Íslendingar eiga um 32 milljarða króna á Tortóla

Í lok árs 2014, rúmum sex árum eftir banka­hrun og setn­ingu gjald­eyr­is­hafta, áttu Íslend­ingar enn rúm­lega eitt þús­und millj­arða króna í erlendri fjár­muna­eign. Um er að ræða annað hvort eigið fé eða lán­veit­ingar á milli aðila í sömu eigu. Þetta kemur fram í nýjum hag­tölum Seðla­banka Íslands um beina fjár­muna­eign íslenskra aðila erlendis sem birtar voru 9. sept­em­ber síð­ast­lið­inn.

Á meðal þess sem kemur fram þar er að íslenskir aðilar eigi 31,6 millj­arða króna á Bresku Jóm­frú­areyj­unum, nánar til­tekið á Tortóla-eyju klas­ans. Bein fjár­muna­eign Íslend­inga þar hefur auk­ist mikið frá því fyrir hrun, en í árs­lok 2007 áttu Íslend­ingar 8,6 millj­arða króna á eyj­unum. Geng­is­fall krón­unnar skýrir aukn­ing­una að ein­hverju leyti.

Eigum yfir þúsund milljarða í útlöndum

Alls eiga Íslend­ingar 1.019 millj­arða króna í fjár­muna­eignum erlendis. Þær drag­ast tölu­vert saman á milli ára en þær voru 1.098 millj­arðar króna í árs­lok 2014. Mestar voru þær tæp­lega 1.600 millj­arðar króna árið 2012. Vert að að hafa í huga að fallandi gengi krónu eftir banka­hrun hafði mikil áhrif á virði þeirra eigna á þeim tíma. Bein fjár­muna­eign Íslend­inga erlendis fjór­fald­að­ist á einum ára­tug. Árið 2004 átti þjóðin um 245 millj­arða króna af beinum eignum í öðrum löndum.

Íslenskir líf­eyr­is­sjóðir eiga þorra eigna Íslend­inga erlendis, en alls áttu þeir 689 millj­arða króna þar um síð­ustu ára­mót. Hluti þeirra eigna falla undir skil­grein­ing­una bein fjár­muna­eign erlendis. Það þýðir að íslensk fyr­ir­tæki og ein­stak­lingar eigi nokkur hund­ruð millj­arða króna í erlendum eignum.

[caption id="attachment_14164" align="alignnone" width="640"] Seðla­banki Íslands birtir árlega tölur um beina fjár­muna­eign Íslend­inga erlendis.[/caption]

Ein ástæða þess að bein fjár­muna­eign hefur verið að lækka und­an­farin ár gæti verið sú að Íslend­ingar hafi í auknum mæli fært fé heim til Íslands í gegnum fjár­fest­inga­leið Seðla­banka Íslands. Alls kom um einn millj­arður evra inn til lands­ins í fjár­fest­ingar í gegnum þá leið, en síð­asta útboð hennar var í febr­úar 2015, og fékkst fyrir það fé 206 millj­arðar króna. Opinbert gengi Seðla­banka Íslands á evr­unni gerir ráð fyrir að evr­urnar sem komu inn í landið séu ríf­lega 157 millj­arða króna virði, og nemur mis­mun­ur­inn á afslætt­inum sem fjár­festar fengu með þátt­töku sinni í fjár­fest­inga­leið­inni, 48,7 millj­örðum króna, miðað við gengið í febr­úar síð­ast­liðnum. Seðla­bank­inn hefur aldrei viljað upp­lýsa um hverjir það eru sem hafi fengið þennan afslátt af íslenskum eignum, meðal ann­ars end­ur­skipu­lögðum fyr­ir­tækjum og fast­eignum.

Önnur ástæða þess að upp­hæðin sem Íslend­ingar eiga erlendis hefur dreg­ist saman getur verið sú að virði eign­anna hafi ein­fald­lega lækkað.

fjár­muna­eign | Create infographics

Um 60 prósent vegna fjármálastarfsemi

Tæplega eitt þús­und millj­arðar króna af auði Íslend­inga erlendis er í Evrópu. Líkt og áður sagði eru 31,6 millj­arðar króna geymdir á Bresku Jóm­frú­areyj­unum og 3,9 millj­arðar króna eru í Banda­ríkj­unum. Þá eru um 60 millj­arðar króna óflokk­aðir. Þ.e. ekki kemur fram í tölum Seðla­banka Íslands í hvaða landi þær fjár­muna­eignir eru.

Tæplega 60 pró­sent eign­anna, alls 577 millj­arðar króna, eru vegna fjár­mála- og vátrygg­ing­ar­starf­semi. Miðað við tölur síð­ustu ára, en fram­setn­ing og flokkun hagtalna Seðla­bank­ans hefur breyst lít­il­lega á þessu ári, er stór hluti þeirra eigna vistaður í eign­ar­halds­fé­lögum.

Hæstar er eignir Íslend­inga í Hollandi. Þar eigum við 341 millj­arða króna. Það er lík­ast til afleið­ing af því að fyrir banka­hrun þótti mikil lenska að skrá eign­ar­halds­fé­lög sem áttu íslensk fyr­ir­tæki í Hollandi vegna hag­stæðra skatta. Sömu sögu er að segja af Lúx­em­borg þar sem Íslend­ingar eiga nú um 116 millj­arða króna. Eignir Íslend­inga í báðum þessum löndum, sem virð­ast hafa verið í miklu upp­á­haldi hjá íslenskum fjár­mála­mönnum fyrir hrun, juk­ust gríð­lega frá árunum 2005 og 2006, þegar þær voru sam­tals undir 50 millj­örðum króna. Und­an­farin ár hefur umfang þeirra dreg­ist hægt og bít­andi saman sam­hliða upp­gjöri íslenska banka­hruns­ins.

Íslenskir peningar flæddu til framandi eyja

Á útrás­ar­ár­unum var lenska að geyma eign­ar­hald fyr­ir­tækja, og pen­inga, á fram­andi slóðum. Útibú eða dótt­ur­fé­lög íslensku bank­anna settu upp allskyns félög fyrir við­skipta­vini sína í Lúx­em­borg, Hollandi, á Kýpur, Mön og eyj­unum Jersey og Guernsey þar sem banka­leynd var, og er, rík.

Auk þess var mikið um það að stofnuð væru félög á Bresku Jóm­rú­areyj­unum fyrir við­skipta­vini þeirra, nánar til­tekið á Tortóla-eyju. Félögin skiptu hund­ruðum og lang­flest þeirra voru stofnuð í Kaup­þingi í Lúx­em­borg, sem hélt sér­stakar kynn­ingar fyrir við­skipta­vini sína til að sýna fram á hag­ræðið sem fékkst af því að geyma t.d. ávinn­ing af hluta­bréfa­sölu í aflands­fé­lög­unum og greiða sér síðan arð úr þeim. Þannig komust þeir aðilar sem áttu þessi félög meðal ann­ars hjá því að greiða skatta á Íslandi.

[caption id="attachment_10685" align="alignnone" width="580"] Kaup­þingi í Lúx­em­borg hélt sér­stakar kynn­ingar fyrir við­skipta­vini sína til að sýna fram á hag­ræðið sem fékkst af því að geyma t.d. ávinn­ing af hluta­bréfa­sölu í aflands­fé­lög­unum og greiða sér síðan arð úr þeim. Þannig komust þeir aðilar sem áttu þessi félög meðal ann­ars hjá því að greiða skatta á Íslandi.[/caption]

Byrjaði með skattahagræði

Stofnun félaga á Tortóla-eyju hófst um miðjan tíunda ára­tug­inn þegar íslensk fjár­mála­fyr­ir­tæki fóru að bjóða stórum við­skipta­vinum sínum að láta sölu­hagnað af hluta­bréfa­við­skiptum renna í slík félög. Á þeim tíma voru skatta­lög á Íslandi þannig að greiddur var tíu pró­sent skattur af slíkum sölu­hagn­aði upp að 3,2 millj­ónum króna. Allur annar hagn­aður umfram þá upp­hæð var skatt­lagður eins og hverjar aðrar tekjur, sem á þeim tíma þýddi 45 pró­sent skattur.

Lögum um skatt­lagn­ingu fjár­magnstekna var hins vegar breytt um ald­ar­mótin og eftir þá breyt­ingu var allur sölu­hagn­aður af hluta­bréfum skatt­lagður um tíu pró­sent. Við það varð íslenskt skattaum­hverfi afar sam­keppn­is­hæft og skatta­hag­ræðið af því að geyma eignir inni í þessum félögum hvarf. Frá þeim tíma voru ný félög því aðal­lega stofnuð til að fela raun­veru­legt eign­ar­hald eða til að dylja tekjur eða eignir sem eitt­hvað athuga­vert var við hvernig mynd­uð­ust.

Engir ársreikningar, engar bankaupplýsingar

Samkvæmt hag­tölum Seðla­banka eiga Íslend­ingar 31,6 millj­arða króna á Bresku Jóm­frú­areyj­unum, og þá nán­ast ein­vörð­ungu á Tortóla-eyju. Þessi tala er, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans, ekki talin tæm­andi fyrir þær eignir íslenskra ein­stak­linga og félaga sem skráðu eignir á eyj­unni frægu.

Á mál­þingi um skatta­skjól, sem upp­lýs­inga­skrif­stofan Norð­ur­lönd í fókus og Kjarninn í sam­starfi við Alþjóða­mála­stofnun Háskóla Íslands héldu í októ­ber 2013, sagði Bryndís Krist­jáns­dóttir skatt­rann­sókn­ar­stjóri að erfitt væri að nálg­ast upp­lýs­ingar um skatta­skjól víða um heim. Í gildi væru samn­ingar milli Norð­ur­land­anna og tugi skatta­skjóla um upp­lýs­inga­skipti. Frá Bresku Jóm­frú­areyj­unum væri til dæmis hvorki veittar ban­ka­upp­lýs­ingar né fjár­hags­upp­lýs­ingar þeirra félaga sem þar eru skráð. Ekki væri lög­bundið að halda bók­hald né að gefa út árs­reikn­inga í þessum löndum.

Þótt banka­reikn­ingar, eða verð­bréf í þeirra eigu, séu skráð á félög á stöðum eins og Tortóla, þá eru fjár­mun­irnir þó ekki raun­veru­lega geymdir þar. Í til­felli Íslend­inga er, líkt og áður sagði, oft­ast um að ræða banka­reikn­inga eða félög sem stofnuð voru af gömlu íslensku bönk­unum í Lúx­em­borg. Fjár­mun­irnir sjálfir voru, og eru, síðan geymdir þar þótt þeir séu skráðir til heim­ilis á meira fram­andi slóðum.

Eignir útlendinga á Íslandi aukast

Bein fjár­munaa­eign útlend­inga á Íslandi eykst einnig á milli ára og er nú 942 millj­arðar króna. Hún var mest árið 2011 rúm­lega 1.500 millj­arðar króna, en vert er að taka fram að fall krón­unnar hafði mikil áhrif á aukn­ingu hennar eftir hrun, enda allir stærstu kröfu­hafar hins fallna íslenska banka­kerfis erlendir. Aukn­ingin milli áranna 2013 og 2014 nemur um 90 millj­örðum króna.Langstærsti hluti fjár­muna­eigna erlendra aðila á Íslandi er með skráð heim­il­is­festi í Lúx­em­borg.

Beint fjár­fest­inga­flæði erlendra aðila var jákvætt upp á 51,5 millj­arða króna á síð­asta ári, að lang­mestu leyti vegna lána­við­skipta við tengda aðila.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár