Trump og tvö prósentin

Donald Trump kom á fund NATO ríkja í Brussel með látum og boð­aði þar hluti sem margir áttu erfitt með að átta sig á.

Á leið­toga­fundi aðild­ar­ríkja Atl­ants­hafs­banda­lags­ins í Brussel síð­ast­lið­inn fimmtu­dag sagði Donald Trump for­seti Banda­ríkj­anna að flest aðild­ar­ríki NATO skuldi veru­legar fjár­hæðir sem þau hafi skuld­bundið sig til að verja til varn­ar­mála. Hvert og eitt aðild­ar­ríki hafi fyrir mörgum árum lofað, sagði for­set­inn, að árlega skyldu tvö pró­sent af lands­fram­leiðslu renna til varnar-og örygg­is­mála en það hafi ekki gengið eftir. Þessi full­yrð­ing Banda­ríkja­for­seta, um lof­orðið, virð­ist stang­ast á við raun­veru­leik­ann.

Donald Trump kom við í Brussel í sinni fyrstu utan­lands­ferð eftir að hann tók við völdum í jan­úar. Við þetta tæki­færi var tekin í notkun ný bygg­ing sem hýsir höf­uð­stöðvar Atl­ants­hafs­banda­lags­ins í Brussel, gamla aðal­bygg­ingin er frá 1967 og var þá sögð til bráða­birgða. Trump hrós­aði nýbygg­ing­unni en sagð­ist ekki þora að spyrja um kostn­að­inn.

NATO er rottuhola

Leið­togar NATO ríkj­anna höfðu beðið komu for­set­ans með eft­ir­vænt­ingu. Í kosn­inga­bar­átt­unni fór Trump hörðum, og á köflum niðr­andi, orðum um NATO. Kallaði banda­lagið rottu­holu og úrelt fyr­ir­bæri. Mörg fleiri orð, nei­kvæð, við­hafði for­set­inn um NATO meðan kosn­inga­bar­áttan stóð yfir. Í ljósi þess­ara ummæla vissu leið­tog­arnir ekki við hverju þeir mættu búast í ræðu for­set­ans í Brussel. Héldu kannski að hann myndi nota tæki­færið til að lýsa yfir ein­dregnum stuðn­ingi við NATO sam­starfið en ræða for­set­ans var mest­an­part á öðrum nótum.

Skulda milljarða

Eins og vænta mátti fór Donald Trump mik­inn í ræðu sinni og spar­aði ekki stóru orðin. Athygli vöktu ummæli hans um Rússland, ,,Rússland er ógn“ sagði for­set­inn, sem fór jafn­framt mörgum orðum um hryðju­verkaógn­ina sem hann sagði mestu áskorun NATO. Síðan sneri hann tal­inu að fjár­hag NATO, það kom ekki á óvart. Trump hefur margoft rætt um þann ójöfnuð sem ríkir í fram­lögum aðild­ar­ríkj­anna þar sem hlutur Banda­ríkj­anna vegur lang þyngst. Trump sagði 23 af 28 aðild­ar­ríkjum banda­lags­ins skulda millj­arða á millj­arða ofan til sam­eig­in­legra sjóða. ,,Margra ára upp­söfnuð skuld“ sagði for­set­inn. Mörgum sem hlýddu á ræð­una kom á óvart hvað for­set­anum varð tíð­rætt um hin svo­nefndu tvö pró­sent eins og þau væru eins konar árgjald eða félags­gjald. Hvort hann vissi ekki betur eða vildi útleggja hlut­ina með þessum hætti vissi eng­inn við­staddra.

Tvö prósentin fyrst nefnd um síðustu aldamót

Framlag sem næmi tveimur pró­sentum árlegrar þjóð­ar­fram­leiðslu var fyrst nefnt, sem æski­legt við­mið, innan aðild­ar­ríkja NATO árið 2001, á leið­toga­fundi í Prag. Þá höfðu Banda­ríkin miklar áhyggjur af árvissum nið­ur­skurði evr­ópskra ríkja til varn­ar­mála. Bretar og Frakkar studdu við­horf Banda­ríkja­manna en þeir síð­ast­nefndu standa í dag straum af um 70 pró­sentum útgjalda banda­lags­ins. Á áður­nefndum fundi var engin form­leg ákvörðun tekin en í fund­ar­gerð talað um ,,heið­urs­manna­sam­komu­lag“. ,,Tvö pró­sentin“ voru næst rædd á leið­toga­fundi í Riga í Lett­landi árið 2006, áhyggj­urnar þær sömu og fimm árum fyrr: nið­ur­skurður. Bæði George W. Bush og Barack Obama lýstu marg­sinnis óánægju sinni með það sem þeir köll­uðu vilja­leysi Evr­ópu­ríkj­anna til að leggja sitt af mörkum til varn­ar­mála. Það gerði Hillary Clinton líka í kosn­inga­bar­átt­unni fyrir for­seta­kosn­ing­arnar vestra í fyrra. Leið­togar flestra ríkj­anna innan NATO litu þannig á, eftir að járn­tjaldið féll, að ekki væri sama þörf og áður fyrir að halda uppi fjöl­mennum her. Mörg ríki skáru niður fjár­veit­ingar til her­mála, það bitn­aði ekki síst á tækja­kaupum. Nið­ur­skurð­ur­inn jókst svo til muna eftir árið 2003. Umræðan um tvö pró­sentin var sprottin úr þessum jarð­vegi.

Hótanir Trumps

Þótt fyrr­ver­andi for­setar Banda­ríkj­anna hafi verið ósáttir við nið­ur­skurð NATO ríkj­anna í Evrópu hafa þeir aldrei talað um annað en sam­stöðu: einn fyrir alla og allir fyrir einn. Fyrr en nú. Donald Trump hefur að und­an­förnu margoft sagt að það sé spurn­ing hversu miklar skuld­bind­ingar Banda­ríkja­menn vilji og geti tekið á sig gagn­vart þeim ríkjum sem ekki standi við tveggja pró­senta fram­lagið. Þessar yfir­lýs­ingar for­set­ans hafa væg­ast sagt mælst illa fyrir hjá leið­togum ann­arra NATO ríkja sem segja þetta ekk­ert annað en hót­anir.

Af hverju tvö prósent?

Danska dag­blaðið Politi­ken fjall­aði fyrir nokkrum dögum ítar­lega um ,,tveggja pró­senta ákvörð­un­ina“. Í sam­tölum við fyrr­ver­andi og núver­andi starfs­menn NATO hefur komið í ljós þegar þeir skoð­uðu fram­lög ríkj­anna til varn­ar­mála á árunum kringum alda­mótin, og fram til árs­ins 2003, að í flestum til­vikum námu fram­lögin í kringum tvö pró­sent. Sum ríki voru tals­vert undir tveimur pró­sentum og önnur nokkuð yfir. Þannig var við­miðið fundið. Donald Trump hefur hins­vegar talað um tvö pró­sentin sem fast­lagt árgjald sem flestir hafi svo svik­ist um að greiða.

Óeðlilegt viðmið

Í við­tölum, meðal ann­ars við blaða­menn Politi­ken, hafa margir lýst þeirri skoðun að þjóð­ar­fram­leiðsla sé óeðli­legt við­mið þegar kemur að fram­lögum til varn­ar­mála. Bent hefur verið á að þegar kreppan skall á í Grikk­landi og þjóð­ar­fram­leiðslan hrundi var landið skyndi­lega komið langt yfir tveggja pró­senta við­miðið, þótt fram­lagið væri hið sama og áður. Svo annað dæmi sé nefnt hefur fram­lag Dana í krónum talið hækkað, þótt pró­sentu­talan hafi lækkað, aukin þjóð­ar­fram­leiðsla veldur þessu.

Niðurstaðan í Brussel

Eins og áður sagði ríkti mikil eft­ir­vænt­ing meðal leið­toga NATO ríkj­anna þegar Donald Trump hóf ræðu sína í nýjum höf­uð­stöðvum banda­lags­ins. Eftirá voru flestir sáttir við sumt í ræðu for­set­ans, en ekki jafn hrifnir af öðru. Þau ummæli for­set­ans að af Rúss­landi stafi ógn þóttu jákvæð, eins þegar hann sagði að allir yrðu að standa saman í bar­átt­unni gegn hryðju­verkum. Leið­tog­unum þótti líka gott að heyra að for­set­inn tal­aði á allt öðrum, og jákvæð­ari nótum um NATO, en hann hafði áður gert. Það nei­kvæða var umfjöll­unin (sem sumir köll­uðu skammar­ræðu) um fjár­málin og að hann skyldi ekki afdrátt­ar­laust lýsa yfir að NATO ríkin stæðu saman, öll sem eitt, ef á þyrfti að halda. Margir þjóð­ar­leið­tog­anna sem voru á fund­inum í Brussel hafa, í við­tölum heima fyrir, lýst sig sam­þykka því að auka fram­lög til varn­ar­mála, heims­myndin sé óneit­an­lega önnur en hún var fyrir örfáum árum. Einn ráð­herr­anna sem var í Brussel orð­aði þessa breyttu heims­mynd svo: ,,rúss­neski björn­inn hefur rumskað og skriðið úr hýði sínu. Hvort og hvenær hann rís upp á aft­ur­lapp­irnar, rymur og slær með hramm­inum er óvíst. En ef það ger­ist er betra að vera við­bú­inn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár