Namibíuskip Samherjasamstæðunnar komin með ný nöfn og belíska fána

Tog­ar­arnir Saga og Geysir, sem sigldu frá Namibíu fyrr á árinu, heita nú Vasiliy Filippov og Galleon. Þessi skip og einnig tog­ar­inn Heinaste, sem liggur kyrr­settur í Namibíu, eru skráð með heima­höfn í mið-amer­íska smá­rík­inu Belís.

Heinaste heitir enn Heinaste, en tvö önnur skip sem tengdust umsvifum Samherja í Namibíu eru komin með ný nöfn án allra Íslandstenginga.
Heinaste heitir enn Heinaste, en tvö önnur skip sem tengd­ust umsvifum Samherja í Namibíu eru komin með ný nöfn án allra Íslands­teng­inga. Mynd: MarineTraffic.com

Heinaste, Geysir og Saga hétu verk­smiðju­tog­ar­arnir þrír sem Sam­herj­a­sam­stæðan hefur notað í starf­semi sinni í Namibíu á und­an­förnum árum. Nú heita þessi skip hins vegar Heinaste, Galleon og Vasiliy Filippov og eru öll skráð með heima­höfn í Belís­borg í mið-amer­íska smá­rík­inu Belís, fyrir botni Karí­ba­hafs.

Heinaste, eina Sam­herj­a­skipið sem enn er stað­sett í Namibíu, er því ekki lengur undir namibískum fána, en sam­kvæmt skipa­skrán­ing­ar­síð­unni Marine Traffic er skipið nú skráð í Belís. Skipið var kyrr­sett af namibískum yfir­völdum vegna ólög­legra veiða seint á síð­asta ári og íslenskur skip­stjóri þess settur í far­bann.[links]

Farbanni skip­stjór­ans lauk í byrjun febr­úar með um það bil átta millj­óna króna sekt­ar­greiðslu og kyrr­setn­ing­unni var sömu­leið­inn aflétt með dóms­úr­skurði, en tog­ar­inn var síðan kyrr­settur á ný 7. febr­úar.

Kjarninn greindi frá því þá að síð­ari kyrr­setn­ingin væri á grund­velli laga um skipu­lagða glæp­a­starf­semi, en ekki vegna brota á fisk­veiði­lög­gjöf­inni eins og í fyrra skiptið. Skipið er stað­sett við bryggju í Walvis Bay í Namibíu.

[adspot]

„Við teljum að end­ur­nýjuð kyrr­setn­ing skips­ins stand­ist ekki namibísk lög og við munum grípa til ráð­staf­ana til að hnekkja henni fyrir namibískum dóm­stólum ef nauð­syn krefur,“ sagði Björgólfur Jóhanns­son starf­andi for­stjóri Samherja í yfir­lýs­ingu á vef sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­is­ins 10. febr­úar, en síðan hefur lítið heyrst af stöðu máls­ins.

Ekkert hefur orðið af áformum Samherja um að selja skipið eða leigja það áfram til namibískra aðila sem gætu nýtt skipið til útgerðar við strendur Namibíu, eins og fyr­ir­tækið hafði lýst yfir að það vildi gera.

Skipin sem sigldu á brott komin með ný nöfn

Heinaste heldur sínu nafni og plássi við höfn­ina í Walvis Bay, en hið sama á ekki við um Sögu og Geysi, hin skipin í eigu félaga Sam­herj­a­sam­stæð­unnar sem áður fisk­uðu við strendur Namibíu.

Þau sigldu á brott frá land­inu í lok jan­úar og byrjun febr­úar, að því er virð­ist í nokkrum flýti, en namibískir fjöl­miðlar greindu frá því á þeim tíma að namibíska spill­ing­ar­lög­reglan hefði lagt til við þar­lend stjórn­völd að tog­ur­unum yrði ekki leyft að sigla úr landi án þess að lög­reglu yrði gert við­vart.

Saga (Vasiliy Filippov) enn á Kanarí

Fjallað var um það að sjó­menn­irnir á Sögu, alls um 120 tals­ins, hefðu fengið sms-skila­boð á síð­ustu dögum jan­ú­ar­mán­aðar um að sækja eigur sínar um borð í togar­ann án tafar, þar sem Saga væri á leið­inni í slipp á Kanarí­eyjum, en í yfir­lýs­ingu á vef Samherja 6. febr­úar sagði að við­halds­vinnan hefði staðið til lengi.

Á Kanarí­eyjum, nánar til­tekið í Las Palmas, er skipið enn. Það heitir reyndar ekki lengur Saga, heldur Vasiliy Filippov. Það er heldur ekki lengur skráð í Namibíu, heldur siglir nú undir bel­ískum fána. Ljóst er sam­kvæmt upp­lýs­ingum á vef Marine Traffic að stutt er síðan að það breytt­ist.

Geysir (Galleon) við veiðar úti fyrir Máritaníu

Namibískir fjöl­miðlar sögðu Geysi hafa siglt skyndi­lega úr lög­sögu lands­ins 2. febr­úar, með þau skila­boð til um það bil 100 áhafn­ar­með­lima að skipið kæmi til baka þegar það fengi úthlutað nýjum kvóta í namibískri lög­sögu.

Þessa dag­ana er Geysir, sem nú heitir reyndar Galleon, við veiðar út af vest­ur­strönd Afr­íku­rík­is­ins Márit­aníu. Skipið hefur siglt undir bel­ískum fána und­an­farin ár og engin breyt­ing hefur orðið þar á, sam­kvæmt vef Marine Traffic.

Kjarninn hefur sent fyr­ir­spurn á Samherja um þessar breyt­ingar á nöfnum og skrán­ingu skip­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár