Finnst koma til greina að setja þak á atkvæðisrétt lífeyrissjóða

Bjarna Bene­dikts­syni finnst koma til greina að setja gólf á erlendar fjár­fest­ingar líf­eyr­is­sjóða og á atkvæð­is­rétt þeirra í félögum til að koma í veg fyrir sam­þjöppun á valdi.

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra segir að sér finn­ist það koma til greina að setja gólf á erlendar fjár­fest­ingar líf­eyr­is­sjóða. Það myndi þýða að líf­eyr­is­sjóðir lands­ins, sem áttu 3.509 millj­arða króna í hreinni eign um síð­ustu ára­mót, yrðu skikk­aðir með lögum til að fjár­festa ákveðin hluta af eignum sínum utan íslensks hag­kerfis. Þetta kemur fram í við­tali við Bjarna í Morg­un­blað­inu í dag.

Þar segir for­sæt­is­ráð­herra einnig að vegna sam­þjöpp­unar á valdi sem geti fylgt fjár­fest­ingum líf­eyr­is­sjóð­anna í atvinnu­líf­inu finn­ist honum að taka þurfi til skoð­unar hvort þeir eigi að geta farið með atkvæð­is­rétt sem fylgja stórum eign­ar­hlutum „eða hvort setja beri þak á slíkan atkvæð­is­rétt.“ Það myndi þá þýða að líf­eyr­is­sjóðir myndu ekki fá atkvæð­is­rétt í sam­ræmi eign sína í skráðum íslenskum félögum en aðrir minni fjár­festar fá atkvæð­is­rétt umfram eign sína. Bjarni segir þó að engar ákvarð­anir verði teknar fyrr en að lok­inni úttekt á mál­unum sem hann ætli að hrinda í fram­kvæmd fljót­lega.

Hefur áhyggjur af fyrirferð lífeyrissjóða

Bjarni segir í við­tal­inu að hann hafi miklar áhyggjur af því að líf­eyr­is­sjóðir séu orðnir jafn fyr­ir­ferð­ar­miklir í íslensku atvinnu­lífi og þeir eru í dag. Sjóð­irnir eiga beint eða óbeint yfir 50 pró­sent skráðra hluta­bréfa og eru mjög fyr­ir­ferða­miklir í óskráðum félögum og ýmiss konar sjóðum. Þeir séu í raun og veru leið­andi og ber­andi fjár­festar víð­ast þar sem eitt­hvað sé að ger­ast nýtt í íslensku atvinnu­lífi í dag.

„Þegar við þetta bæt­ist að líf­eyr­is­sjóð­irnir eru að skoða fjár­fest­ingar inni í fjár­mála­fyr­ir­tækjum þá hlýtur maður að staldra við og spyrja hvort þetta sé gott fyrir líf­eyr­is­sjóð­ina sjálfa sem fjár­festa og fyrir heil­brigt efna­hags- og atvinnu­líf. Þetta þéttriðna net líf­eyr­is­sjóða á Íslandi felur sömu­leiðis í sér hættu, ekki síst vegna þess að atvinnu­lífið á Íslandi er jafn fábreytt og raun ber vitni. Við erum ekki með nema tvö til fjögur ber­andi fyr­ir­tæki á hverju stóra svið­inu, sama hvort þú horfir á trygg­ingar, fjár­mál, olíu­fé­lög, smá­sölu­verslun, fjöl­miðlun, fjar­skipti og þess vegna sam­göngur. Þetta getur verið nokkuð eitruð blanda.“

For­sæt­is­ráð­herra ætlar að hrinda af stað úttekt á þeim hættum sem gætu leynst í kerf­inu við þær aðstæður sem eru í dag til fram­tíðar. „Ég held að það sé mjög mik­il­vægt, bæði líf­eyr­is­sjóð­anna sjálfra vegna og fyrir heil­brigða og góða upp­bygg­ingu atvinnu­lífs­ins til lengri tíma. Þessa vinnu mun ég setja af stað áður en langt um líður. Hvort komi til laga­breyt­inga í kjöl­far þeirrar vinnu ætla ég ekki að segja neitt til um nú, áður en vinnan er hafin. Það sem þarf m.a. að skoða er greiðslu­flæði líf­eyr­is­sjóð­anna inn í fram­tíð­ina með hlið­sjón af ald­urs­sam­setn­ingu þjóð­ar­innar og við þurfum að velta fyrir okkur þáttum sem varða efna­hags­lífið í heild, eins og því að hvaða marki er æski­legt að auka erlendar fjár­fest­ingar sjóð­anna.“

Gólf kemur til greina

Bjarna finnst koma til greina að setja gólf á erlendar fjár­fest­ingar líf­eyr­is­sjóð­anna. „Vegna sam­þjöpp­unar á valdi, sem getur fylgt fjár­fest­ingum líf­eyr­is­sjóð­anna inn í atvinnu­lífið, finnst mér þurfa að taka til skoð­unar þætti eins og þann hvort þeir eigi að geta farið með atkvæð­is­rétt, sem fylgir stórum eign­ar­hlutum, eða hvort setja beri þak á slíkan atkvæð­is­rétt. Ég von­ast til þess að við getum tekið yfir­veg­aðar ákvarð­anir um fram­haldið, að svona úttekt lok­inni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár