Aldrei verið jafn viss um niðurstöðu og í máli Glitnis HoldCo gegn Stundinni

Lögmaður Stund­ar­innar og Reykja­vik Media segir að GlitnirHoldCo hafi reynt að banna fyr­ir­fram tján­ingu fjöl­miðla. Það sé alvar­leg­asta teg­und slíkra brota. Það sé rosa­lega erfitt að halda því fram að ekki hafi verið kraf­ist rit­skoð­unar í mál­inu.

„Nið­ur­staðan lá alltaf fyrir. Ég held að ég hafi aldrei verið á mínum ferli verið jafn viss um nið­ur­stöðu og þessa.“

Þetta segir Sigríður Rut Júl­í­us­dóttir, lög­maður á Rétti, um dóm Hæsta­réttar Íslands í hinu fræga lög­banns­máli sem Glitnir HoldCo höfð­aði á hendur Stund­inni og Reykja­vik Media vegna umfjöll­unar um fjár­mál Bjarna Bene­dikts­sonar, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, skömmu fyrir kosn­ingar 2017.

Í dómnum, sem féll 22. mars síð­ast­lið­inn, var öllum kröfum GlitnisHoldCo í mál­inu hafnað. Sigríður Rut ræddi dóm­inn og áhrif hans við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarnans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í vik­unni.

Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neðan.

Dóm­ur­inn sner­ist ekki um gildi lög­banns­ins sem sett var á umfjöllun miðl­anna tveggja um fjár­mál Bjarna og fjöl­skyldu hans sem unnin var upp úr gögnum frá Glitni, enda hafði lög­bannið ekki verið í gildi síðan að Lands­réttur hafn­aði því að stað­festa það í októ­ber í fyrra, tæpu ári eftir að sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu setti lög­bannið á. Það hélt þó gildi sínu allan þann tíma og Stundin gat ekki haldið áfram umfjöllun sinni uppúr gögn­unum fyrr en að dómur Lands­réttar lá fyr­ir.

Sigríður Rut sagði málið í Hæsta­rétti ekki hafa bara verið tján­ing­ar­frels­is­mál heldur hafi verið reynt að banna fyrir fram ákveðna tján­ingu. Það sé alvar­leg­asta teg­und slíkra brota. „Þarna er verið að banna þér að segja fréttir í þessu til­viki áður en þú segir þær.“

Rit­skoðun sé bönnuð sam­kvæmt stjórn­ar­skránni. Lögbann sé fyrir fram tak­mörkun á tján­ingu en telst ekki rit­skoðun vegna þess að það byggir á laga­á­kvæði, stefnir að lög­mæti mark­miði og telst nauð­syn í lýð­ræð­is­ríki.

[adspot]Dóm­krafan mál­inu var hins vegar efn­is­lega sú að það yrði við­ur­kennt með dómi að þessum tveimur fjöl­miðlum yrði bannað að flytja fréttir, eða láta aðra flytja fréttir, upp úr gögnum sem væri að finna í kerfum Glitnis og lytu banka­leynd. Það sner­ist ekki lengur um lög­banns­kröfu. Hún féll niður með nið­ur­stöðu Lands­réttar í fyrra­haust. Því sner­ist málið nú ein­ungis um fyrir fram tak­mörkum á tján­ingu.

„Það er ofboðs­lega erfitt að segja þegar þú ert búinn að missa lög­banns­af­sök­un­ina, þú ert ekki lengur með lög­banns­á­kvæðið til að styðj­ast við, þá er rosa­lega erfitt að halda því fram á sann­fær­andi máta að þar með sért þú ekki að krefj­ast rit­skoð­unar. Þú ert búinn að missa laga­á­kvæðið sem afsak­aði þig áður.“

Það sem henni finnst vera gott við dóm­inn er umfjöllun Hæsta­réttar um heim­ild­ar­vernd. „Þar er skorið úr um það, að blaða­menn hafa, ef það er ein­hver vafi, ef það er verið að spyrja um gögn, ef það er verið að spyrja um upp­lýs­ingar um gögn, ef það er ein­hver vafi þá hefur blaða­mað­ur­inn heim­ild til að segja: „Ég ætla ekki að svara neinu um þessi gögn“.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár