Mynd: Páll Stefánsson

Unglingsárin voru tekin af mér

Ung kona sem var á meðferðar­heimilinu Lauga­landi í tvö ár segist vilja að tímabilið þegar Ingjaldur Arnþórsson stýrði heimilunum verði rannsakað. Hún segist vilja fá viður­kenn­ingu á því að hún hafi verið beitt kerfis­bundnu ofbeldi á meðferðar­heimilinu þegar hún var barn. Unglings­árin hafi verið tekin af henni.

„Ég vissi ekkert hvað var að gerast, ég vissi ekkert um þetta heimili, ég var algerlega aftengd umhverfi mínu og lifði í ótta sem átti eftir að fara versnandi.“ Svona lýsir ung kona, sem ekki vill koma fram undir nafni, líðan sinni þegar hún var á leiðinni norður á meðferðar­heimlið Laugaland þar sem hún átti eftir að vera í tvö ár. Hún kom árið 2003, þá þrettán ára gömul. „Ég hafði orðið fyrir kynferðis­ofbeldi og glímdi því við mikla andlega vanlíðan og var lögð inn á Barna- og unglinga­geðdeildina um tíma en ég var ekki með fíkni­vanda heldur var þetta kallaður hegðunar­vandi,“ segir hún.  

„Ég var skelfingu lostin“

Hún segir að fyrsta daginn á Lauga­landi hafi Áslaug, eiginkona Ingjalds, farið með hana inn í herbergi og skipað henni að afklæðast svo að hún gæti athugað hvort hún væri að smygla einhverju inn á heimilið sem ekki mætti …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Varnarlaus börn á vistheimili

FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Stelpurnar af Lauga­landi skila skömminni

65 börn voru vistuð á meðferðar­heimilinu í Varpholti og á Lauga­landi á árunum 1997 til 2007. Þar voru þau beitt kerfis­bundnu andlegu ofbeldi auk þess sem fjöldi þeirra lýsir því að hafa verið beitt líkamlegu ofbeldi. Sextán konur sem vistaðar voru á meðferðar­heimilinu stíga nú fram og skila skömminni þangað sem hún á heima, til forstöðu­hjóna heimilisins á þessum tíma, starfs­fólks og barna­verndar­yfirvalda sem brugðust þeim.
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

Skýrslan um Laugaland: Stúlkurnar voru beittar kerfis­bundnu og alvarlegu andlegu ofbeldi

Niður­staða skýrslu Gæða- og eftirlits­stofnunar velferðar­mála slær því föstu að stúlkur sem vistaðar voru á meðferðar­heimilinu hafi verið beittar andlegu ofbeldi. Yfir helmingur þeirra sem rætt var við lýsti því að hafa verið beittar líkamlegu ofbeldi og fjöldi til viðbótar staðfesti að hafa orðið vitni að slíku. Barna­verndar­stofa brást hlutverki sínu.
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

„Þetta er áfram­haldandi ofbeldi“

Kona sem vistuð var á meðferðar­heimilinu Varpholti og ber að hafa verið beitt ofbeldi af Ingjaldi Arnþórs­syni, forstöðu­manni þar, segir vinnu­brögð nefndar sem rannsaka á heimilið fyrir neðan allar hellur. Aldrei hafi verið haft samband við hana til að upplýsa um gang mála eða kanna líðan hennar. „Mér finnst að það hefði átt að útvega okkur sálfræði­þjónustu,“ segir Anna María Ingveldur Larsen. Hún hefur misst alla trú á rann­sókninni.

10 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár