Ríkisstjórn Grikklands byrjar með hvelli og hlutabréf hríðfalla

Ný rík­is­stjórn Grikk­lands til­kynnti í morgun að einka­væð­ing á tveimur stórum fyr­ir­tækjum yrði stöðvuð strax og upp­sagnir þús­unda opin­berra starfs­manna yrðu dregnar til baka með laga­setn­ingu. Sala á fyr­ir­tækj­unum tveimur og upp­sagn­irnar voru skil­yrði sam­komu­lags við Evr­ópu­sam­bandið og Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­inn fyrir lán­veit­ingum. Þá hefur verið greint frá því að rík­is­stjórnin ætli að gera það að sínu fyrsta laga­frum­varpi að hækka lág­marks­laun í land­inu á nýjan leik.

Það má því segja að rík­is­stjórnin hafi byrjað með hvelli, en fyrsti rík­is­stjórn­ar­fund­ur­inn var hald­inn í morgun. Þar sagði Alexis Tsipras, nýr for­sæt­is­ráð­herra, að rík­is­stjórnin ætti ein­stak­lega erfitt verk fyrir höndum. Ætlunin væri alls ekki að fara í átök við Evr­ópu­sam­bandið sem myndu enda með sam­eig­in­legri tor­tím­ingu, „en við munum ekki halda áfram kúg­un­ar­stefnu.“

Þá greindi hann frá því að Jeroen Dijs­sel­bloem, fjár­mála­ráð­herra Hollands og for­seti evru­hóps­ins, er á leið til Aþenu og mun funda með grískum stjórn­völdum á föstu­dag. Það verður vænt­an­lega fyrsti form­legi fund­ur­inn um deilur milli Grikkja og lán­ar­drottna þeirra.

Núver­andi sam­komu­lagi við ESB og AGS lýkur í lok febr­úar og enn á eftir að greiða 1,8 millj­arð evra til Grikk­lands sam­kvæmt því. Það er þó skil­yrðum háð og óvíst hvort upp­hæðin verður greidd nú.

Greek markets today. high whistle pic.twitter.com/cjU9v2DJLZ

— Katie Martin (@katie_martin_FX) January 28, 2015

Yfir­lýs­ingar morg­uns­ins hafa haft miklar afleið­ingar á mörk­uðum. Hluta­bréf í stærstu bönkum Grikk­lands, Piraeus og Eurobank, hafa til að mynda lækkað um 20 pró­sent það sem af er degi.

Greek stocks -7% and counting pic.twitter.com/SUzan3SvOZ — Jonathan Ferro (@FerroTV) January 28, 2015
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár