„Nýr ógnvaldur“ við heilsu manna kominn fram á suðvesturhluta Íslands

Lungna­læknir segir að lítið sé vitað um lang­tíma­á­hrif vegna gasmeng­unar í lágum styrk til lengri tíma og áhrif kvikugasa í mjög miklum styrk í skamman tíma á lang­tíma­heilsu. Nauð­syn­legt sé að rann­sóknir hefj­ist sem fyrst.

Eldgos hófst í Geldingadölum í Fagradalsfjalli þann 19. mars síðastliðinn.
Eldgos hófst í Geld­inga­dölum í Fagra­dals­fjalli þann 19. mars síð­ast­lið­inn. Mynd: Golli

Mik­il­vægt er að vand­aðar vís­inda­rann­sóknir fari fram á áhrifum gasmeng­unar á heilsu manna svo að hægt sé að skera úr um áhrif þeirra á heilsu, bæði til lengri og skemmri tíma. Nauð­syn­legt er að slíkar rann­sóknir hefj­ist sem fyrst.

Þetta kemur fram í grein Gunnars Guð­munds­sonar, lungna­læknis við lungna­deild Land­spít­ala og lækna­deild Háskóla Íslands, „Eldgos og eitr­aðar loft­teg­undir“ í nýjasta riti Lækna­blaðs­ins.

Fram kemur í máli hans að kom­inn sé fram nýr ógn­valdur við heilsu manna á suð­vest­ur­hluta Íslands, eitr­aðar loft­teg­undir sem ber­ast frá eld­stöð­inni í Fagra­dals­fjalli á Reykja­nesskaga. Vitað sé að þær geta valdið aukn­ingu á önd­un­ar­færa­ein­kennum og notkun inn­önd­un­ar­lyfja. Minna sé vitað um lang­tíma­á­hrif vegna gasmeng­unar í lágum styrk til lengri tíma og áhrif kvikugasa í mjög miklum styrk í skamman tíma á lang­tíma­heilsu.

Eins og alþjóð veit hófst eld­gos í Geld­inga­dölum í Fagra­dals­fjalli þann 19. mars síð­ast­lið­inn og hafa margar gossprungur opn­ast á þessu tíma­bili. Fjöldi fólks hefur lagt leið sína að gos­inu en engin hætta stafar að byggð vegna þess.

Áhrif lofttegunda á heilsufar manna mismunandi

Gunnar rekur laus­lega sögu eld­gosa á Íslandi en hann segir að frá því að Ísland byggð­ist hafi orðið fjölda­mörg eld­gos á Íslandi. Þau hafi leitt til eyði­legg­ingar á híbýlum manna, búferla­flutn­inga, mat­ar­skorts, og búfjár­fellis vegna eyði­legg­ingar á beit­ar­landi og eitrana. Þau hafi einnig valdið sjúk­dómum og slysum sem leitt hafa til dauðs­falla. Eldgos hafa áhrif á umhverfi sitt með rennsli hrauna, gjósku­falli og útstreymi kvikugasa.

„Kvika er berg­bráð með upp­leystum loft­teg­undum. Gasið losnar úr kvik­unni í gosopi og þegar kvika storknar á yfir­borði og í gasmekki. Helstu gas­teg­und­irnar eru vatns­gufa (H2O), koldí­oxíð (CO2) og brenni­steins­dí­oxíð (SO2) og yfir­leitt er lang­mest af þeirri fyrst­nefndu. Einnig losnar vetni (H2), brenni­steins­vetni (H2S), kolmónoxíð (CO), og í litlu magni brenni­steinn (S2), metan­gas (CH4), vetnisklóríð eða salt­sýra (HCl) og vetn­is­flú­oríð eða flú­or­sýra (HF),“ skrifar hann.

Bendir hann á að áhrif þess­ara loft­teg­unda á heilsu­far manna séu mis­mun­andi. Íslenskar reglu­gerðir skil­greini heilsu­vernd­ar­mörk og vinnu­vernd­ar­mörk meng­andi loft­teg­unda í and­rúms­lofti fyrir íbúa Íslands. Hann segir að heilsu­vernd­ar­mörk séu hugsuð fyrir almenn­ing, bæði börn og full­orðna, sjúka sem heil­brigða. Þeim sé ætlað að vera við­miðun fyrir hvað telst skað­legt fyrir ein­stak­ling­inn til lengri tíma. Vinnu­vernd­ar­mörk séu hæsta leyfi­lega með­al­tals­mengun í and­rúms­lofti starfs­manna, gefið upp fyrir 8 klukku­stundir og einnig fyrir 15 mín­útna við­veru. „Í nátt­úru­ham­förum eins og eld­gosum getur loft­mengun farið langt yfir bæði þessi mörk,“ segir hann.

Aukning á komum á heilsugæslu vegna öndunarfæraeinkenna

Gunnar útskýrir að áhrifum loft­teg­unda megi skipta í tvennt. „Í fyrsta lagi eru loft­teg­undir sem erta slím­húðir og húð. Í lágum styrk­leika valda þær ert­ingu í augum og efri hluta önd­un­ar­færa. Í hærri styrk valda þær ert­ingu og bruna í húð og í enn hærri styrk hafa þær áhrif á neðri hluta önd­un­ar­færa og geta valdið lungna­bjúg vegna bráðs lungnaskaða. Dæmi um slíkar loft­teg­undir eru brenni­steins­dí­oxíð og brenni­steins­sýra. Í öðru lagi eru loft­teg­undir sem valda köfnun vegna áhrifa á flutn­ing súr­efnis og frumu­öndun. Dæmi um þær eru koldí­oxíð og kolmónoxíð,“ skrifar hann.

„Mesta bráða­hættan skap­ast af loft­teg­undum sem eru þyngri en and­rúms­loftið og geta því borist með jörðu og fyllt svæði sem eru lægri, eins dældir og dali í nátt­úr­unni eða kjall­ara húsa. Brenni­steins­dí­oxíð og koldí­oxíð eru dæmi um slíkar loft­teg­undir. Í eld­gos­inu í Holu­hrauni árið 2015 kom upp mikið magn brenni­steins­dí­oxíðs,“ skrifar hann og bætir því við að nýlega hafi verið birtar greinar um áhrif þess á heilsu manna.

Þar komi fram að aukn­ing hafi orðið á komum á heilsu­gæslu vegna önd­un­ar­færa­ein­kenna og meira verið leyst út af inn­önd­un­ar­lyfjum. „Þar kom fram að loft­mengun getur varað lengur en áður var talið, meðal ann­ars vegna þess að kviku­gösin geta verið til staðar lengur en talið var.“

Gunnar bendir á að emb­ætti land­læknis, Almanna­varnir, Veð­ur­stofa Íslands, Umhverf­is­stofnun og fleiri aðilar standi að nákvæmri vöktun eld­stöðv­anna í Geld­inga­dölum. Þannig hafi mæla­kerfi Umhverf­is­stofn­unar sem mælir loft­mengun verið stór­aukið og upp­lýs­inga­flæði frá þeim verið bætt stór­lega. Veð­ur­stofa Íslands upp­færir dag­lega spá varð­andi gasmengun vegna eld­goss­ins við Fagra­dals­fjall og birti spálíkan sem sýnir brenni­steins­mengun í byggð fyrir næstu 72 tíma.

Enn fremur fylgist emb­ætti land­læknis náið með heilsu­fari þeirra sem búa næst gos­s­töðv­unum og lyfja­notkun þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár