Sigurður Ingi: Setur hroll að mörgum vegna styrkingar

Formaður Fram­sókn­ar­flokks­ins gagn­rýndi rík­is­stjórn­ina fyrir aðgerð­ar­leysi - almennt - en sagði styrk­ingu krón­unnar ógn­vekj­andi.

Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, sagði styrk­ingu krón­unnar að und­an­förnu vera mikið áhyggju­efni, í ræðu sinni í eld­hús­dags­um­ræðum á Alþingi. Það stefnu­leysi sem rík­is­stjórnin hafi sýnt í efna­hags­málum, þar sem ráð­herrar tali þvert gegn hvor öðrum, sé ekki til að bæta stöð­una. 

Sigurður Ingi kom sér­stak­lega inn á gengi krón­unnar gagn­vart helstu við­skipta­myntum, en það hefur styrkst veru­lega að und­an­förnu. Banda­ríkja­dalur kostar nú tæp­lega 100 krónur en fyrir rúm­lega einu og hálfu ári kost­aði hann 140 krónur, svo dæmi sé tekið. 

Sagði Sigurður Ingi það enn fremur vera áhyggju­efni að vaxta­muna­við­skipti séu hafin á nýjan leik. Augljóst væri að vextir væri of háir og að nýleg til­kynn­ing Seðla­banka Íslands um að hætta kaupum á gjald­eyri væri ekki í takt við stöðu mála. „Hafi verið þörf á að kaupa gjald­eyri fram til þessa, er al­veg aug­ljóst að þörf­in er meiri nú en nokkru sinni. Fram hef­ur komið í frétt­um að svo virð­ist sem vaxta­muna­við­skipti séu að ná sér á strik á ný og ég veit fyr­ir víst að það set­ur hroll að mörg­um við þær frétt­ir. Enda höfðu þau við­skipti ör­ugg­lega mikið um það að segja, hversu illa fór haustið 2008,“ sagði Sigurður Ingi. 

Þá gagn­rýndi hann rík­is­stjórn­ina fyrir að vera alveg verk­lausa, þegar kæmi að stefnu­mörkun í efna­hags­málum. Hún hefði tekið við góðu búi, en nú væri hætta á því að stefnu­leysið myndi grafa undan góðu gengi. „Krón­an er fram­tíðar­gjald­mið­ill Íslands, seg­ir for­sæt­is­ráð­herra, fjár­mála­ráð­herr­ann hins veg­ar tal­ar niður krón­una hvenær sem færi gefst. Það er merki­legt að upp­lifa það, að fjár­mála­ráð­herra lands­ins skuli vera svo takt­laus að tala niður gjald­miðil þjóðar­inn­ar – á er­lend­um sem inn­lend­um vett­vangi. Það má vera að ófynd­in fram­setn­ing hans í ástar­játn­ingu til evr­unn­ar, sé fynd­in í þröng­um hópi Viðreisn­ar, en ég hygg þó að fleiri séu undr­andi á þess­ari fram­komu,“ sagði Sig­urður Ingi í ræðu sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár