Baráttunni ekki lokið á meðan fólk gleymist og situr eftir

Freyja Har­alds­dóttir seg­ist vera þakk­lát fyrir að vera bólu­sett og að heil­brigð­is­yf­ir­völd hafi sett hóp­inn sem hún til­heyrir í for­gang. Hún bendir þó á að fatlað fólk með aðstoð heima hafi gleymst í bólu­setn­ing­ar­ferl­inu.

Freyja Haraldsdóttir
Freyja Har­alds­dóttir Mynd: Aðsend mynd

„Ég er inni­lega þakk­lát fyrir að vera bólu­sett og að heil­brigð­is­yf­ir­völd hafi sett hóp­inn sem ég til­heyri í for­gang. Það er vald­efl­andi og heilandi að ein­hver sér virði okkar. En bar­átt­unni er ekki lokið á meðan fólk gleym­ist og situr eftir. Ekkert okkar verður frjálst fyrr en við erum það öll.“

Þetta segir Freyja Har­alds­dóttir, bar­áttu­kona fyrir rétt­indum fatl­aðs fólks og dokt­or­snemi, í stöðu­upp­færslu á Facebook í dag en hún var bólu­sett gegn COVID-19 í gær. Freyja hefur meðal ann­ars gagn­rýnt upp­lýs­inga­gjöf heil­brigð­is­yf­ir­valda til fatl­aðs fólks í COVID-far­aldri og sagt hana vera veru­lega ábóta­vant.

Rekur hún í færsl­unni ferlið sem leiddi að bólu­setn­ing­unni. „Þegar bólu­setn­ingar hófust var ég bara róleg því sam­kvæmt því sem ég las var ég ekki í fyrstu for­gangs­hóp­unum. Dagarnir liðu og ég fór að sjá fatlað fólk fá bólu­setn­ingu svo ég varð svo­lítið ugg­andi. Það sam­ræmd­ist ekki for­gangs­röð­un­inni í reglu­gerð­inni. Í fyrstu varð ég mjög hrædd um að þetta yrði til­vilj­un­ar­kennt og við sem hefðum hæst fengjum fyrst bólu­setn­ingu og þau sem eru ekki í aðstæðum til þess að sækj­ast eftir rétt­indum sínum sætu eftir. Ég var líka hrædd um að gleym­ast enda hef ég marg­ít­rekað gleymst í íslensku heil­brigð­is­kerfi,“ skrifar hún.

Ekki hafa öll sveitarfélög sinnt upplýsingaskyldu sinni til fatlaðs fólks

Freyja greinir frá því að hún hafi haft sam­band við heilsu­gæsl­una og engin svör fengið. Hún segir að samt hafi vel verið tekið á móti þessu sím­tali og starfs­fólk heilsu­gæsl­unnar sýnt áhyggjum hennar sam­kennd og skiln­ing. „Hún hvatti mig til þess að hafa sam­band við ein­hvern sem væri yfir NPA mála­flokknum en ég útskýrði fyrir henni að slíkur staður væri ekki til. Það væri vissu­lega NPA mið­stöðin, sem hefur staðið sig mjög vel í bar­áttu, upp­lýs­ingum og eft­ir­fylgni fyrir bólu­setn­ingum en við værum ekki öll í NPA mið­stöð­inni sem erum með NPA. Ég er til dæmis ein þeirra. Þá er líka hópur fatl­aðs fólks sem er með þjón­ustu heima hjá sér en ekki NPA. Það getur verið fólk með bein­greiðslu­samn­ing eða heima­þjón­ustu frá sveit­ar­fé­lag­inu sínu.“

NPA er not­enda­stýrð per­sónu­leg aðstoð sem er þjón­ustu­form sem byggir á hug­mynda­fræð­inni um sjálf­stætt líf og gerir fötl­uðu fólki meðal ann­ars kleift að ráða hvar það býr og með hverjum.

[links]Í kjöl­farið hafði Freyja sam­band við félags­þjón­ustu Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar, þar sem hún býr, en segir hún að þar hafi eng­inn verið með svör á reiðum höndum. „Þau brugð­ust þó hratt við og á innan við klukku­stund var ég komin með upp­lýs­ingar um verk­lagið. Ég sé mjög eftir því að hafa ekki strax gert það opin­bert, þó það sé ekki á minni ábyrgð, enda hefur þessi heims­far­aldur sýnt mér það að umfram allt er fatlað fólk almanna­varnir fyrir hvert annað. Þó svo að hið opin­bera hafi staðið sig vel á sumum stöðum að þá er það afar mis­jafnt og því getum við ekki treyst á það. Þetta kom í ljós aftur þegar sveit­ar­fé­lög hafa ekki öll sinnt upp­lýs­inga­skyldu sinni til fatl­aðs fólks sem býr heima og er með aðstoð,“ skrifar hún.

Fatlað fólk með aðstoð heima gleymist

Freyja bendir á að verk­lagið sjálft hafi ekki verið mjög aðgengi­legt. Til að mynda hafi hún þurft að senda læst word-skjal með upp­lýs­ingum á borð við nafn og kenni­tölu og upp­lýs­ingum um aðstoð­ar­fólk á til­tekið net­fang hjá heilsu­gæsl­unni. Svo hafi hún þurft að senda annan tölvu­póst með lyk­il­orði. „Ég fékk ekki stað­fest­ingu á mót­töku fyrr en viku seinna. Þetta var auð­veld fram­kvæmd fyrir mig en hún en er flókin fyrir marga og alls ekki aðgengi­leg fyrir alla.“

Í fyrra­dag fékk Freyja svo boð í bólu­setn­ingu og var hún bólu­sett í gær, eins og áður segir. „Fljót­lega, þökk sé sam­fé­lags­miðlum, sá ég að margir aðrir NPA not­endur hefðu líka fengið sitt boð. Mér var mjög létt að það væri komið að þessu og að þetta fyr­ir­komu­lag virt­ist hafa virkað. Bólu­setn­ingin gekk eins og sögu, það var vel tekið á móti mér og komið fram af virð­ingu. Einu auka­verk­an­irnar sem ég fann fyrir rétt á eftir var vel­virkni tára­kirtla og aukin til­finn­inga­semi en mig grunar að þær hafi verið óbeinar auka­verk­anir.

En þetta var auð­vitað of gott til þess að vera satt. Komið hefur í ljós að það var fatlað fólk með aðstoð heima sem gleymd­ist. Það er gjör­sam­lega óþol­andi en kemur samt ekki á óvart,“ skrifar hún.

Það sárasta og sannasta; líf fatlaðs fólks ekki metið þess virði að lifa því

Freyja lýkur færsl­unni á að til­taka mögulegar ástæður fyrir því að fatlað fólk með aðstoð heima hafi gleymst. Hún segir að verk­lagið sé meðal ann­ars óskýrt og til­vilj­ana­kennt hvernig sveit­arfélög hafi farið með það. Heil­brigð­is­kerfið treysti jafn­framt „um of á það að ein­hver óskil­greindur aðili, sem eng­inn veit samt hver er, sjái um fatlað fólk og reddi málunum. Sveit­arfélögin bera ábyrgð á fram­kvæmd félags- og fötl­un­ar­þjónustu á grund­velli laga sem þau þver­brjóta mjög gjarnan og ráða hrein­lega ekki við verk­efnið oft á tíðum. Fötluðu fólki er mis­munað á grund­velli búsetu og sveit­arfélög hafa eitt­hvað óskil­greint frelsi til þess að sinna þess­ari skyldu eftir dúk og disk,” skrifar hún.

Þá bendir hún á að ríkið, ráðu­neyti og und­ir­stofn­anir beri ábyrgð á eft­ir­liti en sinni því ekki sem skyldi og ef upp kemst að sveit­ar­fé­lag sé að brjóta á fötl­uðum þegnum sínum séu oft­ast engar afleið­ingar og eng­inn þurfi að bera ábyrgð. Sem þýði að breyt­ingar verði ekki. Í síð­asta lagi segir hún að sárasta og sann­asta ástæðan fyrir því að fatlað fólk með aðstoð heima gleym­ist sé að líf fatl­aðs fólks sé ekki metið þess virði að lifa því. „Þess vegna er fram­koman í okkar garð ómennsk.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár