Stjórn Knattspyrnusambands Íslands (KSÍ) fer fram á það í áskorun til stjórnvalda að sum úrræði sem í boði eru fyrir rekstraraðila og einstaklinga, og kynnt hafa verið til leiks í aðgerðapökkum síðustu vikna, verði einnig látin nýtast íþróttahreyfingunni.
Því sé mjög ábótavant í þeim úrræðum stjórnvalda sem kynnt hafa verið til þessa og úr því þurfi nauðsynlega að bæta. „Til dæmis getur íþróttahreyfingin ekki nýtt sér lokunarstyrki þrátt fyrir að starfsemi á hennar vegum hafi verið stöðvuð í þágu sóttvarna. Eins nýtast launaúrræði illa vegna fjölda hlutastarfa í hreyfingunni, en þau úrræði geta ekki nema um 30% starfsfólks knattspyrnuhreyfingarinnar nýtt sér.“
Flestir leikmenn knattspyrnuliða á Íslandi spila ekki knattspyrnu að aðalstarfi heldur er um hálf-atvinnumennsku eða áhugamennsku að ræða.
Skilyrði fyrir leiðunum
Í hlutabótaleiðinni svokölluðu er markmiðið að vinnuveitendur haldi ráðningarsambandi við starfsmenn sína eins og mögulegt er, í stað þess að segja fólki upp. Til að ná þessu markmiði hefur hið opinbera skuldbundið sig til að greiða allt að 75 prósent af launum þeirra sem skrá sig á leiðina til 1. júní næstkomandi hið minnsta.
[adspot]Lokunarstyrkirnir voru kynntir í síðustu viku. Í þeim felst að fyrirtæki eða einyrkjar sem þurftu að loka starfsemi sinni vegna lögboðs stjórnvalda í tengslum við sóttvarnaraðgerðir vegna útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 sjúkdómnum munu geta fengið styrki úr ríkissjóði. Styrkirnir verða í boði fyrir þau fyrirtæki sem geta sýnt fram á að minnsta kosti 40 prósent tekjufall og að þau séu með opinber gjöld í skilum. Hver aðili mun geta fengið allt að 800 þúsund krónur fyrir hvern starfsmann en 2,4 milljóna króna styrk að hámarki.
Vilja betrumbætur á úrræðum
Í áskorun stjórnar KSÍ segir að óhjákvæmilegar sóttvarnaraðgerðir stjórnvalda vegna faraldursins hafi leitt af sér stöðvun á íþróttastarfsemi í landinu og komið sér mjög illa fyrir knattspyrnu- og íþróttahreyfinguna í heild sinni. „Rétt er að minna á að íþróttahreyfingin hefur á liðnum áratugum lyft grettistaki hvað varðar holla íþróttaiðkun ungs fólks og fyllt þjóðina stolti yfir árangri afreksfólks á innlendum og erlendum vettvangi. Þennan árangur er mikilvægt að varðveita með öllum tiltækum ráðum og búa í haginn fyrir enn frekari sókn.“
Þar segir að knattspyrnuhreyfingin horfi til þess að aðgerðir ríkisstjórnar og sveitarfélaga létti þeim róðurinn þannig að lágmarka megi þann skaða sem þegar er orðinn. Því beini stjórn KSÍ þeirri eindregnu áskorun til stjórnvalda að tryggja íþróttahreyfingunni öfluga viðspyrnu á komandi vikum og mánuðum. „Með betrumbótum á þessum úrræðum ásamt öðrum aðgerðum myndi rekstrarumhverfi íþróttafélaganna verða betra og félögin, sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni, geta frekar sinnt sínu mikilvæga samfélagslega hlutverki.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir