Tesla opnar á Íslandi eftir rúma viku

Banda­ríski raf­bíla­fram­leið­and­inn opnar starfs­stöð á Íslandi 9. sept­em­ber næst­kom­andi. Elon Musk stað­festi þetta á Twitter í gær.

Tesla Model 3 er söluhæsti bíll rafbílaframleiðandans og vinsælasti rafbíllinn í Evrópu og Bandaríkjunum.
Tesla Model 3 er sölu­hæsti bíll raf­bíla­fram­leið­and­ans og vin­sæl­asti raf­bíll­inn í Evrópu og Banda­ríkj­unum. Mynd: Tesla

Tesla á Íslandi mun opna þjón­ustu­mið­stöð hér­lendis 9. sept­em­ber næst­kom­andi. Þetta stað­festi Elon Musk, stofn­andi og aðal­eig­andi raf­bíla­fram­leið­and­ans á Twitter í gær.

Búið er að koma merki Tesla fyrir á hús­næði við Krókháls í Reykja­vík og á vef Tesla segir að til standi að setja upp öfl­ugar hrað­hleðslu­stöðvar, svo­kall­aðar „superchargers“, á fjórum stöðum á land­inu í nán­ustu fram­tíð. Þær eiga að vera í Reykja­vík, á Kirkju­bæj­ar­klaustri, Egils­stöðum og við Stað­ar­skála. Slíkar stöðvar hlaða raf­bíla á um hálf­tíma.

Tesla Model 3 er sem stendur vin­sæl­asti raf­bíll Evrópu. Í júní síð­ast­liðnum seld­ust 11.604 slíkir bílar. Næst vin­sæl­asti raf­bíll­inn var Renault Zoey, en 4.881 slíkir seld­ust í þeim mán­uði.

Vin­sældir hans í Banda­ríkj­unum eru enn meira afger­andi, en það sem af er ári hafa þar selst 81.100 slíkir í land­inu. Næst sölu­hæsti raf­bíll­inn þar er Toyota Prius Prime en 11.555 ein­tök af þeirri teg­und hafa selst í Banda­ríkjum á fyrstu sjö mán­uðum árs­ins 2019. Þriðji vin­sæl­asti raf­bíl­inn þar er síðan önnur Tesla, Model X, sem selst hefur í 10.225 ein­tökum í ár.

Í lok apríl sagði Morg­un­blaðið frá því að Tesla væri með áform um að opna ein­hvers konar útibú á Íslandi og að það yrði stað­sett í Krók­hálsi. Í maí var greint frá því á vef­síðu Tesla af fyr­ir­tækið væri að aug­lýsa eftir versl­un­ar­stjóra, sölu­manni, tækni­manni og þjón­ustu­full­trúa í fullt starf. Þá var einnig aug­lýst staða vöru­sér­fræð­ings í hluta­starfi.

Stefnt að 100 þúsund rafbílum á Íslandi eftir rúman áratug

Íslenski fólks­bíla­flot­inn taldi alls 220 þús­und bíla um mitt þetta ár. Þar af voru 3.155 hreinir raf­magns­bíl­ar. Þá voru um 7.000 tengilt­vinn­bílar og 1.551 met­an­bílar hér á landi. Sala á bílum sem eru að ein­hverju eða öllu leyti knúnir af raf­orku hefur auk­ist gríð­ar­lega á und­an­förnum árum. Á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2019 hafa hreinir raf­magns­bílar auk tengilt­vinn­bíla og hybrid bíla verið tæp­lega 22 pró­sent af heild­ar­bíla­söl­unni hér á land­i.

Rík­­is­­stjórn Íslands lagði fram aðgerða­á­ætlun í lofts­lags­­málum í sept­­em­ber í fyrra. Mark­miðið með áætl­­un­inni er að draga úr losun gróð­­ur­húsa­­loft­teg­unda og stuðla að auk­inni kolefn­is­bind­ingu þannig að Ísland geti staðið við ­­mark­mið Par­ís­­ar­­samn­ings­ins til 2030 og mark­mið rík­­is­­stjórn­­­ar­innar um kolefn­is­hlut­­leysi árið 2040. Eitt af áherslu­at­riðum áætl­­un­­ar­innar eru orku­­skipti í sam­­göngum sem er stærsti los­un­­ar­þátt­­ur­inn sem snýr að beinum skuld­bind­ingum Íslands­­. Í heild­ina áætlar rík­­is­­stjórnin að verja 1,5 millj­­arða króna til orku­­skipta á fimm ára tíma­bili.

Eitt af þeim aðgerðum sem finna má í áætl­­un­inni er að ­­stuðn­­ingur við inn­­viði fyrir raf­­bíla og aðrar vist­vænar bif­­reið­­ar. Sam­­kvæmt áætl­­un­inni er stefnt að því að draga losun frá vega­­sam­­göngum um 35 pró­­sent til árs­ins 2030 eða um helm­ing frá því sem nú er. Einn angi af því mark­miði er að árið 2030 verða 100.000 skráðir raf­­bílar og önnur vist­væn öku­tæki á Ísland­i.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár