„Stærstu einstöku efnahagsaðgerðir sögunnar“

Aðgerð­ar­pakki rík­is­stjórn­ar­innar felst aðal­lega í að Seðla­bank­inn geti veitt ábyrgðir fyrir lánum til fyr­ir­tækja upp á tugi millj­arða króna, heim­ila frestun á greiðslum opin­berra gjalda, afnema gis­in­átta­skatt, lækka banka­skatt og greiða úr barna­bóta­auka.

Þetta eru stærstu ein­stöku efna­hags­að­gerðir sög­unnar,“ sagði Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, þegar for­menn rík­is­stjórn­ar­flokk­anna kynntu aðgerð­ar­pakka fyrir atvinnu­líf og heim­ili í land­inu vegna efna­hags­á­hrifa kór­ónu­veirunnar.

Hann sagði okkur standa frammi fyrir tví­þættri áskorun, heil­brigð­isvá og efna­hags­vanda. „Til þess að takast á við þessa tví­þættu áskorun þarf að vinna saman. Þær aðgerðir sem við kynnum hér í dag miða fyrst og fremst að því að verja störf fólks og tryggja þannig afkomu heim­il­anna.“ Það væri betra að gera of mikið en að gera of mikið. Umfang aðgerð­anna eru metin á 230 millj­arða króna og Bjarni sagði að þetta væru aðgerðir án hlið­stæðu. Af þeirri upp­hæð eru í kringum 60 millj­arðar króna bein inn­spýt­ing úr rík­is­sjóði.

Ein helsta aðgerðin er að veita fyr­ir­greiðslu til að auð­velda við­bót­ar­lán lána­stofn­ana til fyr­ir­tækja. Þetta verður gert þannig að ríkis semur við Seðla­banka Íslands um að færa lána­stofn­unum aukin úrræði til að veita við­bót­ar­fyr­ir­greiðslu til fyr­ir­tækja, í formi brú­ar­lána, sem orðið hafa fyrir veru­legu tekju­tapi vegna yfir­stand­andi aðstæðna. Seðla­bank­inn mun þannig veita ábyrgðir til lána­stofn­ana sem þær nýta til að veita við­bót­ar­lán upp að um 70 millj­arða króna. Aðal­við­skipta­bankar fyr­ir­tækja munu veita þessa fyr­ir­greiðslu og aðgerðin er í heild metin á um 80 millj­arða króna að teknu til­liti til auk­innar útlána­getu banka vegna lækk­unar á banka­skatti, sem mun aukast um tæp­lega 11 millj­arða króna. Hún kemur til við­bótar við svig­rúmið sem Seðla­bank­inn hefur þegar gefið, sem nemur um 350 millj­örðum með lækkum sveiflu­jöfn­un­ar­aukans síð­ast­lið­inn mið­viku­dag.

Aðgerð­ar­pakk­inn sam­anstendur að tveimur frum­vörpum sem koma inn í þingið í dag. Annað er svo­kall­aður band­ormur en hitt er fjár­auka­laga­frum­varp.

Fresta gjalddögum og greiða út barnabótaauka

Í fyrra frum­varp­inu, sem ber nafnið „frum­varp til laga um aðgerðir til að mæta efna­hags­legum áhrifum í kjöl­far heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru“, eru lagðar til nokkrar aðgerðir.

Sú fyrsta er að fresta gjald­daga stað­greiðslu og trygg­ing­ar­gjalds á tíma­bil­inu 1. apríl til 1. des­em­ber ef fyr­ir­tæki getur mætt ákveðnum skil­yrðum. Þau eru að um minnsta kosti þriðj­ungs sam­drátt sé um að ræða í rekstr­ar­tekjum fyr­ir­tækis yfir heilan mánuð sam­an­borið við sama mánuð árið 2019, að tekju­fallið hafi leitt af sér rekstr­ar­örð­ug­leika (einkum horft til stöðu eigin fjár og lausa­fjár­stöðu) og að rekstr­ar­örð­ug­leik­arnir séu tíma­bundnir og því hafi hafi ekki verið til staðar var­an­legur fjár­hags­vandi áður en til tekju­falls­ins kom.

Miðað við ákveðnar for­sendur um nýt­ingu er áætlað að þessi aðgerð geti frestað greiðslu á tekjum rík­is­sjóðs og sveit­ar­fé­laga um 33 til 100 millj­arða króna á tíma­bil­inu. Hlut­föllin verða þannig að 57 pró­sent höggs­ins lendir á rík­is­sjóði en 43 pró­sent á sveit­ar­stjórnum.

Þá fær fjár­mála- og efna­hagsáð­herra heim­ild til að fella niður eða lækka fyr­ir­fram­greiðslu á tekju­skatti atvinnu­rekstrar vegna síð­asta árs fram í lok októ­ber.

Greiddur verður út sér­stakur barna­bóta­auki upp á 40 þús­und krónur fyrir hvert barn sem for­eldri eða for­eldrar sem eru með undir 11,1 milljón krónur í sam­eig­in­legar tekjur, og 20 þús­und krónur til þeirra sem eru með tekjur yfir þeim mörkum.

Toll­af­greiðslu­gjald verður nið­ur­fellt sem mun kosta Skattinn um 600 millj­ónir króna í tekjur á árunum 2020 og 2021. Í fimmta lagi á að fjölga gjald­dögum aðflutn­ings­gjalda.

Heimild til að end­ur­greiða virð­is­auka­skatt til byggj­enda og eig­enda íbúð­ar­hús­næðis verður útvíkkuð og nú verður heim­ild sett inn um end­ur­greiðslu virð­is­auka­skatts vegna heim­il­is­að­stoðar. Þetta mun gera þeim sem kaupa slíka þjón­ustu geti fengið 100 pró­sent virð­is­auka­skatt end­ur­greiddan. Í sjö­unda lagi verður sett inn heim­ild til að end­ur­greiða virð­is­auka­skatt til mann­úðar- og líkna­fé­laga, íþrótta­fé­laga og björg­un­ar­sveita, lands­sam­taka björg­un­ar­sveita og slysa­varna­deilda vegna bygg­ingar, end­ur­bóta og við­halds á mann­virkjum.

Gistináttaskattur afnumin og opnað á nýtingu séreignar

Tillaga átta miðar að því að afnema gistin­átta­skatt tíma­bundið, eða út næsta ár. Ríkið verður af tæp­lega 1,6 millj­arða króna á næsta tveimur árum vegna þessa, út frá ein­hverjum for­sendum sem eru ekki gefnar upp í skjöl­unum sem lýsa frum­varp­inu.

Í níunda lagi verður úttekt sér­eigna­sparn­aði upp að tólf millj­ónum króna út þetta ár. Sú heim­ild gerir ein­stak­lingum því kleift að ganga á eigin sparnað, en margir gera það nú þegar og nýta skatt­frjálst til að greiða niður hús­næð­is­lán sín.

Banka­skattur verður lækk­aður hraðar en áður var áætlað, og fer niður í 0,145 pró­sent strax á næsta ári. Þetta mun hafa nei­kvæð áhrif á tekjur rík­is­sjóðs upp á 10,6 millj­arða króna.

Sveit­ar­fé­lög fá líka heim­ild til að víkja tíma­bundið frá fjár­mála­reglum sínum. Þeim verður líka veitt heim­ild til að fresta gjald­dögum fast­eigna­gjalda hjá fyr­ir­tækjum sem orðið hafa fyrir veru­legu tekju­tapi.

Í fjár­auka­frum­varp­inu verður fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra veitt heim­ild til að ráð­ast í tíma­bundið fjár­fest­inga­á­tak til að vinna gegn sam­drætti í hag­kerf­inu með „arð­bærum fjár­fest­ingum sem auka eft­ir­spurn eftir vinnu­afli“. Hann mun líka fá heim­ild til að auka hlutafé í opin­berum hluta­fé­lögum í því skyni að auka fjár­fest­inga­getu þeirra. Það gæti til að mynda átt við orku­fyr­ir­tæki eða Isavia. Íslands­stofu verður gert kleift að ráð­stafa 1,5 millj­arði króna í mark­aðsá­tak til stuðn­ings íslenskrar ferða­þjón­ustu. Þá munu allir lands­menn fá staf­rænt gjafa­bréf til að ferð­ast inn­an­lands, og áætluð áhrif þess eru 1,5 millj­arðar króna.

Rík­is­sjóður fær líka auknar lán­töku­heim­ildir til að fjár­magna aðgerð­irnar.

Kemur til viðbótar við hlutabætur

Þegar er búið að sam­þykkja lög um hluta­bætur sem greiddar verða tíma­bundið úr Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóði, og hefur það mark­mið að við­halda ráðn­ing­ar­sam­bandi hjá fyr­ir­tækjum sem eru nú með litlar eða engar tekjur. Samkvæmt því mun Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóður greiða frá 25 pró­sent og allt að 75 pró­sent af launum þeirra sem gera slíka samn­inga.

Aðrar lyk­il­breytur eru að hámark á heild­ar­tekjum þeirra sem gera samn­inga er 700 þús­und krónur og hver og einn getur fengið allt að 90 pró­sent af núver­andi heild­ar­launum upp að því þaki. Þá verður launa­lægsta hópnum tryggð full afkoma og þeir sem eru með laun undir 400 þús­und krónum á mán­uði munu geta fengið þau að öllu leyti áfram, þrátt fyrir samn­ing­inn. Þetta úrræði mun verða í gildi til 1. júní.

Kostn­aður rík­is­sjóðs vegna hluta­bóta­lag­anna ræðst á því hversu margir muni nýta sér úrræð­ið. Ásmundur Einar sagði í fréttum Stöðvar 2 á fimmtu­dag að „það fjár­magn sem fer í þetta [fer] mjög mikið upp og má gera ráð fyrir því að það verði á bil­inu tólf til tutt­ugu millj­arð­ar, eftir því hversu margir nýta sér úrræð­ið.“

Miðað við kostn­að­ar­mat ráðu­neyt­is­ins, sem Kjarn­inn hefur undir hönd­um, þá var Ásmundur Einar þar að gefa sér að á bil­inu 20 til 30 þús­und lands­menn myndu gera samn­inga um skert starfs­hlut­fall og nýta sér greiðslur úr Atvinnu­trygg­inga­sjóði á móti. Þá myndu greiðsl­ur, á ofan­greindum for­send­um, verða 12,8 til 19,2 millj­arðar króna.

Verði bjart­sýn­asta sviðs­mynd ráðu­neyt­is­ins að veru­leika, sem gerir ráð fyrir að fimm þús­und manns sæk­ist eftir hluta­bót­um, mun kostn­að­ur­inn hins vegar verða mun lægri, eða 3,2 millj­arðar króna yfir umrætt tveggja og hálfs mán­aðar tíma­bil. Verði sú svartasta raunin munu 50 þús­und manns leita eftir samn­ingum við vinnu­veit­endur um að fá hluta launa sinna greidda úr Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóði á næstu mán­uð­u­m. Sam­tals mun kostn­að­ur­inn, frá 15. mars til 31. maí, þá nema 32 millj­örðum króna.

Aðgerðir Seðlabankans þegar kynntar

Fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd og pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands ákváðu á mið­viku­dag að grípa til frek­ari aðgerða vegna efna­hags­legra áhrif af útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómn­um.

Vextir voru lækk­aðir í annað sinn á skömmum tíma og nú niður í 1,75 pró­sent, eða um 0,5 pró­sentu­stig. Það þýðir að ­stýri­vextir hafa því lækkað um 2,75 pró­­­­sent­u­­­­stig frá því í maí síð­­­­ast­liðnum þegar yfir­­­­stand­andi vaxta­­­­lækk­­­­un­­­­ar­­­­ferli hófst.

Auk þess ákvað fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd Seðla­banka Íslands ákveðið að aflétta tveggja pró­senta kröfu um sveiflu­jöfn­un­ar­auka á fjár­mála­fyr­ir­tæki og verður hann því núll pró­sent.

Þetta losar um 350 millj­arða króna fyrir við­skipta­bank­ana til að lána til við­skipta­vina sinna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár