Fyrrverandi eiginkona Ragnars Sigurðssonar, fyrrverandi landsliðsmanns í knattspyrnu, segir það rangt sem Magnús Gylfason, sem sat í landsliðsnefnd Knattspyrnusambands Íslands (KSÍ) árið 2016, sagði í skýrslu úttektarnefndar ÍSÍ sem birtist í gær um að hann hafi hitt hana og þáverandi eiginmann hennar á kaffihúsi daginn eftir að lögregla var kölluð að dvalarstað þeirra vegna grunsemda um heimilisofbeldi.
[links]Í skýrslunni er haft eftir Magnúsi, sem sat í stjórn KSÍ og í landsliðsnefnd þangað til fyrir skemmstu, að hann hefði hitt Ragnar og eiginkonu hans á kaffihúsi daginn eftir að lögregla var kölluð til. Ragnar, sem er kallaður A í skýrslunni, hefði þá greint honum frá því sem hefði gerst um nóttina. „Ekkert hefði bent til þess á þeim fundi að eiginkona A hefði sætt ofbeldi eða að hún hygðist leggja fram kæru á hendur A. “
Í viðbrögðum við sem fyrrverandi eiginkona Ragnars hefur sent nefndinni vegna birtingu skýrslunnar segir konan að hún hafi ekki hitt Magnús og Ragnar á kaffihúsi þennan dag líkt né nokkurn annan og hún geti bent á fleiri en eitt vitni því til staðfestingar. „Líðan hennar hafi heldur ekki verið með þeim hætti að hún væri að hitta neinn á kaffihúsi daginn eftir og Magnús hafi engar forsendur haft til að draga ályktanir um hennar líðan. Þá hafi hún heldur ekki hitt A næstu daga.“
Í samræmi við þessar upplýsingar hefur skýrsla úttektarnefndarinnar verið uppfærð að þessu leyti.
Þegar nefndin ræddi við fyrrverandi eiginkonu Ragnars á meðan að hún vann að gerð skýrslunnar sem lýsti hún vonbrigðum sínum „með hvernig KSÍ hefði tekið á þessu máli“.
Átti sér stað 2016
Frásögn konunnar er eitt þeirra mála sem er til umfjöllunar í skýrslu úttektarnefndarinnar. Fréttablaðið hafði greint frá málínu í september síðastliðnum en atburðurinn áti sér stað í júlí 2016. Í frásögn Fréttablaðsins sagði að lögreglu hefði verið kölluð að heimili Ragnars og fyrrverandi eiginkonu hans eftir að hann „gekk þar berserksgang, braut allt og bramlaði og hafði í hótunum við þáverandi eiginkonu sína“.
Í frétt sem Vísir birti um málið í gær sagði að samkvæmt heimildum miðilsins hefði konan lýst atvikum þannig að Ragnar hefði tekið hana kverkataki og hrint henni í sófa.
[adspot]Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, greindi frá því í viðtali við nefndina að hún hefði fengið símhringingu um svipað leyti eftir að einstaklingur hefði haft samband við skrifstofu KSÍ og fengið farsímanúmerið hennar. „Sá einstaklingur hefði greint henni frá því að lögreglan hefði verið kölluð að heimili A vegna óláta og gruns um heimilisofbeldi. Klara hefði deilt þessum upplýsingum með Geir Þorsteinssyni, Magnúsi Gylfasyni og síðar Guðna Bergssyni en KSÍ hefði á sínum tíma ekki haft aðrar upplýsingar en að málið væri í farvegi hjá lögreglu. Þar sem málið hefði átt sér stað utan landsliðsverkefnis hefði KSÍ ekki litið svo á að það væri í verkahring sambandsins heldur lögreglu að aðhafast frekar í málinu. KSÍ hefði löngu síðar fengið þær upplýsingar að kæran á hendur A hefði verið dregin til baka. “
Símtal frá manni sem hótaði að „brjóta báðar fætur“ Ragnars
Gunnar Gylfason, sem á þessum tíma var starfsmaður KSÍ og A-landsliðs karla, greindi úttektarnefndinni frá því í viðtali að hann hafi einnig fengið símtal frá manni sem hann þekkti ekki vegna málsins.
Samkvæmt Gunnari mun sá sem hringdi í hann hafa sagt honum frá því að Ragnar hafi einhverjum kvöldum áður gengið berserksgang í eða við íbúð sína og unnið skemmdir á henni og að nærstaddir hefðu verið óttaslegnir. „Gunnar hafi spurt manninn hvort hann hefði ekki hringt í lögreglu og hún komið á staðinn vegna þessa sem hann svaraði játandi. Þegar Gunnar spurði hvað hann ætti að gera í málinu fyrst lögreglan væri með með það snerist málið og maðurinn hafi sagt Gunnari að ef A gerði þetta aftur myndi hann láta brjóta báða fætur hans en það væri væntanlega ekki gott fyrir fótboltamann. Gunnar kvaðst í viðtali við nefndina alveg hafa séð A í ham og talið ólíklegt að þeim sem ætlaði að brjóta á honum fæturna yrði vel ágengt með það.“
Geir benti Magnúsi á almannatengil
Geir Þorsteinsson, sem á þessum tíma var formaður KSÍ, kvaðst í skýringum sínum til nefndarinnar minnast samtals við Magnús Gylfason í landsliðsnefnd um „leikmann sem virtist eiga í erfiðleikum í sínu sambandi“ og að lögreglan hefði verið kölluð til.
Geir kvað málið aldrei hafa verið „formlega á borði KSÍ og um einkalíf leikmannsins var að ræða“. Þá hafi það ekki tengst verkefnum KSÍ.
Í skýringum sínum til nefndarinnar sagði Geir að það kynni þó vel að vera að hann hefði bent Magnúsi á ónafngreindan almannatengli sem gæti hjálpað í tengslum við umfjöllun fjölmiðla. Sá hringdi meðal annars í Nadine Guðrúnu Yaghi, sem þá starfaði sem fréttamaður hjá Vísi og Stöð 2 og vann að umfjöllun um málið, og gerði lítil úr því.
Geir gekkst einnig við því að hafa sjálfur rætt við almannatengilinn, sem gengur undir nafninu Þ í skýrslunni. „Úttektarnefndin hefur við athugun sína fengið upplýsingar og gögn sem sýna fram á að félag sem Þ starfaði hjá sinnti verkefnum fyrir KSÍ á þessum tíma og fékk greiðslur frá sambandinu í umræddum mánuði.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir