Viðreisnarfólki í Reykjavík fjölgaði um 6-700 í aðdraganda prófkjörs

Alls verða um 1.900 manns á kjör­skránni í fyrsta próf­kjöri Við­reisnar, sem hefst á morgun. Þórdís Lóa Þór­halls­dóttir og Þórdís Jóna Sig­urð­ar­dóttir bít­ast um efsta sætið á lista flokks­ins í Reykja­vík.

Viðreisnarfólki í Reykjavík hefur fjölgað um 6-700 manns síðan ákveðið var að halda prófkjör fyrir komandi borgarstjórnarkosningar, samkvæmt upplýsingum frá flokknum.
Við­reisn­ar­fólki í Reykja­vík hefur fjölgað um 6-700 manns síðan ákveðið var að halda próf­kjör fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá flokknum. Mynd: Bára Huld Beck

Alls verða í kringum 1.900 manns á kjör­skrá Við­reisnar í fyrsta próf­kjöri flokks­ins sem fram fer í Reykja­vík á morgun og á laug­ar­dag. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Viðreisn hefur flokks­fé­lögum í Reykja­vík einni og sér fjölgað um 600-700 manns í aðdrag­anda próf­kjörs­ins.

Sjö manns bjóða fram krafta sína í próf­kjörin, en í því verður kosið um fjögur efstu sætin á lista flokks­ins. Tvær vilja fyrsta sætið á lista, þær Þór­dís Lóa Þór­halls­dóttir núver­andi odd­viti borg­ar­stjórn­ar­flokks­ins og Þór­dís Jóna Sig­urð­ar­dótt­ir. Pawel Bar­toszek borg­ar­full­trúi er einn um að gefa kost á sér í annað sæti á list­an­um, en fleiri eru um hit­una hvað þriðja sætið á lista varð­ar.

Allir félags­menn Við­reisnar 16 ára og eldri, sem búsettir eru í Reykja­vík og hafa verið félags­menn í a.m.k. þrjá daga fyrir próf­kjör hafa kosn­inga­rétt í próf­kjör­inu, en frestur til þess að skrá sig í flokk­inn til þess að öðl­ast þátt­töku­rétt í próf­kjör­inu rann út í lok dags 1. mars.

Samkvæmt svari frá Viðreisn fjölgar víðar í flokknum en í Reykja­vík þrátt fyrir að þar fari eina próf­kjör flokks­ins fram. Í Mos­fellsbæ fer til dæmis fram óbind­andi skoð­ana­könnun á meðal félaga um skipan á lista flokks­ins í bænum, en þar sækj­ast þau Lovísa Jóns­dóttir og Valdimar Birg­is­son eftir því að leiða lista flokks­ins.

„Það er virki­lega gaman að sjá þennan mikla áhuga á fyrsta próf­kjöri Við­reisnar, flokks sem verður 6 ára nú í maí og und­ir­býr sig nú fyrir sínar fimmtu kosn­ingar,” segir Jenný Guðrún Jóns­dóttir fram­kvæmda­stjóri flokks­ins í skrif­legu svari til Kjarnans.

Undir kjörfylgi í Reykjavík í síðustu könnun

Við­reisn bauð fyrst fram til sveit­ar­stjórna árið 2018 og fékk þá 8,2 pró­sent atkvæða í Reykja­vík­ur­borg og tvo borg­ar­full­trúa kjörna. Í kjöl­farið mynd­aði flokk­ur­inn meiri­hluta ásamt Sam­fylk­ingu, Pírötum og Vinstri græn­um.

[adspot]

Sam­kvæmt nýj­ustu könn­un­inni um fylgi flokka í Reykja­vík, sem Mask­ína fram­kvæmdi í lok jan­úar og byrjun febr­ú­ar, mæld­ist Við­reisn ögn undir kjör­fylgi sínu og var eini flokk­ur­inn núver­andi meiri­hluta sem það gerði.

Flokk­ur­inn mæld­ist nánar til tekið með 5,9 pró­senta fylgi í könnun Mask­ínu, sem myndi þýða að hann fengi ein­ungis einn borg­ar­full­trúa kjör­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár