fyrra í kjöl­far leka­máls­ins, eftir að hafa verið staðin að því að hafa afskipti af rann­sókn lög­reglu á leka­mál­inu svo­kall­aða, en í því var aðstoð­ar­maður hennar fyrr­ver­andi, Gísli Freyr Val­dórs­son, dæmdur í átta mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi.

Hanna Birna sagði af sér eftir að Gísli Freyr ját­aði að hafa lekið gögnum en Umboðs­maður Alþingis hafði þá þegar birt upp­lýs­ingar sem sýndu glögg­lega að Hanna Birna hafði sem inn­an­rík­is­ráð­herra afskipti af rann­sókn á hennar eigin ráðu­neyti með sam­tölum við Stefán Eiríks­son, fyrr­ver­andi lög­reglu­stjóra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Hún tók sér líka leyfi frá þing­störfum en sett­ist aftur á þing í vor sem óbreyttur þing­maður. Hún sagði frá því í Morg­un­vakt­inni á RÚV í morgun að hún hefði farið í miklum róleg­heitum aftur inn á þing og til dæmis ekki sóst eftir að verða for­maður neinnar nefndar, sem þó væri eðli­legt að odd­viti í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi gerði. Þetta myndi nú breyt­ast.

Hanna Birna ætlar sér líka að sækj­ast eftir end­ur­kjöri sem vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins á lands­fundi í næsta mán­uði.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár