Menntaðar ungar konur í Reykjavík líklegastar til að vilja banna hvalveiðar

Reyk­vík­ingar, háskóla­borg­arar, konur, ungt fólk og stuðn­ings­menn flokka sem eru ekki á þingi og Sam­fylk­ing­ar­innar eru þeir hópar í sam­fé­lag­inu sem helst vilja banna hval­veiðar með lögum. Ný könnun um veið­arnar sýnir að meiri­hluti lands­manna var óánægður með að Bjarni Bene­dikts­son veitti Hval hf. leyfi til lang­reyða­veiða á síð­ustu dögum valda­tíðar sinnar.

Hvalveiðar
Hval­veiðar Frá hval­stöð Hvals hf. í Hval­firði. Mynd: Boris Niehaus/Hard To Port

Rúm 39 pró­sent lands­manna eru mjög óánægð með þá ákvörðun Bjarna Bene­dikts­sonar að gefa út leyfi til veiða á lang­reyðum næstu fimm árin. Til við­bótar segj­ast 11,5 pró­sent vera fremur óánægð með ákvörð­un­ina og því eru sam­tals um 51 pró­sent lands­manna óánægð með útgáfu hval­veiði­leyf­anna.

Þetta kemur fram í nýrri könnun Maskínu, sem gerð var að beiðni Nátt­úru­vernd­ar­sam­taka Íslands og Dýra­vernd­un­ar­sam­bandi Íslands dag­ana 12.-19. des­em­ber.

Tæp 25 pró­sent segj­ast mjög ánægð með ákvörðun Bjarna og rúm 10 pró­sent fremur ánægð og því eru 35 pró­sent lands­manna ánægð með ákvörðun Bjarna, sem hann gat tekið sökum þess að mat­væla­ráðu­neytið færð­ist í hans hendur eftir að Vinstri græn kusu að taka ekki sæti í starfs­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokki og Fram­sókn­ar­flokki fram að kosn­ingum.

Rúm 44 prósent vilja banna hvalveiðar með lögum 

Í könn­un­inni var ekki ein­ungis spurt um ákvörðun Bjarna heldur einnig um hvort fólk væri hlynnt eða and­vígt því að banna hval­veiðar með lögum. Fleiri sögð­ust hlynnt hval­veiði­banni en voru því and­víg, en mjótt er á munum.

Nið­ur­stöðurMaskína fram­kvæmdi þessa könnun dag­ana 12.-19. des­em­ber og voru svar­endur 2.082 tals­ins.

Alls eru rúm 44 pró­sent hlynnt því að hval­veiðar verði bann­aðar með lögum, en 39 pró­sent eru því and­víg. Um 17 pró­sent þeirra sem tóku afstöðu til spurn­ing­ar­innar sögð­ust í með­al­lagi hlynnt eða and­víg því að banna hval­veiðar með lögum.

Konur mun andsnúnari hvalveiðum en karlar

Þegar horft er á nið­ur­brot könn­un­ar­innar má sjá mis­mun­andi afstöðu ólíkra hópa til hval­veiða. Þannig eru til dæmis 53 pró­sent kvenna hlynntar því að banna hval­veiðar með lögum, en ein­ungis 36 pró­sent karla. 48 pró­sent karla eru and­vígir hval­veiði­banni, en ein­ungis 29 pró­sent kvenna. 

Aldurshópar á ólíkum meiði

Afstaðan til hval­veiða er mjög breyti­leg eftir ald­urs­hópum. Yngsta fólkið er and­snúnast veið­unum, en 56 pró­sent þeirra sem eru á aldr­inum 18-29 ára eru hlynnt því að hval­veiðar verði bann­aðar með lögum. Hið sama á ein­ungis við um 33 pró­sent þeirra sem eru 60 ára og eldri. 

Í elsta hópnum eru hins vegar 54 pró­sent and­víg hval­veiði­banni, en hlut­fallið er ein­ungis 25 pró­sent í yngsta hópnum. Stig­vax­andi and­staða er við hval­veiði­bann eftir því sem eldri hóp­arnir eru.

Meirihluti fyrir hvalveiðibanni í Reykjavík en hvergi annarsstaðar

Mikill munur er á afstöðu fólks eftir búsetu. Í Reykja­vík segj­ast 58 pró­sent svar­enda vera hlynnt hval­veiði­banni með lögum og því nokkuð rúmur meiri­hluti fyrir slíku banni á meðal íbúa höf­uð­borg­ar­innar. Einungis 28 pró­sent borg­ar­búa eru and­víg hval­veiði­banni, sam­kvæmt nið­ur­stöðum Maskínu. 

Næst mestur eru stuðn­ing­ur­inn við hval­veiði­bann í nágranna­sveit­ar­fé­lögum Reykja­víkur, en þar eru alls 44 pró­sent fylgj­andi hval­veiði­banni og 40 pró­sent andsnúin því. 

Í lands­byggð­unum er hins vegar mikil and­staða við hval­veiði­bann, mest á Aust­ur­landi þar sem um 56 pró­sent svar­enda eru andsnúin banni, en hlut­fallið er um og yfir 50 pró­sent á öðrum lands­svæðum, sam­kvæmt könnun Maskínu. 

Háskólaborgarar vilja helst banna hvalveiðar

Þegar horft er til mennt­un­ar­stigs svar­enda sést að þau sem eru með háskóla­próf skera sig frá öðrum hópum. Um 57 pró­sent þeirra sem eru með háskóla­próf er hlynnt hval­veiði­banni en um 28 pró­sent þeirra á móti. 

Í þeim hópi sem hefur fram­halds­skóla­próf eða iðn­menntun eru 35 pró­sent hlynnt hval­veiði­banni en 48 pró­sent and­víg hval­veiði­banni og hlut­fallið er svipað í hópi þeirra sem hafa grunn­skóla­próf.

Stuðningsmenn flokka utan þings helst á móti hvalveiðum

Lítill munur er á afstöðu hópa til hval­veiði­banns þegar horft er til heim­il­is­tekna, en hins­vegar er breyti­leik­inn mjög mik­ill þegar horft til stjórn­mála­skoð­ana. Athygli vekur að þegar horft er á stuðn­ing við flokka í sam­hengi við afstöðu til hval­veiði­banns sést að and­staðan við hval­veiðar er mest í þeim hópum sem segja að þeir myndu kjósa flokka sem náðu ekki kjöri á þing í kosn­ing­unum í byrjun des­em­ber.

Stjórn­mála­skoð­anirSpurt var: Ertu hlynnt(ur) eða and­víg(ur/t) því að banna hval­veiðar með lögum?

Þannig segj­ast um eða yfir 80 pró­sent stuðn­ings­manna Pírata og Vinstri grænna hlynnt hval­veiði­banni og um 65 pró­sent þeirra sem segja að þau myndu kjósa Sós­í­alista­flokk­inn. Það er raunar nán­ast sama hlut­fall og hjá flokki for­sæt­is­ráð­herra, en um 66 pró­sent stuðn­ings­fólks Sam­fylk­ingar seg­ist hlynnt hval­veiði­banni. 

Einnig er meiri­hluti fyrir slíku banni meðal stuðn­ings­fólks Við­reisnar, en 53 pró­sent þeirra segj­ast hlynnt hval­veiði­banni. Hjá þriðja rík­is­stjórn­ar­flokknum, Flokki fólks­ins, er and­staðan við hval­veiði­bann hins­vegar meiri en um 44 pró­sent kjós­enda Ingu Sæland segj­ast and­víg hval­veiði­banni, á meðan að 30 pró­sent þeirra eru hlynnt því. 

Andstaða er við hval­veiði­bann hjá fylg­is­mönnum allra þriggja stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna. Tæp 60 pró­sent fram­sókn­ar­manna, 75 pró­sent mið­flokks­manna og 72 pró­sent sjálf­stæð­is­manna eru and­víg því að hval­veiðar verði bann­aðar með lögum á Íslandi.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár