„Þessi málflutningur er með öllu óboðlegur“

Þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar segir dóms­mála­ráð­herra stilla hópum flótta­fólks upp á móti hvorum öðrum með óboð­legum mál­flutn­ingi. For­sæt­is­ráð­herra segir skipta máli hvernig talað er um hópa í við­kvæmri stöðu, líkt og flótta­fólk.

Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra segir neyðarástand ríkja hjá Útlendingastofnun. Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingar, segir málaflutning dómsmálaráðherra með öllu óboðlegan.
Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra segir neyð­ar­á­stand ríkja hjá Útlend­inga­stofnun. Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ingar, segir mála­flutn­ing dóms­mála­ráð­herra með öllu óboð­legan. Mynd: Samsett mynd

Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ingar, hefur áhyggjur af þeim und­ir­tóni sem hefur verið hjá Jóni Gunn­ars­syni dóms­mála­ráð­herra hvað varðar umræðu um mót­töku flótta­fólks frá Úkraínu.

Í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í dag fagn­aði hún afstöðu utan­rík­is­ráð­herra gagn­vart því að greiða hingað leið flótta­fólks frá Úkraínu. „En ég verð að segja að ég hef áhyggjur af þeim und­ir­tóni sem hefur verið hjá hæst­virtum dóms­mála­ráð­herra,“ sagði Helga Vala.

Vísaði hún þannig í orð ráð­herra í við­tali í kvöld­fréttum Stöðvar 2 fyrir helgi þar sem hann sagði hreint neyð­ar­á­stand ríkja hjá Útlend­inga­stofnun sem lýsti sér meðal ann­ars í því að flótta­menn sem eru hér fyrir „teppi hús­næði og aðstöðu fyrir aðra sem við myndum vilja taka á móti“. Vísaði hún einnig í orð ráð­herra í sam­tali við RÚV í gær þar sem hann sagði að mörg lönd hafi áhyggjur af því að fólk sem hefur ekki heil­indin með sér nota þetta tæki­færi til að kom­ast inn í Evrópu.

Stuðning við flóttafólk frá Úkraínu megi ekki nota til að grafa undan öðru flóttafólki

„Þessi mál­flutn­ingur er með öllu óboð­legur,“ sagði Helga Vala. Að hennar mati er dóms­mála­ráð­herra með þessum hætti að stilla hópum upp hvorum á móti öðrum. „Stuðning við flótta­fólk frá Úkraínu má ekki nota til að grafa undan öðru flótta­fólki sem einnig hefur flúið neyð, jafn­vel sömu neyð, þótt það kunni að vera ann­arrar trúar eða af öðrum kyn­þætti. Það er skylda okkar sem þjóðar á meðal þjóða að veita hér stuðn­ing og skjól, hvort sem um er að ræða úkra­ínskan almenn­ing eða fólk af öðru þjóð­erni og af öðrum kyn­þætti sem einnig flýr stríðs­á­tök og ofsóknir,“ sagði Helga Vala.

Hún spurði Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra hvort hún tæki undir með dóms­mála­ráð­herra og hefði sömu áhyggjur og hann af „svindli í kerf­inu og mis­notkun á þess­ari neyð?“

For­sæt­is­ráð­herra svar­aði ekki beint en vís­aði í fund sem félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra átti með flótta­manna­nefnd á föstu­dag þar sem ráð­herra fól nefnd­inni að fylgj­ast með ástand­inu, afla gagna og skoða hvað nágranna­þjóðir Íslands hyggj­ast gera og gera til­lögu til rík­is­stjórn­ar­innar. Þá sagði hún að hús­næð­is­mál Útlend­inga­stofn­unar muni ekki standa í vegi fyrir mót­töku flótta­manna frá Úkraínu.

Katrín tjáði sig að öðru leyti ekki um orð dóms­mála­ráð­herra en sagð­ist vilja leggja áherslu á það að um er að ræða fólk í mjög við­kvæmri stöðu. „Það skiptir að sjálf­sögðu máli hvernig við tölum um þessa hópa,“ sagði for­sæt­is­ráð­herra.

Annar hópurinn þurfi að díla við Útlendingastofnun en hinn komi hingað í boði ríkisstjórnarinnar

Varðandi fund flótta­manna­nefndar benti Helga­Vala á að nefndin hefur aðal­lega verið að hugsa um svo­kall­aða kvótaflótta­menn en ekki það fólk sem kemur hingað á eigin vegum í leit að vernd. „Ég held að við verðum að átta okkur á því og öll rík­is­stjórnin að þetta eru ólíkir hópar sem fá mjög ólíka þjón­ustu á Íslandi. Annar hóp­ur­inn þarf að díla við Útlend­inga­stofnun og það sem þar á sér stað og hinn hóp­ur­inn kemur hingað í boði rík­is­stjórnar.“

Katrín benti á að unnið hafi verið að því að reyna að koma á sam­ræmdu mót­töku­kerfi fyrir flótta­fólk en að málið hafi stoppað all­nokkrum sinnum á Alþingi á síð­asta kjör­tíma­bili.

„En ég vil ítreka að við munum svara kall­inu um að taka á móti fólki og ég vil líka benda á að það skiptir einnig máli að styðja betur við mann­úð­ar­að­stoð á staðnum, því að þar er staðan auð­vitað mjög þung,“ sagði for­sæt­is­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár