Mynd: Bára Huld Beck

Væntanlegur halli ríkissjóðs fór úr tíu í allt að 300 milljarða á hálfu ári

Í lok nóv­em­ber 2019 voru sam­þykkt við­spyrnu­fjár­lög fyrir yfir­stand­andi ár. Reka átti rík­is­sjóð með um tíu millj­arða króna halla til að bregð­ast við skamm­vinni nið­ur­sveiflu. Um miðjan mars­mánuð var farið að reikna með 100 millj­arða króna halla.

Síðast þegar Ísland gekk í gegnum stórt efna­hags­á­fall þá hrundi íslenska banka­kerfið á örfáum dögum. Það voru mestu ham­farir sem orðið hafa af manna­völdum hér­lendis. Í kjöl­farið veikt­ist krónan um tugi pró­senta, verð­bólga fór í 18,6 pró­sent, stýri­vextir í 18 pró­sent, atvinnu­leysi í hæstu hæðir og hall­inn sem rík­is­sjóður var rek­inn með á því ári, 194 millj­arðar króna, gerði hann nær gjald­þrota. Áhrifin á sam­fé­lagið allt voru gríð­ar­leg, sér­stak­lega á þá sem skuld­uðu. Leita þurfti til Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins eftir aðstoð og rík­is­sjóður var rek­inn með halla út árið 2013. Upp­safn­aður halli á þessu tíma­bili, frá 2008 til 2013, var tæp­lega 658 millj­arðar króna sam­kvæmt tölum frá Hagstofu Ísland. Kreppan var því langvar­andi.

Síðan tók við mesta hag­vaxt­ar­skeið Íslands­sög­unnar sem náði hámarki árið 2016 þegar saman kom gríð­ar­leg aukn­ing í komu ferða­manna og greiðsla stöð­ug­leika­fram­lagi úr slita­búum fall­inna fjár­mála­fyr­ir­tækja. Það árið var afgangur af rekstri rík­is­sjóðs tæp­lega 302 millj­arðar króna.

Í fyrra stefndi í að því hag­vaxt­ar­skeiði myndi ljúka, þegar WOW air fór í þrot sam­hliða því að Icelandair glímdi við mikla rekstr­ar­erf­ið­leika, meðal ann­ars vegna þess að félagið fékk ekki Boeing 737-Max vélar sínar afhentar. Afleið­ing þess varð sú að ferða­mönnum sem heim­sóttu Íslands fækk­aði úr 2,3 millj­ónum í tvær millj­ónir. Þvert á allar spár framan af ári end­aði lands­fram­leiðslan þó með því að vaxa lít­il­lega, eða um 0,6 pró­sent, í stað þess að drag­ast saman.

Árið 2020 átti að verða við­spyrnuár. Þegar fjár­lög vegna yfir­stand­andi árs voru sam­þykkt gerðu þau ráð fyrir að rík­is­sjóður myndi verða rek­inn með tæp­lega tíu millj­arða króna halla. Í til­kynn­ingu frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu sagði að sá slaki væri gefin til að „styðja við hag­kerfið nú þegar það gengur í gegnum skamm­vinna nið­ur­sveiflu.“

Svo skall COVID-19 far­ald­ur­inn á og breytti öllu.

Síðan þá hefur hin efna­hags­lega staða breyst til hins verra nán­ast dag frá degi. Hér að neðan er sú breyt­ing sem átt hefur sér stað á sviðs­myndum og vænt­ingum í efna­hags­málum þjóðar síð­ustu tæpu þrjá mán­uði rakin.

5. febrúar 2020: Seðlabanki Íslands birtir hagvaxtarspá

Hag­vaxta­spá Seðla­banka Íslands kynnt í febr­ú­ar­hefti rits­ins Pen­inga­mál. Spáin gerði ráð fyrir að hag­vöxtur í ár yrði 0,8 pró­sent og hafði spáin þá versnað umtals­vert frá því í nóv­em­ber 2019, þegar hún gerði ráð fyrir 1,6 pró­sent hag­vexti. Þar segir að í stað þess að aukast lít­il­lega sé nú útlit fyrir að útflutn­ingur vöru og þjón­ustu drag­ist saman í ár og yrði það í fyrsta sinn frá því snemma á tíunda ára­tug síð­ustu aldar sem útflutn­ingur dregst saman tvö ár í röð. „Hægari bati í ferða­þjón­ustu, fram­leiðslu­hnökrar í áliðn­aði og loðnu - brestur annað árið í röð vega þar þungt. Þá hækk­aði álag á vexti fyr­ir­tækja­lána nokkuð undir lok síð­asta árs sem veldur því að nú er talið að atvinnu­vega­fjár­fest­ing auk­ist hægar í ár og á næsta ári en áður var spáð.“

23. febrúar: „Við sem ferðamannaland erum ekki búin að taka neinum breytingum“

COVID-far­ald­ur­inn var ekki farin að hafa telj­andi áhrif á Íslandi né far­inn að vigta af viti inn í umræð­una hér­lendis. Stærsta málið í umræð­unni var þvert á móti mögu­leg sala á rík­is­banka og hvort að það ætti að grípa til sér­tækra aðgerða til að lækka arð­semi íslenskra orku­fyr­ir­tækja til að aðstoða alþjóð­leg stór­fyr­ir­tæki sem reka álver á Íslandi að ná fram betri rekstr­ar­af­komu.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, mætti í við­tal í Silfrinu og sagði að ríkið væri í „sölugírnum“ þegar kæmi að sölu Íslands­banka. Það væri gríð­ar­legt hags­muna­mál að ríkið lægi ekki ­með á annað hund­rað millj­arða í fjár­mála­fyr­ir­tæki á sama tíma og allir væru ­sam­mála um að það þurfi að auka inn­viða­fjár­fest­ing­ar. „Þetta er algjör­lega rakið mál.“

Salan á Íslandsbanka átti að losa fé fyrir hið opinbera.
Salan á Íslands­banka átti að losa fé fyrir hið opin­bera.

Til lengri tíma litið sagð­ist hann ekki hafa áhyggjur af hag­kerf­inu. „Við búum hér yfir grænni orku og hún verður eft­ir­sótt í fram­tíð­inni og við sem ferða­manna­land erum ekki búin að taka neinum breyt­ing­um. Þannig að til lengri tíma hef ég engar áhyggjur af tæki­færum Íslands.“

10. mars: Aðgerðapakki núll

Rík­is­stjórn Íslands kynnti áætlun sína um frek­ari aðgerðir til að mæta efna­hags­legum áhrifum af útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 og almennrar kóln­unar í hag­kerf­inu. Það má kalla hann aðgerða­pakka núll.

Í þeim pakka, sem taldi sjö aðgerðir, voru meðal ann­ars aðgerðir sem þegar höfðu verið kynntar, eins og til­færsla á inn­stæðum Íbúða­lána­sjóðs úr Seðla­banka Íslands og yfir til við­skipta­banka til að auka laust fé innan þeirra. Þá hafði áður verið greint frá því að aukin kraftur yrði settur í fjár­fest­ingar hins opin­bera og engar nýjar slíkar voru til­greindar á blaða­manna­fundi rík­is­stjórn­ar­innar. Þar var hins vegar greint frá því að fyr­ir­tækjum sem gætu lent í tíma­bundnum rekstr­ar­örð­ug­leik­um ­vegna tekju­falls yrði veitt svig­rúm, t.d. með lengri fresti til að standa skil á sköttum og opin­berum gjöld­um og að gistin­átta­skattur verði felldur niður. Rík­is­stjórnin greindi líka frá því að hún ætl­aði í mark­aðsá­tak erlendis „þeg­ar að­stæður skap­ast til þess að kynna Ísland sem áfanga­stað, auk átaks til að hvetja til ferða­laga Íslend­inga inn­an­lands.“

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra kynnir áætlun ríkisstjórnarinnar um að bregðast við efnahagsástandinu 10. mars 2020.
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra kynnir áætlun rík­is­stjórn­ar­innar um að bregð­ast við efna­hags­á­stand­inu 10. mars 2020.

Virkt sam­tal myndi svo eiga sér stað um hvernig bankar ættu að taka á stöðu fyr­ir­tækja sem gætu ekki staðið við greiðslur af lánum né almennar rekstr­ar­greiðslur, eins og launa­greiðslur. Engin nið­ur­staða úr því sam­tali var þó kynnt um hvernig þeim málum verði háttað að öðru leyti en að til stæði að reyna að fleyta „líf­væn­legum fyr­ir­tækjum“ í gegnum þann kúf sem framundan væri.

12. mars: Bandaríkin lokast

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, til­kynnti um ferða­bann milli Evrópu og Banda­ríkj­anna. Það átti að standa yfir í 30 daga. Und­an­farin ár hafa flestir þeirra sem heim­sækja Ísland sem ferða­menn komið frá Banda­ríkj­unum. Í fyrra komu þaðan 464 þús­und manns, sem var þriðj­ungi færri en metárið 2018.

15. mars: Samkomubann tekur gildi á Íslandi

Við­burðir þar sem fleiri en hund­rað manns koma saman yrðu óheim­ilir sam­kvæmt til­lög­unni. Það myndi eiga við til dæmis stóra vinnu­staði, íþrótta­við­burði, versl­anir og kvik­mynda­hús. Á fámenn­ari við­burðum átti fólk halda tveggja metra fjar­lægð sín á milli­. ­Bannið átti ekki að gilda um flug­vélar og skip og náði því ekki til alþjóða­hafna og flug­valla. Einnig var greint frá því að tak­mörkun yrði á skóla­starfi.

16. mars: Evrópa lokast

Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins mælt­ist til þess að öll ríki sam­bands­ins, sem og nágranna­lönd sem standa utan þess, myndu banna öll „ónauð­syn­leg ferða­lög“ til Evr­ópu. Í raun þýddi þetta tíma­bundið ferða­bann sem næði til alls heims­ins. Ein­ungis Evr­ópu­búar fengju þá að ferð­ast til Evr­ópu, nema í und­an­tekn­ing­ar­til­fell­um. Með þessum aðgerðum hafði öllum helstu mark­aðs­svæðum íslenskrar ferða­þjón­ustu verið lokað.

17. mars: 100 milljarða halli

Bjarni Bene­dikts­son fór í við­tal við Bítið á Bylgj­unni og sagði meðal ann­ars að rík­is­sjóður gæti verið rek­inn með hund­rað millj­arða króna halla á þessu ári en mik­il­vægt væri að fólk haldi störfum sínum. Aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar vegna heims­far­ald­urs­ins miði að því.

19. mars: Vonast til að hlutabætur kosti tólf til tuttugu milljarða

Kjarninn birtir upp­lýs­ingar úr kostn­að­ar­mati sem unnið var vegna hluta­bóta­leið­ar­innar svoköll­uðu. Bjartasta sviðs­myndin gerði ráð fyrir því að ein­ungis fimm þús­und manns myndu nýta sér leið­ina en sú sem stjórn­völd voru að reikna með gerði ráð fyrir að þeir yrðu á bil­inu 20-30 þús­und. Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna­mála­ráð­herra, sagði í fréttum Stöðvar 2 þann dag að „það fjár­magn sem fer í þetta [fer] mjög mikið upp og má gera ráð fyrir því að það verði á bil­inu tólf til tutt­ugu millj­arðar, eftir því hversu margir nýta sér úrræðið.“

21. mars: Aðgerðapakki 1.0

Stjórn­völd kynntu fyrsta alvöru aðgerða­pakka sinn vegna aðstæðna í efna­hags­líf­inu. Aðgerð­irnar sagðar vera „stærstu ein­stöku efna­hags­að­gerðir sög­unnar“. Kostn­að­ur­inn vegna hluta­bóta­leið­ar­innar þar reikn­aður sem 22 millj­arðar króna fram til 1. júní, og hafði því hækkað frá mati Ásmundar Einars, sem sett var fram tveimur dögum áður.

Ríkisstjórnin mat umfang fyrsta aðgerðapakka síns á 230 milljarða króna. Mánuði síðar kynnti hún annan pakka.
Rík­is­stjórnin mat umfang fyrsta aðgerða­pakka síns á 230 millj­arða króna. Mánuði síðar kynnti hún annan pakka.

Aðgerða­pakk­inn fólst utan þess aðal­lega í að Seðla­bank­inn geti veitt ábyrgðir fyrir lánum til fyr­ir­tækja upp á tugi millj­arða króna, að heim­ila frek­ari frestun á greiðslum opin­berra gjalda, afnema gis­in­átta­skatt, lækka banka­skatt og greiða út barna­bóta­auka. Þá átti að leyfa fólki að nota sér­eign­ar­sparnað sinn. Umfang aðgerða í pakk­anum var metið á 230 millj­arða króna.

23. mars: Sex til sjö prósent samdráttur

Sam­kvæmt sviðs­myndum sem unnið væri með liti út fyrir að Ísland gæti verið á leið í svip­aða nið­ur­sveiflu og eftir banka­hrun­ið, eða sex til sjö pró­sent sam­drátt, sam­kvæmt orðum Bjarna Bene­dikts­sonar í morg­un­út­varpi RÚV. Í sviðs­mynd­unum væri talið að meðal atvinnu­leysi gæti orðið um átta pró­sent en Bjarni ítrek­aði hversu mikið óvissa væri um allt fram­hald. „Við erum í dálítið mik­illi þoku í augna­blik­in­u.“

Hann sagði ekki gott að segja hvenær við myndum finna botn efna­hagslægð­ar­inn­ar. „Ég held að það sé lang­best að vera hrein­skilin með það að við erum á leið­inni inn í krís­una. Þetta er bara rétt að byrja vegna þess að áhrifin af því að það komi ekki ferða­menn til dæmis smit­ast víða um sam­fé­lagið og birt­ast okkur ekki síður í apríl og maí heldur en menn hafa séð í dag og inn í sum­ar­ið. Það er langur tími í að við finnum botn­inn ef við tölum um þetta í ein­hverjum vik­um, og mögu­lega í mán­uð­u­m.“

23. mars á miðnætti: Hert samkomubann tekur gildi

Mörk mann­fjölda við skipu­lagða við­burði fær­t úr 100 manns niður í 20 manns.

Sund­laug­um, lík­ams­rækt­ar­stöðvum, skemmti­stöðum, spila­söl­um, spila­köss­um og söfn­um lokað og starf­semi og þjón­usta sem krefst mik­ill­ar ná­lægðar milli fólks eða skap­ar hættu á of mik­illi ná­lægð varð óheim­il. Þar und­ir féll allt íþrótt­astarf og einnig all­ar hár­greiðslu­stof­ur, snyrti­stof­ur, nudd­stof­ur og önn­ur sam­bæri­leg starf­semi.

25. mars: Svartasta mynd Seðlabankans reiknaði með tæpum fimm prósentum

Seðla­banki Íslands kynnti sviðs­myndir sínar opin­ber­lega. Samkvæmt þeim var reiknað með 2,4 til 4,8 pró­sent sam­drætti í lands­fram­leiðslu á árinu 2020. Mild­ari sviðs­myndin gerði ráð fyrir 37 pró­sent fækkun ferða­manna á árinu 2020 sem myndi leiða til 14 pró­sent sam­dráttar í heild­ar­út­flutn­ingi í ár. Dekkri sviðs­myndin gerði ráð fyrir 55 pró­sent fækkun ferða­manna sem myndi leiða að sér 21 pró­sent sam­drátt í útflutn­ing­i.

Sviðs­mynd­irnar gerðu ráð fyrir miklum breyt­ingum á atvinnu­leysi og að það myndi að með­al­tali verða á bil­inu 5,7 til 7,0 pró­sent árið 2020. Þá var búið að taka til­lit til þess að þús­undir launa­manna í einka­fyr­ir­tækjum myndu fara á hluta­bætur úr Atvinnu­trygg­inga­leys­is­sjóð­i.

2. apríl: Seðlabankinn uppfærir svörtustu sviðsmynd sína

Í upp­færðum sviðs­myndum Seðla­banka Íslands, sem kynntar voru á fundi pen­inga­stefnu­nefndar þennan dag, gerði mild­ari sviðs­myndin ráð fyrir 3,7 pró­sent sam­drætti í hag­vexti í ár og 18,7 pró­sent minni útflutn­ingi á vöru og þjón­ustu en í fyrra. Hin dekkri gerði ráð fyrir 6,4 pró­sent sam­drætti og að útflutn­ingur myndi drag­ast saman um 27,2 pró­sent. Vert er að minna á að grunn­spá pen­inga­stefnu­nefndar, sem var kynnt í febr­úar og áður en að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn reið yfir, gerði ráð 1,6 pró­sent hag­vexti. Seðla­bank­inn reikn­aði með því að atvinnu­leysi gæti í versta falli farið upp í 7,5 pró­sent.

14. apríl: AGS spáir meiri samdrætti en Seðlabankinn

Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn birti spá um 7,2 pró­sent sam­drátt í íslensku efna­hags­lífi í ár en að hag­kerfið myndi bragg­ast hratt á næsta ári og upp­lifa sex pró­sent hag­vöxt. Sjóð­ur­inn spáði einnig átta pró­sent atvinnu­leysi hér­lendis í ár.

Sviðsmyndir Seðlabanka Íslands hafa verið jákvæðari en flestra annarra. Ásgeir Jónsson er seðlabankastjóri.
Sviðs­myndir Seðla­banka Íslands hafa verið jákvæð­ari en flestra ann­arra. Ásgeir Jónsson er seðla­banka­stjóri.

16. apríl: Spá 17 prósent atvinnuleysi

Atvinnu­leysi mun verða allt að 17 pró­sent í apríl sam­kvæmt áætlun Vinnu­mála­stofn­unar, sem er mesta atvinnu­leysi frá því að mæl­ingar hófust árið 1957. Um 14.000 manns þáðu þennan dag atvinnu­leys­is­bætur og um 35 þús­und manns voru í lækk­uðu starfs­hlut­falli í gegnum hluta­bóta­leið­ina sem nam 37 pró­sent að með­al­tali.

17. apríl: Skýrsla segir að 330 milljarðar króna muni ekki skila sér

Skýrsla sem KPMG vann með Ferða­mála­stofu og Stjórn­stöð ferða­mála er opin­beruð. Í henni eru birtar spár um hvaða áhrif hrunið í ferða­þjón­ustu vegna útbreiðslu kór­ónu­veirunnar muni hafa á tekju­öflun grein­ar­innar. Þar er reiknað með að komur ferða­manna til Íslands muni drag­ast saman um 43 til 69 pró­sent á árinu 2020. Bjart­sýn­asta spáin gerði ráð fyrir að fjöldi erlendra ferða­manna sem komi hingað til lands verði rétt rúm­lega helm­ingur þess sem kom í fyrra, þegar þeir voru um tvær millj­ónir. Svart­sýn­asta spáin gerði ráð fyrir að erlendu ferða­menn­irnir verði ein­ungis 600 þús­und.

Afleið­ingin af þessu yrði kolsvört: reiknað er með að gjald­eyr­is­tekjur drag­ist saman um 275 til 330 millj­arða króna.

21. apríl: Aðgerðapakki 2.0 kynntur

Rík­is­stjórnin kynnti annan aðgerða­pakka sinn. Lok­un­ar­styrkir til fyr­ir­tækja sem ríkið lét loka með boð­valdi, stuðn­ings­lán með 100 pró­sent rík­is­á­byrgð til lít­illa fyr­ir­tækja, bón­us­greiðslur til fram­línu­starfs­manna og óút­færðar styrk­veit­ingar upp á 350 millj­ónir króna til einka­rek­inna fjöl­miðla voru á meðal aðgerða sem mynd­uðu nýjasta pakka íslenskra stjórn­valda. Stjórn­völd meta heild­ar­um­fang aðgerð­anna sem nálægt 60 millj­örðum króna.

Annar aðgerðapakki ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur var kynntur í síðustu viku.
Annar aðgerða­pakki rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur var kynntur í síð­ustu viku.

Bjarni Bene­dikts­son fór í við­tal við mbl.is eftir á og sagði að ef tekju­fall rík­is­ins sé lagt sam­an við út­gjalda­auka þess vegna COVID-19 væri hægt að gera ráð fyr­ir að halli rík­is­sjóðs yrði 250 millj­arðar króna í ár.

Aðrir stjórn­mála­menn og sér­fræð­ingar í efna­hags­málum sem Kjarninn hefur rætt við segja ein­boðið að hall­inn verði yfir 300 millj­arða króna í ár.

27. apríl: Reiknað með 13 prósent samdrætti

Í nýju haglík­ani sem Við­skipta­ráð Íslands hefur sett fram um þróun lands­fram­leiðslu til árs­ins 2030 er gert ráð fyrir að sam­dráttur í lands­fram­leiðslu á árinu 2020 verði 12,8 pró­sent. Það sam­svarar því að hún lækki um 379 millj­arða króna á yfir­stand­andi ári.

For­sendur lík­ans­ins eru meðal ann­ars þær að atvinnu­vega­fjár­fest­ing drag­ist saman um 40 pró­sent, að þjón­ustu­út­flutn­ing­ur, sem felur meðal ann­ars í sér ferða­þjón­ustu, minnki um 59 pró­sent og að íbúða­fjár­fest­ing drag­ist saman um 25 pró­sent. Við­skipta­ráð telur ­sviðs­mynd­ina sem dregin er upp þegar farið er inn í líkanið sé „afar dökk en raun­sæ“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár