Málaferli ríkisins kasti rýrð á önnur og betri verk ríkisstjórnarinnar í jafnréttismálum

Spurn­ingum var beint til for­sæt­is­ráð­herra í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma vegna áfrýj­unar Lilju Alfreðs­dóttur á nið­ur­stöðu í máli sínu gegn Hafdísi Helgu Ólafs­dóttur til Lands­réttar. Þing­maður Mið­flokks­ins spurði hvort með­ferð máls­ins skyldi flýtt.

Katrín Jakobsdóttir þurfti að svara spurningum um ákvörðun Lilju Alfreðsdóttur um að áfrýja niðurstöðu í máli sínu gegn Hafdísi Helgu Ólafsdóttur til Landsréttar í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í dag. Lilja verður til svara í þinginu á morgun.
Katrín Jak­obs­dóttir þurfti að svara spurn­ingum um ákvörðun Lilju Alfreðs­dóttur um að áfrýja nið­ur­stöðu í máli sínu gegn Hafdísi Helgu Ólafs­dóttur til Lands­réttar í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag. Lilja verður til svara í þing­inu á morgun. Mynd: Samsett/Kjarninn

„Er ráð­herra stolt af því að þetta er jafn­réttispóli­tík hennar rík­is­stjórnar?“ spurði Hanna Katrín Frið­riks­son í lok óund­ir­bú­innar fyr­ir­spurnar sem hún beindi til Katrínar Jak­obs­dóttur og vís­aði þar í ákvörðun Lilju Alfreðs­dóttur um að áfrýja nið­ur­stöðu í máli sínu gegn Hafdísi Helgu Ólafs­dóttur til Lands­réttar. Katrín fékk tvær óund­ir­búnar fyr­ir­spurnir í þing­inu í dag vegna mála­rekst­urs Lilju en fyrr í vik­unni stóð til að Lilja yrði til svara í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma í dag. Hún verður aftur á móti til svara á morgun.

Í fyr­ir­spurn sinni sagði Hanna Katrín rík­is­stjórn­ina hafa þétt rað­irnar í þögn sinni um þetta mál „á hátt sem breska kon­ungs­fjöl­skyldan gæti verið stolt af.“ Hún óskaði því eftir við­brögðum leið­toga rík­is­stjórn­ar­innar, Katrínar, við þessu máli. Hanna sagð­ist ganga út frá því að for­sæt­is­ráð­herra hefði myndað sér skoðun á mál­inu og að sú skoðun ætti erindi við almenn­ing. Hún spurði í kjöl­farið hvort for­sæt­is­ráð­herra væri stolt af því að þetta væri jafn­réttispóli­tík hennar rík­is­stjórnar.

Málið ekki sameiginleg ákvörðun ríkisstjórnar

Katrín gaf lítið fyrir lík­ingu við bresku kon­ungs­fjöl­skyld­una og sagði umrædda þögn sína um málið hafa verið litla, hún hafi tjáð sig um málið í þing­sal og við fjöl­miðla. Hún sagði það ekki rétt að það væri sam­eig­in­leg ákvörðun rík­is­stjórn­ar­innar að fara í mála­ferli, ákvörð­unin lægi alfarið hjá mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra.

„Ég verð þá að segja það við hátt­virtan þing­mann að það er auð­vitað svo að við erum með fjölda­mörg mál sem ein­stakir ráð­herrar eiga í sem heyra undir verk­svið þeirra ráðu­neyta og eins og fram hefur komið, bæði hér í þing­sal af minni hálfu og í fjöl­miðlum þá heyrir þetta mál algjör­lega undir for­ræði hæst­virts mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra,“ sagði Katrín og tók fram að umræddur ráð­herra þekkti mála­vöxtu og hefði leitað sér ráð­gjafar. Katrín sjálf væri ekki aðili máls.

Að hennar mati sé það mik­il­vægt að fólk hiki ekki við að leita réttar síns í málum sem þessum. „Þess vegna lagði ég hér fram breyt­ingu á lögum um stjórn­sýslu jafn­rétt­is­mála sem hátt­virtur þing­maður þekkir því hún sam­þykkti breyt­ingu ásamt öðrum hátt­virtum þing­mönnum hér sem miðar að því að vilji ein­stak­lingur fari það svo að ráð­herra leiti ógild­ingar á úrskurði kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála, þá er það ekki ein­göngu gagn­vart ein­stak­lingi lengur heldur er kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála núna aðili máls. Þetta er breyt­ing sem var sam­þykkt á Alþingi og miðar að því að þá sé það kæru­nefndin sem standi fyrir máli sínu en ekki ein­stak­ling­ur­inn sem sé ein­göngu kall­aður að málum,“ sagði Katrín. [links]

Málið kasti rýrð á önnur verk ríkisstjórnarinnar

„Herra for­seti, mála­ferli rík­is­ins á hendur konu sem hefur tvisvar sinnum fengið stað­fest­ingu á því að mennta­mála­ráð­herra hafi brotið á rétti hennar, kastar ein­fald­lega rýrð á önnur og betri verk rík­is­stjórn­ar­innar í jafn­rétt­is­málum. Það er svo ein­falt og maður þarf ekki að vera aðili máls til að hafa skoðun á því,“ sagði Hanna Katrín er hún tók til máls síð­ara sinni.

Hún benti á þá stað­reynd að for­sæt­is­ráð­herra væri einnig ráð­herra jafn­rétt­is­mála og end­ur­tók spurn­ingu sína úr fyrri ræðu. „Ef að ráð­herra jafn­rétt­is­mála, hæst­virtur for­sæt­is­ráð­herra ætlar ekki að hafa skoðun á þessu máli vegna þess að hún er ekki aðili máls, hvers vegna var þá ráð­herr­ann að taka jafn­rétt­is­málin til sín á sínum tíma ef það er ekki til að standa vakt­ina í svona málum? Ég ætla að end­ur­taka spurn­ingu mína: er hæst­virtur for­sæt­is­ráð­herra stoltur af mála­ferlum og fram­göngu mennta­mála­ráð­herra í þessu máli fyrir hönd rík­is­stjórnar sinnar?“

Mjög stolt af árangri sinnar ríkisstjórnar

„Eins og allir hátt­virtir þing­menn vita sem þekkja grund­vall­ar­at­riði stjórn­skip­un­ar­innar þá bera ein­stakir ráð­herrar ábyrgð á málum sem undir þá heyra, þar með talið manna­ráðn­ingum,“ svar­aði Katrín. Hún sagð­ist vera mjög stolt af árangri sinnar rík­is­stjórnar í jafn­rétt­is­málum.

Eitthvað var um frammíköll þar sem óskað var eftir skýr­ari svörum frá for­sæt­is­ráð­herra sem varð til þess að hún batt enda á upp­taln­ingu þeirra jafn­rétt­is­mála sem hennar rík­is­stjórn hefur sett á odd­inn. „Ég er að fara hér yfir árangur minnar rík­is­stjórnar í jafn­rétt­is­málum. Hátt­virtur þing­maður spyr hér um skoðun mína á málum sem heyrir undir annan ráð­herra sem ber ábyrgð á því máli, sem þekkir mála­vöxtu og tekur um það ákvarð­anir sam­kvæmt stjórn­skipun. Það ætti að hátt­virtur þing­maður að vita,“ sagði Katrín að lokum.

Spyr hvort Landsréttur eigi að hraða málsmeðferð

Þor­steinn Sæmunds­son, þing­maður Mið­flokks­ins, spurði Katrínu einnig út í mála­rekstur mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. „Mig langar að spyrja hæst­virtan for­sæt­is­ráð­herra og jafn­rétt­is­ráð­herra: telur hún að þetta, þessi mála­rekstur, sem er for­dæma­laus, eftir því sem ég best veit, verði til þess að hvetja þá sem órétti beittir til að leita réttar síns gagn­vart rík­inu?“ spurði Þor­steinn í fyr­ir­spurn sinni.

Því næst sagði hann mála­rekst­ur­inn bein­ast gegn konu, „sem hefur ekk­ert til saka unnið annað en að sækja um starf og vera metin hæfust til að gegna því.“ Í stað þess að vera boðnar bætur, líkt og áður hafi verið gert, sé hún „hund­elt“ fyrir dóm­stólum og verði það ef til vill um nokk­urt skeið að sögn Þor­steins. Hann spurði því einnig hvort for­sæt­is­ráð­herra muni beita sér fyrir því að málið fái flýti­með­ferð fyrir Lands­rétti og að nið­ur­staða liggi fyrir fyrir kosn­ingar í haust.

Aldrei beitt sér fyrir flýtingu mála

Katrín sagð­ist ekki hafa velt því fyrir sér hvort mál­inu skyldi flýtt. Hún teldi það vera dóm­stóla að meta hverju sinni. Í síð­ari svari sínu við fyr­ir­spurn Þor­steins tók hún af allan vafa og sagði að hún teldi það ekki við hæfi að for­sæt­is­ráð­herra færi að beita sér fyrir því að mál­inu yrði hraðað.

Hún svar­aði einnig spurn­ingu Þor­steins um það hvort málið hefði verið borið undir rík­is­stjórn. „Það var ekki borið undir rík­is­stjórn enda á for­ræði hæst­virts mennta og menn­ing­ar­mála­ráð­herra. Ráðherra gerði rík­is­stjórn munn­lega grein fyrir þessu máli eftir að úrskurður kæru­nefndar féll í maí síð­ast­liðnum. Þá gerði hæst­virtur mennta og menn­ing­ar­mála­ráð­herra rík­is­stjórn munn­lega grein fyrir þessu máli en það er ekki rík­is­stjórnar að sam­þykkja það,“ sagði Katrín.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár