Heilbrigðisþjónusta á Íslandi ekki sambærileg við Norðurlöndin lengur

Læknum á Íslandi er meinað að beita gagn­reyndum og við­ur­kenndum með­ferð­ar­úr­ræðum við lifr­ar­bólgu C, sem þýðir að heil­brigð­is­þjón­usta á Íslandi er ekki lengur sam­bæri­leg við þjón­ustu ann­ars staðar á Norð­ur­lönd­unum. Þetta segir Reynir Arn­gríms­son, for­maður Lækna­ráðs Land­spít­al­ans, í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu í dag um ný lyf við lifr­ar­bólgu C.

Tilefnið er dóms­mál sem Fanney Björk Ásbjörns­dóttir hefur höfðað gegn rík­inu vegna þess að henni hefur verið synjað um nýj­ustu lyf við lifr­ar­bólgu C. Málið hefur fengið flýti­með­ferð fyrir hér­aðs­dómi Reykja­víkur og verður lík­lega tekið fyrir í ágúst.

Fá ekki að gefa ný lyf þrátt fyrir augljósa þörf


Fanneyju og öðru fólki með lifr­ar­bólgu C á Íslandi hefur verið synjað um ný lyf sem geta upp­rætt veiruna vegna þess að kaup á lyfj­unum rúm­ast ekki innan ramma fjárl­veit­inga. Bæði Lyfja­greiðslu­nefnd og Sjúkra­trygg­ingar Íslands hafa kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að ekki sé svig­rúm til kaupa á svo dýrum lyfjum. Ef dóm­stólar stað­festa þessa nið­ur­stöðu og ákvörð­unin fær að standa á „for­sendum fjár­heim­ilda óháð þörf hinna veiku á slíkri lífs­nauð­syn­legri með­ferð og ráð­legg­ingum lækna er sú útkoma bæði sið­ferði­lega og lækn­is­fræði­lega óásætt­an­leg og óhugs­andi,“ segir Reynir.

„Ný teg­und lyfja sem upp­rætir sýk­ing­una á nokkrum vikum og þolist vel hefur komið fram á allra síð­ustu árum og er m.a. notuð ann­ars staðar á Norð­ur­löndum. Vegna kostn­aðar hefur með­ferðin víð­ast verið tak­mörkuð við þann hóp sjúk­linga sem eru með umtals­verða örmyndun í lifur eða komnir með skorpulifur,“ segir Reynir í grein sinni. „Á Íslandi er enn stuðst er við eldri með­ferð­ar­úr­ræðin sem hafa minni virkni, tíð­ari og alvar­legri auka­verk­anir og þol­ast mun verr af sjúk­lingum en hin nýju lyf.“

Sér­fræð­ingar í lifr­ar­sjúk­dómum hafi bent á nauð­syn þess að fá aðgang að þessum nýju með­ferð­ar­úr­ræðum, og að tals­verður hópur fólks geti ekki beðið lengur eftir lyfj­unum. „Þrátt fyrir aug­ljósa þörf þess­ara sjúk­linga á frek­ari með­ferð hefur reynst ómögu­legt að fá heim­ild til að beita nýju lyfj­unum.“

Afleiðingar dómsmáls víðtækar og hafa fordæmisgildi


Sem fyrr segir hefur rík­inu verið stefnt vegna máls­ins. Reynir segir dóm í þessu máli, ef ákvörðun vald­hafa fái að standa, geta haft mun víð­tæk­ari þýð­ingu og for­dæm­is­gildi en blasi við í fljótu bragði. „Sú sið­ferði­lega kvöð á heil­brigð­is­yf­ir­völdum að veita þessum sjúk­linga­hópi bestu mögu­lega og lífs­nauð­syn­lega með­ferð breyt­ist ekki.“

Reynir segir að fjár­veit­ingar til lækn­inga verði að sníða að verk­efnum, frekar en að reyna að knýja þörf og úrræði að van­á­ætl­uðum fjár­heim­ildum. Sveigj­an­leiki verði að vera til staðar til að taka á málum sem þessum.

„Fyrir læknum eru allir sjúk­linga­hópar og veik­indi þeirra jafn­rétthá. Grund­vall­ar­at­riði er að aðgengi að við­ur­kenndri og gagn­reyndri með­ferð sé miðlað jafn­ræð­is­grund­velli óháð því hver á í hlut og hver veik­indin eru.“ Það sé mik­il­vægt að fjár­veit­inga­valdið og heil­brigð­is­yf­ir­völd komi saman og beiti sér fyrir sátt í mál­inu, og að sá hópur sem er í brýnni þörf geti hafið með­ferð strax.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár