Bjarni: „Það er langur tími í að við finnum botninn“

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra segir sviðs­myndir benda til þess að kreppan nú verði af svip­aðri stærð­argráðu og eftir banka­hrunið. Hann seg­ist hafa miklar vænt­ingar til fjár­mála­kerf­is­ins um við­brögð við stöð­unni og að það hjálpi fyr­ir­tækjum að lifa af.

Bjarni Benediktsson er fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son er fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Samkvæmt sviðs­myndum sem unnið er með, sem eru þó í stans­lausri upp­færslu, litur út fyrir að Ísland gæti verið á leið í svip­aða nið­ur­sveiflu og eftir banka­hrunið, eða sex til sjö pró­sent sam­drátt. Þetta sagði Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, í við­tali á RÚV í morgun.

[links]Í sviðs­mynd­unum væri talið að meðal atvinnu­leysi gæti orðið um átta pró­sent en Bjarni ítrek­aði hversu mikið óvissa væri um allt fram­hald. „Við erum í dálítið mik­illi þoku í augna­blik­inu.“

Hann sagði ekki gott að segja hvenær við myndum finna botn efna­hagslægð­ar­innar. „Ég held að það sé lang­best að vera hrein­skilin með það að við erum á leið­inni inn í krís­una. Þetta er bara rétt að byrja vegna þess að áhrifin af því að það komi ekki ferða­menn til dæmis smit­ast víða um sam­fé­lagið og birt­ast okkur ekki síður í apríl og maí heldur en menn hafa séð í dag og inn í sum­arið. Það er langur tími í að við finnum botn­inn ef við tölum um þetta í ein­hverjum vikum, og mögu­lega í mán­uðum.“

Miklar væntingar til fjármálakerfisins um viðbrögð

Bjarni ræddi þær leiðir sem rík­is­stjórnin kynnti á laug­ar­dag sem við­spyrnu fyrir íslenskt efna­hags­líf, og voru í þeirri kynn­ingu metnar sem 230 millj­arða króna ráð­staf­anir. Hann sagði að það hefði skipt miklu máli að fresta strax greiðslu opin­bera gjalda og sam­þykkja hluta­bóta­leið­ina, sem gerir fyr­ir­tækjum kleift að setja starfs­menn á bætur fyrir allt að 75 pró­sent af launum þeirra án þess að segja upp ráðn­ing­ar­sam­bandi.

[adspot]„Ég er líka með miklar vænt­ingar til fjár­mála­kerf­is­ins,“ sagði Bjarni. Það væri búið að skapa svig­rúm fyrir það að bregð­ast við með. Seðla­bank­inn hafi lækkað vexti og afnumið sveiflu­jöfn­un­ar­auka. Ríkið að koma með þessi við­bót­ar­brú­ar­lán ofan á það. „Þetta veitir fjár­mála­kerf­inu gríð­ar­legt svig­rúm til að styðja við sína við­skipta­menn og eftir atvikum gæti maður séð fyrir sér að gjald­dögum af afborg­unum yrði frestað og þeim bætt aftan við lán og þannig bara sett brú yfir þetta tíma­bil og þessu bara frestað þar til að hlut­irnir eru komnir aftur í rétt horf.“

Hann var þó alveg skýr með að það þyrfti að end­ur­meta stöð­una reglu­lega og grípa til fleiri aðgerða, til dæmis varð­andi hluta­bóta­leið­ina. Hún væri nú sett upp í tvo og hálfan mánuð en mögu­lega þyrfti að fara fram end­ur­mat á þeim gild­is­tíma.

Hafnar því að aðgerðir séu gamalt vín á nýjum belgjum

Stjórn­ar­and­staðan hefur gagn­rýnt aðgerða­pakka rík­is­stjórn­ar­innar fyrir að fela ekki í sér mikið af nýjum rík­is­út­gjöldum. Af þeim 230 millj­örðum króna sem kynntir voru eru á bil­inu 60 til 70 millj­arðar króna ný rík­is­út­gjöld. Bjarni sagði að Ísland sé á mjög svip­uðum slóðum og Norð­ur­lönd­unum hvað varðar umfang.

Ein af þeim leiðum sem hefur verið gagn­rýnt að sé talin til aðgerða rík­is­stjórn­ar­innar sé heim­ild fyrir fólk að nýta sér­eign­ar­sparnað sinn, en af honum þarf að greiða skatt. Því er hún í raun tekju­öfl­un­ar­leið fyrir rík­is­sjóð. Bjarni svar­aði þeirri gagn­rýni svona: „Ef að fólk á sparnað, og vill sækja hann þá á ríkið ekki að standa í vegi fyrir því að það geti gert það.“

Hann sagði að í aðgerð­unum fælust líka skatta­lækk­anir og fjár­fest­inga­á­tak. Það síð­ar­nefnda feli í sér að nýjar fjár­fest­ingar upp á 20 millj­arða króna verði færðar inn á árið 2020. „Menn segja að þetta sé gam­alt vín á nýjum belgjum en það er bara allur munur á því að færa þessar fjár­fest­ingar inn á árið 2020 en að hafa ætlað að fara í þær á næstu árum. Auðvitað ætlum við að fylgja þessu eftir með frek­ari fjár­fest­ingum 2021, 2022 og 2023 og svo fram­vegis.“

Ríkisábyrgðin ætti að tryggja lægri kjör

Aðspurður um stöðu lít­illa og með­al­stóra fyr­ir­tækja sem eru ekki í ferða­þjón­ustu, en eru að verða fyrir miklum búsifjum núna, eins og t.d. hár­greiðslu­stofur og lík­ams­rækt­ar­stöðvar, þá sagði Bjarni að þau úrræði sem kynnt voru á laug­ar­dag ættu að gagn­ast þeim líka. Auk þess væri við­skipta­bönkum slíkra fyr­ir­tækja bein­línis skylt að hjálpa þeim. „Ef við tökum til dæmis þessi brú­ar­lán, þá vegna rík­is­á­byrgð­ar­innar, ættum við að sjá lægri kjör en við höfum áður séð og hafa þau þó verið að lækka meira en við höfum dæmi um í sög­unni. Við erum með lægstu vexti sem hafa sést á Íslandi.“

[adspot]Hann við­ur­kenndi að skil­yrðin sem sett eru fyrir brú­ar­lánum og frestun á greiðslu opin­berra gjalda væru við­kvæm. Til að fá brú­ar­lán með rík­is­á­byrgð þarf til að mynda að hafa átt sér stað 40 pró­sent tekju­fall, en á hinum Norð­ur­lönd­unum væri sú líka dregin við 50 pró­sent. „Þetta er allt saman mats­at­riði. Það má alltaf spyrja sig: hvað með fyr­ir­tæki sem hefur séð 37 pró­sent tekju­fall. Það kemst ekki yfir þrösk­uld­inn. Það er ein­fald­lega um mjög vöndu að ráða.“ Auðvitað sé einnig búist við því að þeir sem standa í fyr­ir­tækja­rekstri leggi allt sem þeir geti af mörkum líka. „Menn þurfa bara að hald­ast í hendur og leið­ast í gegnum þetta.“

Ýmsir hafa lýst yfir áhyggjum af getu þeirra fyr­ir­tækja sem munu þurfa að fresta opin­berum greiðslum eða taka brú­ar­lán til að greiða upp þann skafl sem skap­ast þegar ástand­inu er lokið. Bjarni sagði að það væri ástæða til að hafa áhyggjur af því. „Þeim mun meiri líkur eru á þessu eftir því sem krísan dregst lengur og verður dýpri og alvar­legri[...]Þess vegna kann það að vera að upp­setn­ingin á þessu reyn­ist sumum ofviða og það er eðli­legt að við tölum um það hreint út, við munum bregð­ast við því.“

Icelandair mikilvægasta fyrirtækið sem starfar á Íslandi í dag

Að lokum ræddi Bjarni stöðu Icelandair. „Það sem blasir við í mínum huga er að ef það verður röskun í alþjóða­flug­inu til og frá Íslandi og sam­göngum og vöru­flutn­ingum vegna þess er ógnað þá höfum við skyldu til þess að stíga inn í þá mynd. Enn sem komið er þá er fyr­ir­tækið að vinna með sínar eigin áætl­anir og byggja á sinni sterku lausa­fjár­stöðu en ég hef heyrt það beint frá stjórn­endum fyr­ir­tæk­is­ins að þeir þurfa að vera í stöð­ugu end­ur­mati á stöð­unni vegna þess að það eru að birt­ast aðgerðir ein­stakra þjóð­ríkja.“

Í hans huga væri þó eng­inn vafi um mik­il­vægi Icelandair fyrir íslenskt efna­hags­líf. „Ég er sam­mála því að þetta er eitt mik­il­væg­asta ef ekki mik­il­væg­asta fyr­ir­tækið sem starfar á Íslandi í dag.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár