Grikkir saka lánardrottna um að þjóna sérhagsmunum og vilja ekki semja

Stjórn­völd í Grikk­landi saka lán­ar­drottna sína um að gæta ann­ar­legra hags­muna og segja þá kannski ekki vilja ná sam­komu­lagi um neyð­ar­lán til Grikkja. Lán­ar­drottn­arnir hafi ekki sam­þykkt nýj­ustu umbóta­til­lögur Grikkja. Þetta höfðu fjöl­miðlar eftir for­sæt­is­ráð­herra lands­ins í morgun.

Þrátt fyrir þessar yfir­lýs­ingar frá Grikkjum segir Evr­ópu­sam­bandið að ekki hafi slitnað upp úr við­ræðum og þær haldi áfram í dag eins og áætlað hafi verið.

Alexis Tsipras, for­sæt­is­ráð­herra Grikk­lands, er nú kom­inn til Brussel þar sem hann fundar með full­trúum fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins, Seðla­banka Evrópu, og Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins. Þar verður rætt um ágrein­ings­efni, en sagt er að Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn hafi sér­stak­lega miklar efa­semdir um nýj­ustu til­lögur Grikkja.

[caption id="attachment_32337" align="alignnone" width="709"] Lán­ar­drottnar Grikkja funda nú í Brussel og Tsipras er kom­inn til fund­ar­ins.[/caption]

Í kvöld verður hald­inn fundur evru­hóps­ins, fjár­mála­ráð­herra evru­ríkj­anna, og búist er við því að fund­ur­inn gæti varað í alla nótt. Reynt verður til þrautar að ná sam­komu­lagi á fund­inum svo að hægt verði að ganga frá mál­inu á fundi leið­toga Evr­ópu­sam­bands­ríkj­anna allra á morgun.

Nú er innan við vika þangað til Grikkir eiga að borga 1,6 millj­arð evra til baka af láni sínu hjá Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðnum, en sama dag rennur núver­andi sam­komu­lag um neyð­ar­lánin út. Ef ekki verður búið að ná sam­komu­lagi fyrir þann tíma lítur allt út fyrir að greiðslu­fall verði hjá Grikkjum með ófyr­ir­séðum afleið­ingum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár