Þriggja vikna bið eftir þinglýsingu

Mikil ásókn í end­ur­fjár­mögnun og ný íbúða­lán hjá bönk­unum hefur skapað tíma­bundið álag. Afgreiðslu­tími lán­anna lit­ast af því en einnig getur þing­lýs­ing tekið nokkrar vikur.

Skjöl sem komu til þinglýsingar í gær hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu ættu að vera tilbúin 28. júlí næstkomandi.
Skjöl sem komu til þing­lýs­ingar í gær hjá Sýslu­mann­inum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu ættu að vera til­búin 28. júlí næst­kom­andi. Mynd: Bára Huld Beck

Afgreiðslu­tími þing­lýs­inga hjá Sýslu­mann­inum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er um þrjár vikur þessa dag­ana. Á vef emb­ætt­is­ins má skoða stöðu þing­lýs­inga en hún var síð­ast upp­færð í gær.

„28. júlí n.k. verður reynt að hafa almenn skjöl sem koma inn til þing­lýs­ingar í dag til­búin. Við­skipta­vinir eru þó hvattir til að kynna sér stöð­una á heima­síð­unni áður en þeir vitja skjal­anna,“ segir á vef emb­ætt­is­ins. Þá kemur fram á síð­unni að skjöl sem mót­tekin voru til og með 22. júní hafi verið yfir­far­inn og því hefur þing­lýs­ing skjala sem komu inn 22. júní tekið 15 daga.

Mikil ásókn hefur verið í end­ur­fjár­mögnun hús­næð­is­lána á síð­ustu mán­uðum. Heimili lands­ins eru í auknum mæli að færa sig úr verð­tryggðum hús­næð­is­lánum í óverð­tryggð í kjöl­far snarpra vaxta­lækk­ana. Bank­arnir bjóða nú upp á hag­stæð­ari óverð­tryggð lán á breyti­legum vöxtum heldur en líf­eyr­is­sjóð­irnir, ef frá er tal­inn líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Birta. Af þeim sökum hefur hlut­deild banka á hús­næð­is­lána­mark­aði auk­ist að und­an­förnu og í nýlegri sam­an­tekt Samtaka fjár­mála­fyr­ir­tækja er gert ráð fyrir að sú hlut­deild­ar­aukn­ing haldi áfram á kom­andi miss­erum.

[links]

Vegna mik­illar ásóknar hefur afgreiðslu­tími lána hjá bönk­unum einnig lengst. Kjarninn sendi fyr­ir­spurn á stóru við­skipta­bank­ana þrjá; Arion banka, Íslands­banka og Lands­bank­ann í síð­ustu viku um afgreiðslu­tíma nýrra hús­næð­is­lána og afgreiðslu­tíma end­ur­fjár­magn­aðra hús­næð­is­lána.

Frá Arion banka feng­ust þau svör að vel gengi að afgreiða lán þrátt fyrir mikla aukn­ingu. Afgreiðslu­tími lána að lok­inni þing­lýs­ingu sé að jafn­aði fjórir til fimm virkir dagar, sem skilar sér sam­tals í um viku bið ef helgar eru teknar með í reikn­ing­inn. Í svar­inu kemur einnig fram að í ein­stökum til­vikum hafi afgreiðslu­tím­inn dreg­ist fram yfir sex virka daga.

Í svari frá Íslands­banka segir: „Við fast­eigna­kaup er tím­inn sem fer í lánin 2 dagar en afgreiðslu­tími end­ur­fjár­mögn­unar er nú um tvær vikur. Vegna mjög mik­ils álags og fjölda umsókna þessi dægrin eru lán vegna fast­eigna­kaupa sett í for­gang þar sem kaup­anda ber að greiða selj­anda innan til­tek­ins tíma.“ Þá segir í svari frá bank­anum að staðan sé til komin vegna tíma­bund­ins álags.

Hjá Lands­bank­anum tekur afgreiðsla á lánum vegna fast­eigna­kaupa um sjö til tíu daga alls en afgreiðsla vegna end­ur­fjár­mögn­unar að jafn­aði um tvær til þrjár vikur alls. Í svar­inu er tekið fram að um sé að ræða heild­ar­fjölda daga frá því að greiðslu­mati lýkur til afgreiðslu láns. Þar inni sé ekki tím­inn sem tekur að þing­lýsa lánum. Af þessum heild­ar­fjölda fara fjórir til sex virkir dagar í að afgreiða lán eftir þing­lýs­ingu.

„Til að bregð­ast við auk­inni eft­ir­spurn eftir íbúða­lánum Lands­bank­ans hefur vinnu­lagi verið breytt þannig að starfs­fólk í úti­búum víða um land sér um afgreiðslu fast­eigna­lána óháð því hvar lán­tak­endur eru staddir á land­inu. Auk þess hefur bank­inn ráðið fleira sum­ar­starfs­fólk en áður til að sinna bak­vinnslu,“ segir enn fremur í svari frá bank­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár