Mynd: Heiða Helgadóttir

„Myrkrið er hluti af mér“

Skáldið Soffía Lára ferðast milli ljóss og myrkurs í lífi sem list. Hún hefur oft reynt að svipta sig lífi. Hún var umlukin óreiðu en á sér drauma um einfalt líf og skrifar sig eftir leiðinni að því.

Soffía Lára svaf í skáp um daginn, vegna þess að hún átti ekki dýnu. Það er þó framför frá því í sumar þegar hún var heimilis­laus og þræddi göturnar með ritvél í bakpoka. Hún svaf í hengirúmi við hafið í miðnætur­sólinni. Þess á milli reyndi hún að selja ljóða­bækurnar sínar á götunni og á börum. Hún gefur út ljóðin sjálf. Þau fjalla um leið hennar í myrkrinu og í ljósinu.
Soffía Lára situr og segir frá á Hressó. Hún er í kolsvartri loðkápu með hettu en á loðinu eru hvítar, tilviljana­kenndar rákir. Hún fann leiðina til að losa sig við myrkrið.

Skrifin

Þegar Soffía Lára var sautján ára komst hún að þeirri niður­stöðu að hún yrði að gera eitthvað. Hún bjó ein í risíbúð í Vesturbæ Reykja­víkur ásamt þremur köttum.

„Ég var að lifa lífinu. Mjög hversdags­lega. Ég átti ketti. Vaskaði upp. Keypti í matinn. Þá datt mér í hug: Ég verð að gera eitthvað við líf mitt. Hvað á ég að gera? Ég er góð í málfræði og íslensku og svona, ég skrifa bara bækur. Ég verð bara rithöfundur eða ljóðskáld eða hvað þú vilt kalla það, ég bara skrifa. Ég vissi ekkert hvað ég var að gera. Ég hafði aldrei skrifað sögu eða ljóð. En mér datt þetta bara í hug. Hvað á ég að gera? Ég verð að hafa 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár