Með samningnum SFR við ríkið í vikunni var verkfalli stéttarfélagsins aflýst. Verkfall þetta náði til ýmissa félaga opinberra starfsmanna. Innan þess mengis voru umsjónamenn fasteigna Háskóla Íslands og urðu verkfallsaðgerðir þeirra fyrr í mánuðinum valdar að lokun ýmissa bygginga og kennslustofa með tilheyrandi truflun á kennslu þeirra 13.000 nemenda sem skráðir eru í Háskólann. Þetta verkfall var engin nýjung fyrir stúdenta, enda það þriðja sem stóð til með að trufla kennslu þeirra á innan við tveim árum. Þar af voru hin tvo, verkfall félags háskólakennara annars vegar og prófessora hins vegar, áætluð á próftíma til að valda sem mestum usla á námsframvindu stúdenta en í báðum tilfellum náðust samningar áður en verkföllin hófust.
Í flestum tilvikum hljómaði fréttaflutningur fjölmiðla á þá leið að stúdentar væru „uggandi“ eða „áhyggjufullir“ yfir stöðu mála. Réttara væri að segja að þeir væru algjörlega gáttaðir. Bæði í nýliðnu verkfalli umsjónamanna og þeirra sem boðað var til á síðasta ári hafa bæði yfirvöld sem og stjórn og starfsmenn skólans algjörlega brugðist stúdentum. Í kjarabaráttu þeirra stétta sem starfa innan Háskóla Íslands eru stúdentar, sem langstærsti aðilinn að starfsemi skólans, notaðir sem vopn stríðandi aðila og eru verkföll miðuð við að valda sem mestri truflun á námi þeirra svo þrýstingur aukist við samningaborðið. Í tilfelli allra þessa boðuðu verkfalla var illa staðið að upplýsingagjöf til stúdenta og úrræði fyrir þá lítil sem engin. Þeir eða hagsmunaaðilar þeirra þurftu af fyrra bragði að biðja um upplýsingar um skipulag, tímasetningu og framvindu verkfalla og bárust þau gögn, ef þau bárust yfirhöfuð, bæði seint og illa. Í nýafstöðnu verkfalli SFR var um að ræða lokun á kennslurýmum innan skólans en ekki stöðvun neinnar kennslu, og hvatti Stúdentaráð Háskólans kennara til þess að nýta allar tiltækar leiðir til að halda uppi eðlilegri námsframvindu og sinna skyldu sinni við nemendur. Varð það til þess að kennsla var í auknum mæli færð á netið, eða í aðrar kennslustofur eða önnur rými sem komu verkfallinu ekki við. Uppskeran af þeirri viðleitni var sár hneykslun, formaður Stúdentaráðs var sakaður um að skilja ekki verkfallsréttinn og ýmsum kennurum úthýst sem verkfallsbrjótum sem væri skítsama um minni bræður sína. Áhrifamáttur verkfallsins var þó ekki rýrður meira en svo að samningar náðust eftir rúmlega tveggja vikna viðræður og stúdentar sátu uppi með fjóra daga af niðurfelldum fyrirlestrum, dæmatímum, rannsóknum og lokaprófum.
Stúdentar eru samkvæmt öllum mælikvörðum lágtekjustétt. Á meðan öll gjöld sem fylgja því að stunda einhvers konar nám á háskólastigi hækka og húsnæðismarkaðurinn er handónýtur þá hefur framfærsla stúdenta nær algjörlega staðið í stað. Háskóli Íslands er stærri en nokkru sinni áður og hefur úr minnu að moða fyrir hvern nemenda með hverju árinu sem líður, sem leiðir m.a. til aukinnar gjaldtöku á stúdenta sjálfa. Á meðan er grunnframfærsla þeirra í boði LÍN langt undir neysluviðmiðum Hagstofunnar, námsframvindukrafan þar á bæ var hækkuð eftirminnilega um árið til að brjóta enn frekar á jafnrétti til náms og forneskjulegt frítekjumark lánasjóðsins, lægra en hjá t.d. öryrkjum, leiðir marga lánstakandi stúdenta í árlegan vítahring of hárra sumarlauna og skertra lána. Mennt er máttur sagði einhver en ég fullyrði að íslenskir stúdentar upplifi sig ekkert sérstaklega máttuga. Það er áfellisdómur yfir íslenskt samfélag að nám á háskólastigi sé í sífellu látið sæta niðurskurði og vosbúð. Á meðan ráðamenn tala um nám sem ómetanlega fjárfestingu samfélagsins og stúdentar á öðrum Norðurlöndum fá greitt með námi sínu þurfa íslenskir stúdentar að lepja dauðann úr skel. Það er áfellisdómur yfir stjórnendum og kennurum Háskóla Íslands að kennsluhættir séu á því steinaldarstigi að þegar nokkrir húsverðir boða til verkfalls og segjast ekki ætla að opna lásinn á kennslustofum skólans þá þurfi nám yfir 10.000 einstaklinga að leggjast niður. Það er áfellisdómur yfir þeim stéttum sem aðild eiga að kennslu og aðstöðu stúdenta að þær nýti sér síendurtekið líf og starf stúdenta sem efnahagslegt bitbein og leitist við að valda sem mestum skaða þar á til þess að beita sem mestum þrýstingi í eigin kjarabaráttu.
Nám er vinna og stúdentar líta á það sem starf sitt. Þeir eru hagsmunahópur með sín kjör, sín vandamál og sínar áskoranir og hjá mörgum þeirra er fjárhagurinn háður eðlilegri námsframvindu. En ólíkt öðrum viðlíkum stéttum og hagsmunahópum hafa stúdentar engan verkfallsrétt, enga kjarasamninga, enga bókaða tíma upp í Karphúsi. Þeir eru efnahagslega undirsettir, réttindalausir og nær alltaf látnir sæta afgangs. Þegar kjarabaráttan er í fyrirrúmi og verkfallshrina plagar þjóðfélagið er talað um mikilvægi þess að virða verkfallsréttinn og að stétt standi með stétt í sinni baráttu. Ég styð þá hugsun eins og hver heilvita maður. En á meðan algjört sinnuleysi allra málsaðila gagnvart kjörum stúdenta virðist ekki ætla að linna þá hlýtur sú fallega hugsjón að byrja að hljóma örlítið innantóm. Enda hafa stúdentar engan rétt, engan málsvara og njóta engrar samstöðu.
Höfundur er heimspekinemi og stúdentaráðsliði Röskvu – Samtaka félagshyggjufólks við Háskóla Íslands
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir