„Þurfum að taka afstöðu með hafinu og vernda það“

Ýmsar áleitnar spurn­ingar vakna þegar hugsað er um hafið og ham­fara­hlýnun í sömu andrá. Væri hægt að búa á jörð­inni án þess? Hvernig liti jörðin út án vatns? Getur verið að það verði meira af plasti í sjónum en fiskum árið 2050?

Lofts­lags­breyt­ingar, plast­mengun og önnur meng­un­ar­hætta steðjar nú að haf­inu og ef fram heldur sem horfir, verður þar meira af plasti en fiski árið 2050. Við þurfum að taka afstöðu með haf­inu og vernda það. Heil­brigði hafs­ins er hnatt­rænt mál­efni sem snertir alla á jörð­inni.

Svona hljómar kynn­ing­ar­texti fyrir nýja raf­bók sem Land­vernd hefur nú gefið út.

Bókin er ætluð sem náms­efni og fjallar um haflæsi og áhrif lofts­lags­breyt­inga og plast­meng­unar á hafið. Hafið er þannig notað sem rauður þráður í kennslu um lofts­lags­breyt­ingar, neyslu og sjálf­bærni. Jafn­framt er sér­stakt þema­verk­efni í bók­inni sem nefn­ist Hafðu áhrif! Þá á að vera vald­efl­andi og veita nem­endum verk­færi til að takast á við flókin við­fangs­efni líkt og lofts­lags­breyt­ingar á tímum lofts­lagskvíða.

Á síð­unni Hreint haf er hug­takið haflæs mann­eskja útskýrt. Hún sem sagt gerir sér grein fyrir mik­il­vægi hafs­ins í lífi okkar og ann­arra líf­vera á jörð­inni og vinnur að því að gæta að heil­brigði hafs­ins. Haflæs mann­eskja miðlar upp­lýs­ingum um hafið á áhrifa­ríkan hátt og tekur upp­lýstar og ábyrgar ákvarð­anir í dag­legu lífi sem styðja við heil­brigði hafs­ins.

Samkvæmt Land­vernd er náms­efnið ætlað nem­endum á aldr­inum 10 til 18 ára og teng­ist jafn­framt grunn­þáttum mennt­unar, þá sér í lagi sjálf­bærni og lýð­ræði og mann­rétt­indum, sköpun og heil­brigði og vel­ferð. Að auki styðji náms­efnið við skuld­bind­ingar Íslands sem varða heims­mark­mið Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Bókin er öllum aðgengi­leg, en sam­kvæmt nátt­úru­vernd­ar­sam­tök­unum er hún læsi­leg­ust sem stendur í IBooks en unnið er að því að aðlaga og ein­falda útgáf­una að öllum tækjum.

Margrét Huga­dóttir er höf­undur bók­ar­innar og um upp­setn­ingu og hönnun sá Aron Freyr Heim­is­son. Útgáfan var styrkt af Þró­un­ar­sjóði Náms­gagna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár