Katrín útilokar ekki að VG taki sæti í minnihlutastjórn

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, úti­lokar ekki að Vinstri græn taki sæti í minni­hluta­stjórn. Staðan sé þannig að fólk sé farið að hugsa út fyrir kass­ann og skoða slíkar leiðir. „Það var auð­vitað lögð mikil áhersla á myndun meiri­hluta­stjórnar í upp­hafi. Nú hafa hug­myndir um myndun til dæmis minni­hluta­stjórnar skotið upp koll­inum og ég held að það sé eitt­hvað sem allir flokk­arnir hljóta að velta fyrir sér.“ Þetta kemur fram á vef RÚV. Katrín von­ast til þess að ný rík­is­stjórn verði mynduð fyrir ára­mót.

Viðræðum fimm flokka um myndun rík­is­stjórnar undir for­ystu Pírata lauk í gær þegar ljóst væri að ekki myndi nást saman um lyk­il­mál. Þar mun­aði mestu á milli Við­reisnar ann­ars vegar og Vinstri grænna hins vegar m.a. í sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­málum og í rík­is­fjár­málum. Vinstri græn hafa lagt höf­uð­á­herslu á mikla aukn­ingu útgjalda til að fjár­festa í vel­ferð­ar­málum og innviðum og á að fjár­magna þá aukn­ingu með nýjum sjálf­bærum tekjum. Á meðal þeirra til­lagna sem Vinstri græn lögðu til var auð­legð­ar­skattur á stór­eigna­fólk, að taka upp syk­ur­skatt á nýjan leik auk þess sem flokk­ur­inn hefur einnig viðrað hug­myndir um hátekju­skatt. Katrín sagði hins vegar við RÚV að Vinstri græn hafi ekki viljað hækka almennan tekju­skatt til að ná mark­miðum sínum.

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands,hvatti stjórn­mála­flokk­anna til að kanna mögu­leik­ann á myndun minni­hluta­stjórnar eftir að Píratar skil­uðu stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boði sínu í gær. „Í ljósi þeirra sjón­ar­miða sem fram komu í við­ræðum mínum við flokks­leið­toga í dag hef ég ákveðið að veita engum þeirra umboð til stjórn­ar­mynd­unar að sinni. Þess í stað hvatti ég þá til að ráða ráðum sínum og kanna með óform­legum við­ræðum sín á milli hvaða leiðir eru enn mögu­legar til mynd­unar rík­is­stjórnar sem njót­i ­meiri­hluta­stuðn­ings á Alþingi eða geti að minnsta kosti varist þar van­trausti. Í sam­tölum mínum við for­ystu­fólk flokk­anna nefndi ég einnig þau brýnu verk­efni sem bíða úrlausnar á Alþingi og krefj­ast góðrar sam­vinnu og sam­stöð­u. Loks minnti ég flokks­leið­tog­ana á þá ábyrgð þeirra og skyldu að ná ­sam­komu­lagi um myndun rík­is­stjórn­ar. Ég tjáði þeim að ég vænti tíð­inda í þeim efn­um í þess­ari viku,“ sagði í til­kynn­ingu for­seta­emb­ætt­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár