Fleiri börn með áhyggjur hringja í Hjálparsímann

Aukning hefur orðið í sím­tölum í Hjálp­ar­sím­ann 1717 frá börnum og ung­lingum sem hafa áhyggjur og líður ekki vel. Einnig hringja tölu­vert fleiri vegna kvíða.

Börn geta fundið fyrir kvíða og áhyggjum vegna ástandsins í samfélaginu og mikilvægt er að ræða við þau um tilfinningarnar.
Börn geta fundið fyrir kvíða og áhyggjum vegna ástands­ins í sam­fé­lag­inu og mik­il­vægt er að ræða við þau um til­finn­ing­arnar. Mynd: Pexels

Und­an­farið hafa fleiri börn og ung­lingar en áður hringt í Hjálp­ar­sím­ann 1717 og lýst áhyggjum sínum og van­líðan. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá almanna­vörnum hefur sím­tölum frá fólki sem finnur fyrir kvíða einnig fjölgað.

Pieta-sam­tökin, sem sinna for­varn­ar­starfi gegn sjálfs­vígum og sjálfs­skaða, sinna yfir 300 við­tölum á viku við fólk sem glímir við sjálfs­vígs­hugs­anir. Hringt er í Hjálp­ar­sím­ann 1717, sem Rauði kross­inn rekur, og Pieta-sím­ann á öllum tímum sól­ar­hrings­ins.

Óvissan er stór fylgi­fiskur heims­far­ald­urs­ins sem heims­byggðin stendur frammi fyrir og ýmsar breyt­ingar hafa orðið á dag­legum venjum og virkni fólks. Það þýðir til dæmis að tæki­færi til að sinna því sem almennt skapar vellíðan, eins og að fara í rækt­ina og sund eða að hitta ást­vini, eru tak­mark­aðri en ella. Allt getur þetta haft áhrif á líðan og valdið áhyggjum. Þjálfaðir og reynslu­miklir sjálf­boða­liðar Rauða kross­ins sjá um að svara þeim sím­tölum sem ber­ast í 1717 eða skila­boðum í net­spjalli og „ekk­ert vanda­mál er of stórt eða lítið,“ segir á heima­síðu Hjálp­ar­sím­ans. Þangað er hægt að hringja í trún­aði og ástæður þess að fólk leitar sér þar hjálpar eru margar og mis­mun­andi, svo sem ein­mana­leiki, þung­lyndi, kvíði, sjálfs­vígs­hugs­anir og sjálfs­skaði.

[adspot]

Á for­síðu blaðs Geð­hjálpar, sem kemur út í dag, er birt tala: 39. Talan stendur fyrir þá íbúa Íslands sem féllu fyrir eigin hendi á árinu 2019. „Við höfum í gegnum árin veigrað okkur við að ræða þessa tölu, þennan mæli­kvarða á geð­heilsu okkar, opin­ber­lega,“ skrifa Héðinn Unn­steins­son, for­maður Geð­hjálpar, og Kristín Ólafs­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Pieta, í aðsendri grein sem birt er í Morg­un­blað­inu í dag. Ástæðan fyrir því að þau ákveða að gera það nú er tví­þætt. „Annars vegar viljum við ræða sjálfs­víg og þann skyndi­lega missi, sárs­auka og sorg sem aðstand­endur verða fyrir og hins vegar viljum við ræða þá ástæðu sem býr að baki og orsaka­þætti geð­heil­brigðis. [...] Nú þegar nær níu mán­uðir eru liðnir frá því að Covid-19 fór að hafa áhrif á hugs­anir okkar og hegðun er ljóst að áhrifin á orsaka­þætti geð­heilsu verða mikil.“

[links]Héðinn og Kristín segja að allir þurfi að laga sig að breyttum veru­leika og fyrir suma sé sú aðlögun umtals­verð. Rútínan fer úr skorðum, fjár­hagur verður ótrygg­ari, óvissa og heilsu­ótti eru meðal þátta sem geta haft áhrif á geð­heilsu. „Líðan okkar, geð­heilsan, er því undir, nú sem aldrei fyrr, og lík­legt er að félags- og efna­hags­legar afleið­ingar Covid-19 á sam­fé­lagið muni fylgja okkur í nokkur ár.“ Með öðrum orðum, skrifa þau, „allar líkur eru á að heilt á litið muni okkur, sem þjóð, líða verr en okkur hefur liðið síð­ast­liðin ár“.

Leggja þau það til að sam­fé­lagið bregð­ist við þeirri áskorun með því að ein­beita sér að orsaka­þáttum geð­heilsu. Benda þau á að fé til almanna­þjón­ustu rík­is­ins og sveit­ar­fé­laga gæti dreg­ist saman næstu miss­eri á sama tíma og þörfin fyrir þjón­ust­una hefur auk­ist. „Við þurfum nefni­lega ekki að vera veik til að líða skelfi­lega illa. Orð eins og biðlistar, úrræði við hæfi, með­ferð, grein­ing, geð­sjúk­dómur, sjálfs­víg, van­líðan og sál­rænn sárs­auki eru orð sem við­halda orð­ræðu þeirra afleið­inga sem við þurfum ávallt að búa við en það verður að auka áhersl­una á orsakir geð­heilsu okkar allra, óháð því hvernig okkur líður.“

Á vef­síð­unni www.39.is er hægt að skrifa undir áskorun um að setja geð­heils­una í for­gang í sam­fé­lag­inu.

Eðlilegt að hafa áhyggjur

Alma Möller land­læknir hefur frá upp­hafi far­ald­urs­ins ítrekað bent á mik­il­vægi þess að hlúa að sjálfum sér og öðrum og meðal ann­ars bent á efni á covid.is undir flip­anum Líðan okkar.

Í ljósi mik­illar fréttaum­fjöll­unar um far­ald­ur­inn sem nú dynur á öllum er „eðli­legt að hafa áhyggjur af því hvaða áhrif ástandið muni hafa á okkur og ást­vini okkar,“ segir í bæk­lingnum Að takast á við áhyggjur og kvíða í heims­far­aldri sem birtur er á vef­síð­unni Covid.is. „Það er eðli­legt að eiga erfitt á tímum sem þessum, svo það er mik­il­vægt að sýna sjálfum sér og öðrum aðgát og samúð.“

Allir hafa ein­hverjar áhyggjur, segir þar enn­fremur, og það að hugsa fram í tím­ann getur hjálpað okkur að skipu­leggja hluti og bregð­ast við aðstæðum. Erfitt getur verið fyrir fólk að meta hvenær áhyggjur eru orðnar óhóf­legar en þær verða sjálf­stætt vanda­mál þegar þær koma í veg fyrir að fólk geti lifað því lífi sem það vill lifa eða ef þær valda þreytu og van­líðan.

Þegar við finnum fyrir áhyggjum getur farið af stað eins konar keðja af hugs­unum og hug­ar­myndum sem oft á tíðum stig­magn­ast í styrk og svart­sýni og bein­ist stundum að ólík­leg­ustu hlutum. „Á tímum sem þessum er eðli­legt að við stöndum okkur að því að hugsa um verstu mögu­legu útkomu. Sumir upp­lifa algert stjórn­leysi gagn­vart áhyggjum sínum og finnst eins og þær öðlist sjálf­stætt líf,“ segir á Covid.is.

Þar er að finna gagn­legt fræðslu­efni og æfingar til að við­halda vellíðan og höndla áhyggjur m.a. eft­ir­far­andi:

Jafnvægi í daglegu lífi

Hvort sem fólk vinnur að heiman, er í sótt­kví eða ein­angrun getur verið hjálp­legt að koma sér upp skipu­lagi sem felur í sér jafn­vægi á milli athafna sem: Veita fólki þá upp­lifun að það ha­fi áorkað ein­hverju; gert gagn eða gert eitt­hvað mik­il­vægt, fela í sér tengsl og nánd milli fólks og fram­kvæmdar eru ánægj­unnar vegna.

Eðli vandans

Snúast áhyggj­urnar um raun­veru­leg vanda­mál eða mögu­leg vanda­mál? Ef við erum með áhyggjur af mörgum mögu­legum vanda­málum er mik­il­vægt að við minnum okkur á að hug­ur­inn er upp­tek­inn af vanda­málum sem við höfum ekki tök á að leysa núna. Í fram­hald­inu er hjálp­legt að finna leiðir til að sleppa áhyggj­unum og ein­beita sér að öðru.

Æfingar í að fresta áhyggjum

Áhyggjur geta verið ágengar og valdið því að fólki finn­ist nauð­syn­legt að bregð­ast strax við. Með því að æfa sig í að fresta áhyggjum af mögu­legum vanda­málum fær fólk gjarnan annað sjón­ar­horn og upp­lifun af áhyggjum sínum. Í fram­kvæmd snýst þetta um að taka dag­lega frá tíma (t.d. 30 mín­útur seinnipart dags) til þess að hugsa um áhyggj­urnar og jafn­framt að sleppa og fresta áhyggjum á öðrum tímum sól­ar­hrings­ins.

Sjálfstal sem einkennist af samkennd

Áhyggjur bein­ast gjarnan að fólki sem okkur þykir vænt um. Eitt af helstu verk­færum hug­rænnar atferl­is­með­ferðar er að skrifa niður hugs­anir sem eru nei­kvæðar, valda kvíða eða öðru upp­námi og að finna svör við þeim.

Núvitund

Að læra núvit­und og stunda slíkar æfingar getur hjálpað fólki að sleppa áhyggjum og að draga athygl­ina að líð­andi stund. Full athygli að önd­un­inni eða umhverf­is­hljóðum getur verið hjálp­legt „akk­eri“ til þess að beina athygl­inni að núinu og að sleppa áhyggjum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár