Bjarni um bankasöluna: Þetta er algjörlega rakið mál

Fjár­mála­ráð­herra hefur áhyggjur af stöðu stór­iðju­fyr­ir­tækja á Íslandi, flest eigi þau í miklum rekstr­ar­vand­ræðum. Hann segir ekk­ert hafa verið rætt að selja Lands­bank­ann enda sé talið mik­il­vægt að ríkið eigi kerf­is­lega mik­il­vægan banka.

Bjarni Bendiktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Bendikts­son, fjár­mála­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

„Auðvitað hef ég miklar áhyggjur af því sem við sjáum allan orku­frekan iðnað vera að kljást við í dag,“ sagði Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í við­tali við Egil Helgason í Silfrinu á RÚV í morgun. Var hann þar spurður um stöðu álvers Rio Tinto í Straums­vík. „Við sjáum PPC á Bakka í miklum vand­ræðum. Við sjáum kís­il­verið í Helguvík í miklum vand­ræðum. Við sjáum öll álverin á Íslandi í tap­rekstri. Við sjáum að Kín­verjar eru að taka til sín fram­leiðslu á málmum í orku­frekum iðn­aði. Eru þeir að breyta leiknum? Þetta hefur sín áhrif á Íslandi.“

Bjarni sagð­ist hafa áhyggjur af því að Ísland nyti ekki lengur þess sam­keppn­is­lega for­skots sem var grund­völlur þess að stór­iðju­ver komu til lands­ins. „Ég hef áhyggjur af því að það hefur eng­inn byggt álver í Evrópu í fimmtán, tutt­ugu ár. Eina stóra fjár­fest­ing í áliðn­að­inum er sú sem við sáum í Straums­vík fyrir nokkrum árum og hún virð­ist öll vera afskrifuð í dag. Af þessu er ástæða til að hafa áhyggjur.“

Til lengri tíma litið sagð­ist hann þó ekki hafa áhyggjur af hag­kerf­inu. „Við búum hér yfir grænni orku og hún verður eft­ir­sótt í fram­tíð­inni og við sem ferða­manna­land erum ekki búin að taka neinum breyt­ingum. Þannig að til lengri tíma hef ég engar áhyggjur af tæki­færum Íslands en ég hef áhyggjur af stöð­inni hjá orku­frekum iðn­aði eins og hún blasir við akkúrat í dag.“

Bjarni sag­ist ekki geta tjáð sig um það hvað hann teldi að Lands­virkjun ætti nákvæm­lega að gera til að „liðka fyrir“, eins og Egill spurði að. Hann benti hins vegar á þau tíð­indi sem for­stjóri Lands­virkj­unar greindi frá í við­tali í morgun að Lands­virkjun vildi opin­bera raf­orku­samn­ing­inn við Rio Tinto. „Það verður fróð­legt að sjá hvernig álf­ram­leið­and­inn bregst við því.“

Taka þarf ákvörðun um söluna

Í við­tal­inu í morgun var Bjarni einnig spurður um fyr­ir­hug­aða sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka og hvort að for­senda væri til að selja banka á þessum tíma­punkti.

„Ég held að við munum ekki selja hann núna í mars, við munum ekki selja hann í apríl en við þurfum að taka prinsipp ákvörð­un­ina: Erum við við sam­mála um það að það eigi að losa um eign­ar­hald rík­is­ins á bank­anum?“

[links]Bjarni sagði það í sjálfu sér ekki skipta máli hvort hlutur rík­is­ins yrði seldur á næsta ári eða því þarnæsta. „Við erum í sölugírnum, ef maður mætti orða það þannig, við viljum að bank­inn sé að und­ir­búa sig fyrir sölu og að Banka­sýslan sé að leita að aðstæðum til að koma honum í verð.“

Bjarni sagði það gríð­ar­legt hags­muna­mál að ríkið lægi ekki með á annað hund­rað millj­arða í fjár­mála­fyr­ir­tæki á sama tíma og allir væru sam­mála um að það þurfi að auka inn­viða­fjár­fest­ingar. „Þetta er algjör­lega rakið mál.“

Spurður hvort að næst stæði til að selja Lands­bank­ann sagði Bjarni að ekki væri gott að vera með tvo banka til sölu á sama tíma. Ekki verði rætt um sölu á Lands­bank­anum meðan ekki væri búið að ákveða sölu á Íslands­banka. „Við erum líka þeirrar skoð­unar að ríkið eigi að eiga kerf­is­lega mik­il­vægan banka [...] og verðum að tryggja að kerf­is­lega mik­il­vægur banki sé með höf­uð­stöðvar á Íslandi. Lands­bank­inn er slíkur banki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár