Samfylkingin og Píratar samþykkja að hefja formlegar viðræður

Þing­flokkar Pírata og Sam­fylk­ing­ar­innar sam­þykktu á fundum sínum í gær­kvöldi að hefja form­legar við­ræður um myndun fimm flokka rík­is­stjórnar. Hinir flokk­arnir sem eiga aðkomu að við­ræð­unum, Viðreisn, Björt fram­tíð og Vinstri græn, munu taka ákvörðun um fram­haldið í dag. Óform­legar við­ræður hafa staðið yfir í tíu daga.

Formenn flokk­anna fimm fund­uðu í gær­kvöldi og í kjöl­far fóru fram þing­flokks­fundir hjá þeim öllum. Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans stendur til að halda þing­flokks­fundi hjá Vinstri grænum áfram fyrri part­inn í dag og þar á að taka ákvörðun gagn­vart því hvort farið verði í form­legar við­ræður eða ekki. For­ystu­fólk flokanna fimm ætlar síðan að funda í hádeg­inu í dag og búist er við að þar verði tekin loka­á­kvörðun um hvort að form­legar við­ræður muni hefj­ast á morgun, þriðju­dag.

Þing­flokkar Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar fund­uðu fyrst einir og sér í gær en síðan saman. Flokk­arnir tveir hafa verið í nánu sam­starfi í þeim stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum sem þegar hafa átt sér stað. Fyrir liggur að lengst er á milli Vinstri grænna og Við­reisnar í nokkrum lyk­il­málum sem þarf að ná mála­miðlun í. Þar ber meðal ann­ars að nefna sjáv­ar­út­vegs­mál, land­bún­að­ar­mál og tekju­öfl­un­ar­leiðum sem þyrfti að fara til að auka rík­is­út­gjöld veru­lega, sér­stak­lega vegna auk­inna fram­laga til vel­ferð­ar­mála og inn­viða­upp­bygg­ingar. Slík mála­miðlun lá ekki fyrir í gær, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans.

Píratar, sem halda á stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð­inu, hafa verið mjög jákvæðir út á við um hvort til muni takast að mynd fimm flokka rík­is­stjórn. Birgitta Jóns­dóttir, þing­flokks­for­maður þeirra, sagði í sjón­varps­þætt­inum Vikunni á föstu­dags­kvöld að hún teldi 90 pró­sent líkur á að það myndi nást saman. Smári McCarthy, þing­maður Pírata, sagði í þætt­inum Viku­lokin á Rás 1 um helg­ina að hann sæi ekki annað en að myndun rík­is­stjórn­ar­innar myndi ganga. Í sama þætti lýsti hins vegar Björn Val­ur Gísla­son, vara­for­maður Vinstri grænna, yfir furðu sinni á því að við­ræð­urn­ar nú væri komn­ar miklu lengra en síð­ast. hann til­tók þó að hann væri ekki beinn þátt­tak­andi í við­ræð­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár