Þórólfur: Að læknar skuli halda þessu fram finnst mér ótrúlegt

Engin þjóð er nærri því að ná hjarð­ó­næmi. Svíar eru mjög langt frá því og Íslend­ingar enn lengra. Þó er álag á heil­brigð­is­kerfið hér mikið og á eftir að aukast á næstu dögum og vikum.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Lögreglan

„Eini sanni sann­leik­ur­inn um hvernig á að gera þetta er ekki til,“ sagði Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. Á fund­inum var beint að honum spurn­ingu sem oft hefur heyrst áður: Ætti að fara þá leið að ná hjarð­ó­næmi í sam­fé­lag­inu frekar en að hafa miklar tak­mark­anir á ferðum og sam­komum fólks?

„Það eru allar þjóðir langt frá hjarð­ó­næmi,“ svar­aði Þórólfur. Oft væri bent á Svía í þessu sam­bandi en þar væru þó aðeins um 10 pró­sent íbúa á þeim svæðum sem verst hafa orðið úti búnir að sýkj­ast. „Þannig að þeir eru langt frá hjarð­ó­næmi.“

[adspot]

Að sögn Þórólfs „þarf ekki öfl­ugt ímynd­un­ar­afl“ til að sjá hvað myndi ger­ast ef veirunni yrði leyft að ganga óheftri yfir. Um 1 pró­sent íbúa á Íslandi hefðu smit­ast og þó væri álagið á heil­brigð­is­kerfið þegar mikið.

[links]Hvað ef við fengjum fjórum til fimm sinnum stærri far­aldur? Spurði Þórólfur. Hvað ef til­fellin væru 300-500 dag? Eða jafn­vel um 2.000 eins og spár vís­inda­fólks í Háskóla Íslands bentu til að þau gætu orðið ef ekk­ert yrði að gert. „Við myndum gjör­sam­lega yfir­keyra heil­brigð­is­kerfið og myndum fá hræði­lega útkomu,“ sagði hann. „Að læknar skuli halda þessu fram [að fara hjarð­ó­næm­is­leið] – mér bara finnst það ótrú­legt.“

Páll Matth­í­as­son, for­stjóri Land­spít­al­ans, sem einnig var á fundi almanna­varna í dag, sagði engan góðan kost í stöð­unni – eini góði kost­ur­inn væri að hér væri engin veira. „Það verður að velja skásta kost­inn og sá lang­skásti er að reyna að tak­marka sem mest sýk­ingar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár