SA vilja að stuðningslánin nái til stærri fyrirtækja og hærri lokunarstyrki

Umfangs­meiri stuðn­ings­lán sem ná til stærri fyr­ir­tækja, hærri lok­un­ar­styrkir, skatt­greiðslu­frestun fyrir þá sem skil­uðu meiri hagn­aði og hag­ræð­inga­krafa á rík­is­rekstur. Þetta er meðal þess sem Samtök atvinnu­lífs­ins vilja breyta í aðgerð­ar­pakka 2.0.

Halldór Benjamín Þorbergsson er framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Hann skrifar undir umsögn samtakana.
Halldór Benjamín Þor­bergs­son er fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins. Hann skrifar undir umsögn sam­tak­ana. Mynd: Bára Huld Beck

Samtök atvinnu­lífs­ins (SA) leggja til að tvær breyt­ingar verði gerðar á skil­yrðum svo­kall­aðra stuðn­ings­lána. Annars vegar vilja sam­tökin að þau nái til fyr­ir­tækja sem séu með tekjur undir 1,2 millj­arði króna á ári í stað 500 millj­óna króna eins og gert er ráð fyrir í fyr­ir­liggj­andi frum­varpi.

Í öðru lagi vilja þau að hámarks láns­fjár­hæð, sem nú er sex millj­ónir króna, verða þess í stað látin taka mið af rekstr­ar­kostn­aði fyr­ir­tækja í beinu hlut­falli við tekju­fall, svo fremur sem tekju­tapið sé 40 pró­sent eða meira.

Þetta kemur fram í umsögn SA um nýtt frum­varp til fjár­auka­laga sem birt­ist á vef Alþingis í dag.

Segja stuðningslánin einungis ná til örfyrirtækja

Stuðn­ings­lánin voru kynnt í aðgerða­pakka 2.0 í síð­ustu viku. Þau munu njóta 100 pró­sent rík­is­á­byrgðar. Lánin til fyr­ir­tækj­anna verður hægt að sækja um með ein­földum hætti á Island.is en þau verða sex millj­ónir krónur á hvert fyr­ir­tæki. Heild­ar­um­fang lán­anna á að geta orðið allt að 28 millj­arðar króna í heild, að mati stjórn­valda.

Í umsögn SA segir að stuðn­ings­lánin hafi verið kynnt á þeim for­sendum að þau nái til lít­illa og með­al­stórra fyr­ir­tækja.

[adspot]Eitt af þeim skil­yrðum sem fyr­ir­tæki þurfi að upp­fylla til þess að geta fengið stuðn­ings­lán sé hins vegar að tekjur árs­ins 2019 hafi að lág­marki verið níu millj­ónir króna og að hámarki 500 millj­ónir króna. „Því er ljóst að aðgerðin nær fyrst og fremst til örfyr­ir­tækja og sætir furðu að stjórn­völd lýsi því bein­línis yfir að slík lán nái einnig til lít­illa og með­al­stórra fyr­ir­tækja.“

Ljóst sé að COVID-19 far­ald­ur­inn hafi víð­tæk áhrif á íslenskt atvinnu­líf og lík­lega þyngra en í mörgum öðrum ríkjum vegna efna­hags­legs mik­il­vægis ferða­þjón­ustu í verð­mæta­sköpun og fjölda starfa. „Samkvæmt tölum frá Creditinfo úr árs­reikn­ingum fyr­ir­tækja fyrir árið 2018 ná þessi lán aðeins til 15 pró­sent við­skipta­hag­kerf­is­ins miðað við árs­veltu. Eftir standa því 85 pró­sent við­skipta­hag­kerf­is­ins sem lánin ná ekki til. Stuðn­ings­lán eru hugsuð sem rekstr­ar­lán til að aðstoða fyr­ir­tæki í gegnum mjög erf­ið­ara efna­hags­að­stæður. Í ljósi þess hversu víð­tæk áhrif COVID-19 far­ald­ur­inn hefur á íslenskt atvinnu­líf er óheppi­legt að horft sé fram hjá svo stórum hluta við­skipta­hag­kerf­is­ins.“

Vilja að stærri fyrirtæki geti frestað skattgreiðslu

Önnur aðgerð sem var kynnt í síð­ustu viku var að fyr­ir­tæki sem ættu að greiða tekju­skatta í ár, vegna hagn­aðar í fyrra, áttu að geta að skil­yrðum upp­fylltum frestað þeim skatt­greiðslum. Hámarks­frestun skatt­greiðslu á hvert fyr­ir­tæki var 20 millj­ónir króna og sem þýðir að fyr­ir­tæki með allt að 100 millj­óna króna í hagnað á árinu 2019 eiga að geta nýtt sér úrræðið, sem í raun er vaxta­laust lán frá rík­inu, að fullu. Umfang þess­arar aðgerðar er metin á tólf millj­arða króna af stjórn­völdum.

SA gerir athuga­semdir við skil­yrðin sem sett eru. Samtökin telja að ekki ætti að tak­marka fjár­hæð skatt­eignar. „Þau fyr­ir­tæki sem skil­uðu miklum hagn­aði á síð­asta ári geta hæg­lega lent í miklu tapi í núver­andi árferði. Rík­is­sjóður setti ekki þak á skatt­greiðslur þeirra fyr­ir­tækja í fyrra. Ákvæðið í núver­andi mynd felur þannig í sér ómál­efna­lega mis­munun sem er ekki full­nægj­andi rök­studd. Í skatt­heimtu verður að ríkja jafn­ræði og því eðli­legt að fyr­ir­tæki með meiri hagnað en 100 millj. kr. í fyrra og fer í mik­inn tap­rekstur í ár geti tekið tapið út á einu ári í stað fleiri. Aðgerðin er tekju­hlut­laus fyrir rík­is­sjóð að frá­dregnum fjár­magns­kostn­aði.“

Vilja hærri lokunarstyrki

Svo­kall­aðir lok­un­ar­styrkirnir voru kynntir í aðgerða­pakka stjórn­valda í síð­ustu viku. Í þeim felst að fyr­ir­tæki eða ein­yrkjar sem þurftu að loka starf­semi sinni vegna lög­boðs stjórn­valda í tengslum við sótt­varn­ar­að­gerðir vegna útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum munu geta fengið styrki úr rík­is­sjóði. Styrkirnir verða í boði fyrir þau fyr­ir­tæki sem geta sýnt fram á að minnsta kosti 40 pró­sent tekju­fall og að þau séu með opin­ber gjöld í skil­um. Hver aðili mun geta fengið allt að 800 þús­und krónur fyrir hvern starfs­mann en 2,4 millj­óna króna styrk að hámarki.

Að mati SA er hámarks­fjár­hæðin of lág.

[adspot]Í aðgerðum stjórn­valda til að örva nýsköpun og sprota­starf­semi var meðal ann­ars lagt til að end­ur­greiðslur egna rann­sókna og þró­unar verða hækk­aðar úr 20 í 25 pró­sent. SA vill að þetta hlut­fall verði hækkað í 35 pró­sent, að hækkun á þaki og end­ur­greiðslu­hlut­falli taki strax gildi fyrir yfir­stand­andi rekstr­arár og að hámark kostn­aðar til útreikn­ings á frá­drætti frá álögðum tekju­skatti hjá hverju fyr­ir­tæki verði 1,1 millj­arðar króna óháð því hvort um er að ræða aðkeypta rann­sóknar- eða þró­un­ar­vinnu.

Vilja kröfu um hagræðingu í ríkisrekstri

Önnur aðgerð sem kynnt var fyrir tæpri viku var átak til að fjölga tíma­bundnum störfum fyrir náms­menn sem áttu engan eða tak­mark­aðan rétt á atvinnu­leys­is­bótum. Kostn­aður vegna þessa var met­inn á 2,2 millj­arða króna.

[links]Átakið á að tak­markast við sam­vinnu Vinnu­mála­stofn­unar og félags­mála­ráðu­neytis við stofn­anir rík­is­ins og sveit­ar­fé­lög og búa til allt að þrjú þús­und tíma­bundin störf hjá hinu opin­bera. SA segir að það sæti furðu að þetta sam­starf nái ekki til einka­fyr­ir­tækja en það er ljóst að sum þeirra þurfi að ráða inn tíma­bundna starfs­krafta í sumar vegna sum­ar­leyfa starfs­fólks. „Einnig er lík­legt að mörg fyr­ir­tæki sleppi því að ráða inn sum­ar­fólk vegna bágrar fjár­hags­legrar stöðu og velji fremur að draga úr þjón­ustu í sumar. Með þess­ari aðgerð væri því hægt að hvetja fyr­ir­tæki til þess að ráða náms­menn og auka þannig enn frekar á fjöl­breytni þeirra starfa sem náms­mönnum stendur til boða í sumar. Þar að auki myndi þetta aðstoða fyr­ir­tæki við að halda uppi starf­semi og þjón­ustu­stigi í sumar á meðan starfs­fólk þeirra er í sum­ar­leyfum.“

Að lokum lýsa SA yfir von­brigðum með að í fjár­auka­lög­unum sé ekki gerð krafa um aukna hag­ræð­ingu í rík­is­rekstri. „Aukin hag­ræð­ing í rík­is­rekstri er nauð­syn­leg og verður verk­efni næstu miss­era þegar far­ald­ur­inn hefur gengið yfir. Stöðugt þarf hins vegar að horfa til þeirra fjár­muna sem rík­is­sjóður hefur úr að spila hverju sinni. SA hvetja stjórn­völd til að horfa til þeirrar stöðu sem nú er uppi og finna allar mögu­legar leiðir til að draga úr útgjöldum og hag­ræða í rekstri.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár