Kosningaspáin mælir Pírata næst stærsta

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með mest fylgi sam­kvæmt kosn­inga­spá sem gerð var fyrir Kjarnann úr nýj­ustu skoð­ana­könn­unum. Flokk­ur­inn fengi rétt tæpan fjórð­ung atkvæða ef gengið yrði til kosn­inga nú. Píratar hafa næst mest fylgi á eftir Sjálf­stæð­is­flokknum með 23,6 pró­sent atkvæða.

Kjarninn leit­aði til Baldurs Héð­ins­sonar, stærð­fræð­ings, og bað hann að keyra spálíkan fyrir Alþing­is­kosn­ingar byggða á síð­ustu könn­unum sem birtar hafa verið. Þær kann­anir sem reikn­aðar eru með og gefið vægi eru könnun Capacent sem gerð var 29. jan­úar til 25. febr­úar, könnun Frétta­blaðs­ins dag­ana 10. til 11. mars, könnun MMR dag­ana 13. til 18. mars og könnun Frétta­blaðs­ins 18. til 19. mars.

Niðurstöður kosningaspárinnar




Augljóst er af nið­ur­stöðum kosn­inga­spár­innar að Píratar eru á góðri sigl­ingu þessa dag­ana. Kannanir MMR ofmátu fylgi Pírata nokkuð veru­lega fyrir síð­ustu Alþingis- og borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar. Það gerði Frétta­blaðið líka, þó ekki eins mikið.

Í lík­an­inu er könn­unum gefið vægi eftir stærð úrtaks, aldri og fleiri breytum. Capacent-könn­unin síðan 25. febr­úar tók stærsta úrtakið af þeim könn­unum sem hafðar voru til hlið­sjónar en sú könnun er jafn­framt sú elsta.

„Capacent er áreið­an­leg­asti könn­un­ar­að­il­inn sam­kvæmt minni grein­ingu,“ segir Baldur í tölvu­pósti til Kjarnans og bætir við að áhuga­vert verði að fá næsta Þjóð­ar­púls sem vænt­an­lega verður birtur í byrjun apríl. „[Hann] mun gefa góða vís­bend­ingu um hver staða Pírata er.“

Píratar hlutu 5,1 pró­sent atkvæða í Alþing­is­kosn­ing­unum 2013 og eiga þrjá þing­menn á Alþingi. Flokk­ur­inn hefur í síð­ustu könn­unum (MMR og Frétta­blað­inu) mælst með mest fylgi þeirra sex flokka sem sitja á Alþingi nú. Í nýj­ustu könn­un­inni mæld­ist flokk­ur­inn með 29,1 pró­sent fylgi sem myndi duga þeim til að næla í 19 þing­menn. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sem ítrekað hefur mælst stærstur í fylgiskönn­unum frá kosn­ingum 2013, mæld­ist næst stærstur eða með 23,4 pró­sent.

[caption id="attachment_22786" align="alignnone" width="642"] Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, þykir hafa staðið sig vel að und­an­förnu og margir þakka ekki síst honum fylg­is­aukn­ingu Pírata hér á landi.[/caption]

Aðrir flokkar fastir


Fylgi ann­arra flokka en Pírata hefur breyst lítið síðan í kosn­ing­unum 2013, sé Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn und­an­skil­inn. Framsókn vann mik­inn kosn­inga­sigur þá en síðan hefur fylgið týnst af flokknum í hverri skoð­ana­könn­un­inni á fætur ann­ari. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn fengi aðeins 11,0 pró­sent atkvæða sam­kvæmt kosn­inga­spánni, miðað við 24,4 pró­sent í kosn­ingum.

Sam­fylk­ingin fengi 16,1 pró­sent atkvæða miðað við 12,9 pró­sent í kosn­ing­unum 2013. Nýjasta könn­unin sem tekin er með í kosn­inga­spánni er gerð í vik­unni fyrir lands­fund flokks­ins um síð­ast­liðna helgi. Seinni könn­un­ar­dag­ur­inn var 19. mars en að kvöldi þess dags kynnti Sigríður Ingi­björg Inga­dóttir for­manns­fram­boð gegn sitj­andi for­manni Árna Páli Árnasyni á fund­inum. Lands­fund­ur­inn og atburð­irnir í aðdrag­anda hans hafa því mjög tak­mörkuð áhrif á nið­ur­stöðu kosn­inga­spár­innar.

Stuðn­ingur við Bjarta fram­tíð hefur auk­ist lít­il­lega og mælist nú 10,1 pró­sent miðað við 8,2 pró­sent í kosn­ingum. Vinstri græn hafa staðið nokkurn veg­inn í stað og mæl­ast með 10,2 pró­sent fylgi en fengu 10,9 pró­sent.

[caption id="" align="alignnone" width="800"] Alþing­is­kosn­ingar eru venju­lega haldnar á fjög­urra ára fresti og verða næst haldnar árið 2017. (Mynd: Birgir Þór Harð­ar­son)[/caption]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár