Fari best á því að tala varlega

Þing­maður Pírata spurði félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra hvort „hunda­flautu­tal“ dóms­mála­ráð­herra varð­andi flótta­fólk fengi að við­gang­ast „algjör­lega óáreitt“ af stjórn­ar­liðum. Ráðherra sagði að í svona málum færi best á því að tala var­lega.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson félags- og vinnumarkaðsráðherra var til svara í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í morgun.
Guð­mundur Ingi Guð­brands­son félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra var til svara í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í morgun. Mynd: Bára Huld Beck

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra sagði í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag að í mál­efnum flótta­fólks færi „best á því að tala var­lega“, tala af virð­ingu um fólk og tala með þeim hætti að „við höfum frið að leið­ar­ljósi því að frið­ur­inn er und­ir­staða þess að við getum áfram búið í lýð­ræð­is­sam­fé­lögum og búið við vel­ferð sem við viljum öll halda áfram að byggja upp“.

Hann teldi það jafn­framt mjög mik­il­vægt að Íslend­ingar sýndu sam­stöðu með flótta­fólki frá Úkraínu og tækju þeim með opnum örmum sem þarna búa við aðstæður sem „við öll eigum mjög erfitt með að setja okkur inn í“.

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir þing­maður Pírata spurði ráð­herr­ann meðal ann­ars hvort ekki bæri að mót­mæla orðum Jóns Gunn­ars­sonar dóms­mála­ráð­herra um mál­efni flótta­fólks af hálfu stjórn­ar­liða. „Á þetta hunda­flautu­tal að fá að við­gang­ast algjör­lega óáreitt af stjórn­ar­liðum?“ spurði hún.

Má þetta bara í ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur?

Þór­hildur Sunna hóf fyr­ir­spurn sína á því að benda á að Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra hefði lýst yfir sér­stökum áhyggjum af því að flótta­fólk ann­ars staðar frá en frá Úkraínu mis­not­aði sér þær til­slak­anir sem nágranna­ríki Úkraínu hefðu gert á landa­mærum sínum til að kom­ast yfir landa­mærin. Vísaði hún í orð ráð­herr­ans þar sem hann sagði að mörg lönd hefðu áhyggjur af því að fólk sem hefði ekki „heil­indin með sér“ væri að nota þetta tæki­færi til að kom­ast inn í Evrópu.

[links]„Sami ráð­herra hefur ekki ein­ungis efast um heil­indi þess flótta­fólks sem nú leggur á sig mikið erf­iði við að kom­ast frá Úkraínu og í skjól, hann beinir einnig sjónum sínum og spjótum að flótta­fólki sem fyrir er á Íslandi og sakar það um að teppa veg Úkra­ínu­manna í skjól til Íslands, raunar að það sé að koma í veg fyrir að hægt sé að taka við flótta­fólki til Íslands frá Úkraínu. Hann vekur athygli á neyð­ar­á­standi hjá Útlend­inga­stofnun og kyndir undir andúð gagn­vart þessum hópum, egnir þá upp hvor á móti öðrum,“ sagði hún.

Þá sagð­ist hún hafa séð við­tal við Guðmund Inga þar sem hann héldi því til haga að Útlend­inga­stofnun myndi ekki standa í vegi fyrir því að tekið yrði á móti flótta­fólki frá Úkraínu.

„Ég tek því sem svo að ráð­herra sé ósam­mála full­yrð­ingum hæst­virts dóms­mála­ráð­herra, að minnsta kosti hvað það varðar að hér sé verið að teppa þjón­ustu. Ég er ekki að óska eftir afstöðu ráð­herr­ans gagn­vart þessum stað­hæf­ingum, ég óska eftir því að ráð­herr­ann tjái sig um það þegar æðsti yfir­maður útlend­inga­mála, sem deilir þessum verk­efnum með hæst­virtum félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra, tjáir sig með þessum hætti um þessa við­kvæmu hópa eins og raun ber vitni. Ber ekki að mót­mæla honum af hálfu stjórn­ar­liða? Á þetta hunda­flautu­tal að fá að við­gang­ast algjör­lega óáreitt af stjórn­ar­liðum? Má þetta bara í rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur?“ spurði hún eins og áður segir.

Mikilvægt að sýna samstöðu með flóttafólki frá þessu svæði

Guð­mundur Ingi byrj­aði á því að þakka Þórhildi Sunnu fyrir fyr­ir­spurn­ina og fyrir að taka upp mál­efni fólks á flótta frá Úkraínu „út af þessu hörmu­lega stríði sem þarna geisar og við erum öll sam­mála um að sé hræði­legt fyrir ekki bara það fólk sem þarna býr heldur í raun­inni fyrir það hvernig það ógnar heims­friði“.

Hann sagð­ist hafa lýst því skýrt yfir, sem og utan­rík­is­ráð­herra, for­sæt­is­ráð­herra, dóms­mála­ráð­herra og fleiri ráð­herrar, að Ísland myndi taka á móti fólki frá Úkraínu.

„Það er merg­ur­inn máls­ins og við það munum við að sjálf­sögðu standa. Ég tel það mjög mik­il­vægt að við sýnum sam­stöðu með flótta­fólki frá þessu svæði og með öðrum Evr­ópu­ríkjum þegar þau stíga fram og taka á móti fólki, taka með opnum örmum á móti þeim sem þarna búa við aðstæður sem við öll eigum mjög erfitt með að setja okkur inn í. Ég er þeirrar skoð­unar, svo að ég komi nú að því að svara spurn­ingu hátt­virts þing­manns, að í svona málum þá fari best á því að tala var­lega, tala af virð­ingu um fólk og tala með þeim hætti að við höfum frið að leið­ar­ljósi því að frið­ur­inn er und­ir­staða þess að við getum áfram búið í lýð­ræð­is­sam­fé­lögum og búið við vel­ferð sem við viljum öll halda áfram að byggja upp,“ sagði ráð­herr­ann.

Ætlar ráðherrann að rýma húsnæði til að koma „réttu flóttamönnunum“ fyrir?

Þór­hildur Sunna kom í pontu í annað sinn og sagði að það að tala var­lega væri kannski frekar veik afstaða gagn­vart þess­ari orð­ræðu sem hefði verið í gangi, „svo ég segi ekki meira“.

„Ég for­dæmdi þessi ummæli og sagði þau með ógeð­felld­ari atriðum í útlend­ingapóli­tík á Íslandi sem ég hefði upp­lifað. En jú, það er hægt að biðja ráð­herr­ann um að tala var­lega um mála­flokk sem hann fer fyrir. Ráð­herr­ann sagði einnig að hann væri að vekja athygli á þeirri alvar­legu stöðu að flótta­fólk frá Afganistan, Sýrlandi og fleiri stríðs­hrjáðum ríkjum væri að teppa aðstöð­una fyrir Úkra­ínu­mönnum. Hann ætli að koma með nýtt útlend­inga­frum­varp sem muni leysa þessi brýnu mál fyrir okkur,“ sagði hún.

Benti hún á að það væri í verka­hring ráð­herr­ans að sinna hús­næð­is­málum hæl­is­leit­enda og að nýbúið væri að flytja þann við­kvæma flokk til hans. Spurði hún því hvort hann myndi standa fyrir því að rýma hús­næði ann­arra flótta­manna en þeirra frá Úkraínu til að hægt væri að koma „réttu flótta­mönn­unum“ fyrir.

Ætlar að ræða frumvarpið þegar ferlið væri komið lengra

Guð­mundur Ingi svar­aði og sagð­ist ætla að vera „alveg skýr“ með það að það væri ekki verið að teppa eitt eða neitt þegar kæmi að mót­töku fólks frá Úkraínu.

„Við munum ekki láta mál­efni ann­arra hópa eða hvernig staðan er hjá Útlend­inga­stofnun hafa áhrif á það að við tökum á móti fólki frá Úkraínu. Það væri ekki mikil mannúð í því,“ sagði hann.

Hvað varð­aði drög að frum­varpi dóms­mála­ráð­herra sem Þór­hildur Sunna nefndi þá væri það í sam­ráðs­gátt stjórn­valda – reyndar væri búið að leggja það þar fram.

„Ég hef ekki séð frum­varpið eftir að það kom úr sam­ráði og við höfum ekki farið yfir þann hluta sem snýr að mínu ráðu­neyti. En það munum við að sjálf­sögðu gera og frum­varpið vænt­an­lega koma síðan fyrir rík­is­stjórn eins og ferlið er og við skulum ræða málin þegar þau verða komin lengra,“ sagði hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár